
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Formúlu eitt aflýst í Kína á næsta ári
Kínverjar áttu að hýsa fjórða kappaksturinn á 2023 tímabilinu í formúlunni en ekkert verður af því.

Árið sem þetta var „látið gossa“
Grímuskylda, nálægðarmörk og djammbann. Þetta kunna að virðast hlutir úr öðru lífi en í upphafi ársins voru hér í gildi einar hörðustu samkomutakmarkanir Íslandssögunnar.

Ráðamenn vestanhafs lýsa yfir stuðningi við mótmælendur í Kína
Ráðamenn í Bandaríkjunum og Kanada hvetja stjórnvöld í Kína til að virða rétt borgara sinna til mótmæla og til að ógna ekki eða meiða þá sem mótmæla nú ströngum sóttvarnatakmörkunum í landinu.

Fella niður 33 þúsund Covid-sektir í kjölfar dómsmála
Yfirvöld í Nýju Suður-Wales í Ástralíu hafa fellt niður yfir 33 þúsund sektir sem gefnar voru út vegna brota á sóttvarnareglum í kórónuveirufaraldrinum. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að dómsmál voru höfðuð á hendur yfirvöldum, sem gengust við því að sektirnar hefðu verið óljósar.

Mótmælin í Kína kæfð í fæðingu
Mikill viðbúnaður lögreglu var í nokkrum stórum borgum Kína og svo virðist sem að mótmæli sem brutust út víða um helgina hafi nú fjarað út. Stjórnvöld eru sögð byrjuð að leita uppi fólk sem tók þátt í þeim.

Í gamni og alvöru: „Hvað í andskotanum erum við búin að koma okkur út í?“
„Það er frekar fyndið hversu mikið það er alltaf lagt upp úr góðri hugmynd. Stóra málið er hins vegar að framkvæma. Því hvað er geggjuð hugmynd ef það verður ekki neitt úr neinu?“ spyrja hjónin Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir stofnendur Lava Show.

Útbreiddustu mótmæli í Kína í rúmlega þrjátíu ár
Mótmæli sem brutust út í fjölda kínverskra borga um helgina eru sögð þau mestu frá því í stúdentauppreisninni sem var barin niður í blóðbaði á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Reiði vegna strangra og langvarandi sóttvarnaaðgerða var kveikjan að mótmælunum.

Gera geggjuð fjölskyldujólakort: „Ekki einu sinni mamma veit neitt“
„Það eru allir alla leið í þessu. Eða „all in“ eins og maður segir. Krakkarnir meira að segja pressa á okkur hvenær við ráðumst í þetta. Tengdabörn eru með. Vinir og vandamenn spyrja hvað megi búast við með næsta jólakorti,“ segja hjónin Lóa Dís Finnsdóttir og Torfi Agnarsson um fjölskyldujólakortin sem send hafa verið út síðustu árin og vægast sagt vekja athygli.

Minni mótstaða við umgangspestum eftir heimsfaraldur
Þennan fyrsta vetur án sóttvarnaaðgerða yfirvalda leggjast árstíðabundnar öndunarfærasýkingar af fullum þunga á landsmenn. Fleiri börn eru að veikjast og það verr en á undanförnum árum, sem veldur vanlíðan á meðal foreldra að sögn barnalæknis. Covid-sýking getur líka breytt ónæmissvari við öðrum veirusýkingum.

Umfangsmikil mótmæli vegna strangra sóttvarnaraðgerða
Umfangsmikil mótmæli áttu sér stað víðsvegar um Kína í gærkvöldi og í nótt vegna strangra sóttvarnaraðgerða í Kína. Meðal annars var mótmælt í Sjanghæ þar sem mótmælendur kölluðu eftir því að Xi Jinping, forseti Kína, stigi til hliðar.

Tæma hillur verslana af ótta við sóttvarnaraðgerðir
Yfirvöld í Kína tilkynntu í morgun að 35.183 hefðu greinst smitaðir af Covid-19 þar í landi í gær. Það var þriðji dagurinn í röð þar sem metfjöldi greindist smitaður. Íbúar í Peking eru sagðir sanka að sér nauðsynjum af ótta við sóttvarnaraðgerðir.

„Það er alveg ljóst að við fórum offari“
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir ljóst að Íslendingar hafi farið offari í aðgerðum til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19 á sínum tíma.

Verzlingar leggjast gegn ályktun Sjálfstæðisflokks um námstíma: „Ekki séns, bara nei“
Á nýlegum landsfundi Sjálfstæðisflokksins var ályktað um að stytta skólaár í íslensku menntakerfi um eitt enn, þannig að heildarnámstími ungmenna yrði fram að átján ára. Síðasta stytting gekk í gegn 2015, þegar framhaldsskóli varð að þriggja ára námi, og skólagangan þar með fram að nítján ára aldri.

Staðfest kórónusmit aldrei fleiri í Kína
Kórónuveiran virðist vera að sækja verulega í sig veðrið í Kína þessi dægrin en í gær voru tæplega 32 þúsund tilfelli staðfest af veirunni í landinu öllu en það það mesta sem sést hefur þar frá því veiran fór fyrst að láta á sér kræla.

