
Gervigreind

Pútín segir Musk óstöðvandi
Erfðatækni, gervigreind og Elon Musk var á meðal þess sem bar á góma í viðtali bandaríska sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem var birt á samfélagsmiðlinum X í nótt.

„Ég held að fólk ætti að reyna að setja sig í þessi spor“
Kynferðislegar myndir af bandarísku poppstjörnunni Taylor Swift, sem skapaðar voru af gervigreind, fóru eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla á dögunum. Tæknin hefur þróast á ógnarhraða síðustu misseri og hver sem er getur í raun beitt henni. Talskona Stígamóta segir nýjan veruleika blasa við.

Hægt að forrita og prófa kappakstursbíla á UT-messunni í dag
Um fimmtán þúsund manns hafa síðustu ár gert sé dagamun á Tæknidegi UT-messunnar. Framkvæmdastjóri á von á því sama í Hörpu dag. UT-messan er bæði ráðstefna og sýning fyrir fagfólk í upplýsingatækni.

„Fuglarnir átu fartölvuna!“
Eitthvað varð ég að gefa þeim. Smáfuglunum. Greyjunum. Vetrarfóðrun er víst nauðsynleg til að sem flestir þeirra lifi af. Ekki átti ég neitt meira kornmeti í húsinu. Af hverju setti ég gæsalappir utan um titilinn? Jú, það voru líka gæsaspor í snjónum svo mér fannst rétt að þær fengju að vera með.

„Ég er ekki ég, ég er annar“
Ég rakst um daginn á auglýsingu frá ansi hreint sniðugu sænsku fyrirtæki, sem hefur þróað gervigreindarlausn sem sendir út tölvupósta og skilaboð, svarar og bókar sölufundi, allt í nafni nafngreindra sölufulltrúa. Þetta fyrirtæki virðist fara vel af stað og mikill áhugi á þjónustunni. Það kemur ekki á óvart, enda mikill ávinningur af sjálfvirkninni.

Nektarmyndir af Swift skapaðar af gervigreind í dreifingu
Klámfengnar myndir af bandarísku poppstjörnunni Taylor Swift, sem skapaðar voru af gervigreind, dreifðust eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla á dögunum. Þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjanna hafa síðan gert ákall eftir löggjöf gegn fölsuðu myndefni af þessu tagi.

Við sjáum fyrir endann á sveiflunum
Í upphafi síðasta árs horfðum við björtum augum á verðbréfamarkaðina. Við vonuðum að vaxtahækkanir væri langt komnar og að eftir þungt ár á verðbréfamörkuðum biðu okkar betri tímar. Næstu mánuðir buðu aftur á móti upp á áframhaldandi þyngsli.

Hemmi Gunn vekur þingheim til vitundar um gervigreind
Björn Leví Gunnarsson Pírati boðar frumvarp um gervigreind og hefur sent þingmönnum drög. Hann segir að bregðast verið við strax.

Samsung veðjar á gervigreind í nýjum Galaxy síma
Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti í gær hulunni af nýjasta snjallsímanum sínum af gerðinni Galaxy S24. Fyrirtækið segir símann nýtast við byltingarkennda tækni sem muni breyta því hvernig fólk notar síma.

Gervigreind - Bylting á ógnarhraða
Samfélög um heim allan eru ekki tilbúin fyrir byltinguna sem er framundan. Þróun í gervigreind mun raska lífi allra jarðarbúa fyrr en fólk áttar sig á. Almenningur getur vissulega notað hana til þess að auka afköst, en það kemur á hendi þeirra fárra sem kunna að nýta sér hana.

Á að banna notkun gervigreindar í háskólum?
Um allan heim eru háskólar að takast á við spurninguna um notkun gervigreindar í akademísku umhverfi. Spurningin um notkun gervigreindar í háskólum vekur upp mikilvæga umræðu um framtíð menntunar. Háskóli Íslands hefur tekið skrefið í að setja fram leiðbeiningar um notkun gervigreindar, en spurningin er hvort frekari aðgerðir þurfi til að tryggja samræmi og siðferðislega notkun.

Svona notar þú smáforritið sem notað var í Skaupinu
Eitt atriði í Skaupinu í ár hefur vakið mikla athygli. Í atriðinu sem um ræðir mátti sjá þónokkra þjóðþekkta einstaklinga stíga á stokk, en þar má nefna Boga Ágústsson, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Ólaf Ragnar Grímsson.

Þátttakan skapi gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun
Þátttaka Íslands í InvestEU áætluninni mun skapa gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun með áherslu á stafræna þróun og grænar lausnir. Þetta segir nýsköpunarráðherra sem kynnti verkefnið í morgun.

Skaupinu hafi tekist að forðast stærsta álitamálið í þætti Hemma
Heimspekingurinn Henry Alexander Henrysson segir gríðarlega mikilvægt að rætt sé um hvað sé gert með svokallaða deepfake-tækni og við hvaða aðstæður hún sé notuð.

Gervigreind vekur Hemma til lífsins meðan löggjafinn sefur
Pétur Eggerz Pétursson hjá Overtune er maðurinn á bak við hið afar umdeilda atriði þar sem Hemmi Gunn vaknaði til lífsins í tónlistaratriði. Hann kallar eftir því að löggjafinn setji upp hanskana því framtíðin er mætt.