Tafir á stáli seinka viðbyggingunni til vorsins 2024
Reiknað er með að hægt verði að taka langþráða nýja viðbyggingu við Akureyrarflugvöll í notkun vorið 2024, tæpu ári á eftir áætlun. Tafir við afhendingu á ýmsum aðföngum, svo sem stálgrind hússins, gera þetta að verkum.

Handboltalandsliðið ekki laust við Covid: „Hugsar með hryllingi til síðasta móts“
Alþjóða handknattleikssambandið verður með áfram strangar reglur vegna Covid 19 á heimsmeistaramótinu í handbolta sem hefst i Svíþjóð og Póllandi í byrjun janúar á næsta ári.

Fá pakkaferðina til Madonna endurgreidda vegna Covid-19
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness að Ferðaskrifstofa Íslands skuli endurgreiða stórfjölskyldu pakkaferð til skíðabæjarins Madonna di Campiglio á Norður-Ítalíu sem fara átti í þegar kórónuveirufaraldurinn skall á af fullum þunga. Fjölskyldan, alls þrettán manns, átti að fara í ferðina 29. febrúar 2020 en afpantaði ferðina daginn áður, sama dag og fyrsta kórónuveirutilfellið var staðfest hér á landi og útbreiðslan var þegar orðin mikil á Ítalíu.

Leikskólabörn að greinast með flensuna
Leikskólabörn og ungt fólk er meirihluti þeirra sem greinst hafa með flensuna undanfarið en hún er óvenju snemma á ferðinni í ár. Sóttvarnalæknir segir að í fyrsta sinn sé ungum börnum boðið upp á bólusetningu gegn flensunni þar sem hún lagðist illa á þann hóp þegar hún gekk yfir í Ástralíu.

Flensan farin að láta á sér kræla
Árleg inflúensa er farin að láta á sér kræla en hún ásamt fleiri haustpestum hefur skapað nokkuð álag hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.

Yfirvöld í Kína hafa engan áhuga á afléttingum
Kínversk yfirvöld hafa ekki áhuga á því að aflétta samkomutakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í bráð. Sýnatökur, sóttkví og lokanir eru enn daglegt brauð í Kína.

Áhugavert fyrsta rekstrarár eftir að hafa opnað hótel í upphafi faraldurs
Hún var ferðamálastjóri í áratug áður en hún keypti aflagðan sveitaskóla nyrst í Skagafirði og breytti í hótel með ærnum kostnaði. Sama dag og Ólöf Ýrr Atladóttir og maður hennar opnuðu var hins vegar öllu skellt í lás vegna covid.

Miklar tíðablæðingar skráðar sem aukaverkanir af völdum Covid-bóluefna
Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu um eftirlit með ávinningi og áhættu lyfja (PRAC) ákvað á fundi sínum dagana 24. til 27. október að leggja til að miklar tíðablæðingar yrðu skráðar sem möguleg aukaverkun af bóluefnunum Comirnaty og Spikevax gegn Covid-19.

Tæplega tvö hundruð látist af völdum Covid-19 hér á landi það sem af er ári
Hundrað og áttatíu hafa látist af völdum Covid-19 hér á landi það sem af er ári og hafa dauðsföll af völdum sjúkdómsins aldrei verið fleiri. Sóttvarnalæknir segir að sjúkdómurinn valdi mun meiri usla en aðrir smitsjúkdóma á borð við inflúensu.

Disney-þemagarðinum í Sjanghæ lokað vegna Covid og gestir fastir inni
Disney-þemagarðinum í Sjanghæ var lokað í morgun vegna Covid-19. Gestum garðsins var tilkynnt að þeir fengju ekki að fara fyrr en þeir hefðu fengið neikvæðar niðurstöður úr skimun.

Sakfelldir fyrir ráðabrugg um að ræna ríkisstjóra
Þrír karlmenn á þrítugs og fimmtungsaldri voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Mennirnir tilheyrðu vopnaðri öfgasveit sem mislíkaði aðgerðir Whitmer til að stemma stigu við kórónuveirufaraldrinum.

Hafa keypt lyfið Paxlovid til meðhöndlunar á Covid-sjúklingum
Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið um kaup á lyfinu Paxlovid til meðhöndlunar einstaklinga sem eru smitaðir af kórónuveirunni (SARS-CoV-2 ) og í hættu á að veikjast alvarlega af völdum hennar.

Bólusetja gegn kórónuveirunni með munnúða
Kínverjar hafa, fyrstir þjóða, hafið bólusetningar gegn COVID-19 með munnúða í stað sprautu.

Mikil aukning á greiðslum úr sjúkrasjóðum
Fjöldi þeirra hjúkrunarfræðinga sem fengu sjúkradagpeninga úr styrktarsjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á síðasta ári náði næsum fimm hundruð manns, sem gera um 3,2 prósent alls félagsfólks.

Afnám aðgerða gæti útskýrt umframdauðsföll
Sóttvarnalæknir segir að afnám sóttvarnaraðgerða gæti útskýrt umframdauðsföll hér á landi á þessu ári. Ekki mældist aukning í umframdauðsföllum á Íslandi árin 2020 og 2021.

Bein útsending: Gefa áfallastjórnun stjórnvalda háa einkunn
Nefnd sem skipuð var til að greina áfallastjórnun íslenskra stjórnvalda í Covid-19 faraldrinum hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni og var hún rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Nefndin mun kynna skýrsluna í málstofu í Norræna húsinu kl. 14.30 í dag.