Bróðir Hemma: „Ég er ofboðslega sár yfir þessu“
Ragnar Gunnarsson, bróðir Hermanns heitins Gunnarssonar, segist mjög sár yfir innkomu Hemma í Áramótaskaupið. Í atriðinu sem um ræðir mátti sjá þónokkra þjóðþekkta einstaklinga stíga á stokk, en þar má nefna Boga Ágústsson, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Ólaf Ragnar Grímsson.

Krossbrá þegar hann sá látinn föður sinn á skjánum
Það atriði Skaupsins sem helst náði að valda einhverju róti var atriði þeirra Audda og Steinda þar sem þeir sýndu möguleika gervigreindarinnar. Syni Hemma krossbrá.

Fengu leyfi frá fjölskyldu Hemma Gunn
Skemmtikraftarnir Auðunn Blöndal og Steindi Jr. spurðu fjölskyldu Hermanns heitins Gunnarssonar, Hemma Gunn, leyfis áður en þeir nýttu gervigreind til þess að hafa Hemma með í Áramótaskaupinu í ár.

Ferlar og gervigreind: Að breyta atvinnugreinum og endurskilgreina skilvirkni
Á tímum stafrænna umbreytinga hefur sameining ferla og gervigreindar (AI) komið fram sem öflugt afl sem endurmótar atvinnugreinar, eykur framleiðni og endurskilgreinir skilvirkni. Allt frá framleiðslu og heilsugæslu til fjármála og þjónustu við viðskiptavini, gervigreindardrifnir ferlar hafa orðið lykilatriði í að knýja fram nýsköpun og sjálfbæran vöxt. Í þessari grein munum við kanna djúpstæð áhrif gervigreindar á ferla og hvernig það er að gjörbylta fyrirtækjum um allan heim.

New York Times stefnir OpenAI og Microsoft
Stjórnendur bandaríska dagblaðsins New York Times hafa höfðað mál gegn fyrirtækjunum OpenAI og Microsoft fyrir meintan þjófnað á höfundarréttarvörðu efni blaðsins.

Íslenskt fyrirtæki á lista Financial Times yfir framúrskarandi fyrirtæki
Íslenska tæknifyrirtækið Treble Technologies, sem sérhæfir sig í hljóðhermun, er á lista Financial Times yfir þau fyrirtæki sem þóttu skara fram úr á árinu.

Gervigreind eða ekki - þar er efinn
Um það bil 99% af færslum sem tengjast gervigreind á samfélagsmiðlum eru af tvennum toga: Annars vegar fyndnar frásagnir af röngum svörum mállíkana við illa orðuðum fyrirspurnum. Hins vegar sniðugar myndir búnar til af gervigreind. Miðað við þetta gæti virst rétt að líta á stóru mállíkönin sem tískufyrirbrigði sem fljótt muni hverfa af sjónarsviðinu. En ekkert er fjær sannleikanum.

Gervigreindin gefur ráð: Svona færðu draumastarfið þitt
Að sjálfsögðu leitar Atvinnulífið í AI Chat þegar það á við og auðvitað klárum við ekki árið nema að athuga hvað gervigreindin segir okkur með starfsframann og draumastarfið.

Evrópusambandið setur lög um gervigreind
Evrópuþingi hefur náð samkomulagi við öll aðildarríki sambandsins um að sett verði lög um notkun gervigreindar og þróun hennar. Þetta er í fyrsta sinn sem ákveðið er að setja lög um gervigreind.

Gervigreind og hröð og hæg hugsun
Samkvæmt gervigreindarbloggaranum Alberto Romero var upphafið að þeirri atburðarás sem átti sér stað innan OpenAI fyrirtækisins, sem þróar ChatGPT mállíkanið, fyrir um 10 dögum síðan líklega tengt ágreiningi varðandi nýja Q* (Q-Star) líkanið sem er talið geta leyst flókin stærðfræðileg vandamál, eitthvað sem núverandi stóru tungumálalíkön geta ekki gert.

Óttuðust að ný gervigreind gæti ógnað mannkyninu
Starfsmenn bandaríska tæknifyrirtækisins OpenAI sem sérhæft hefur sig í gervigreind, eru sagðir hafa viðrað áhyggjur sínar af nýrri gervigreind sem fyrirtækið var að vinna að áður en Sam Altman, forstjóri þess var látinn fjúka.

Altman snýr aftur til OpenAI
Sam Altman, einn stofnenda OpenAI, mun snúa aftur í forstjórastólinn aðeins dögum eftir að stjórn fyrirtækisins lét hann fjúka. Ákvörðunin um að láta Altman fara var harðlega mótmælt og niðurstaðan sú að stjórnarmeðlimum verður skipt út fyrir nýja.

Hraðar og óvæntar vendingar hjá stærsta gervigreindarfyrirtækinu
Microsoft hefur ráðið tvo stofnendur fyrirtækisins OpenAI til að leiða nýtt rannsóknarteymi á sviði gervigreindar, nokkrum dögum eftir að stjórn OpenAI rak annan þeirra og hinn sagði upp í mótmælaskyni. OpenAI er fyrirtækið á bakvið Chat GPT gervigreindina vinsælu.

Skera niður hjá úreltri Alexu
Forsvarsmenn Amazon hafa ákveðið að segja upp starfsmönnum sem komið hafa að þróun talgervilsins Alexa. Meiri áherslu á að leggja á þróun gervigreindar eins og ChatGPT.

Innleiða stafrænan íslenskukennara hjá sveitarfélögum
Sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Akranes, Mýrdalshreppur, Ísafjarðarbær og Mosfellsbær hafa keypt og innleitt stafræna íslenskukennarann Bara tala sem byggður er á gervigreind, fyrir starfsfólkið sitt.