Box

Fréttamynd

Hatton gerir sig heimakominn í Vegas

Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton hefur nú komið sér vel fyrir í íbúð sem hann tók sér á leigu í Las Vegas, rúmum hálfum mánuði fyrir risabardaga sinn við Floyd Mayweather þar í borg.

Sport
Fréttamynd

Upphitun fyrir bardaga ársins hefst annað kvöld

Nú styttist óðum í bardaga ársins í hnefaleikunum þegar þeir Ricky Hatton og Floyd Mayweather eigast við í Las Vegas í Bandaríkjunum þann 8. desember nk. Hvorugur þeirra hefur tapað bardaga á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Cotto sigraði á stigum

Miguel Cotto vann sinn stærsta sigur á ferlinum í nótt þegar hann hafði betur gegn Shane Mosley á stigum í bardaga þeirra um WBA beltið í veltivigt sem fram fór í New York. Bardaginn var sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Mosley lofar flugeldasýningu í kvöld

Von er á fjörugum bardaga í nótt þegar hinn ósigraði Miguel Cotto frá Portó Ríkó tekur á móti goðsögninni Shane "Sykurpúða" Mosley í veltivigt hnefaleika. Bardaginn verður í beinni á Sýn og hefst útsending klukkan eitt í nótt.

Sport
Fréttamynd

Calzaghe vill mæta Hopkins næst

Umboðsmaður Walesverjans Joe Calzaghe segir skjólstæðing sinn tilbúinn að mæta "Böðulnum" Bernard Hopkins í næsta bardaga og segir Hopkins mega ráða því hvar og hvenær bardaginn fari fram. Calzaghe er ósigraður eftir fínan sigur á Dananum Mikkel Kessler um helgina.

Sport
Fréttamynd

Calzaghe hirti öll beltin

Joe Calzaghe vann Danann Mikkel Kessler á Þúsaldarvellinum í Cardiff í gær og er þar með orðinn handhafi allra titlanna í ofurmillivigt.

Sport
Fréttamynd

Tíu ára sigurganga Calzaghe á enda?

Búast má við rosalegum bardaga á laugardagskvöldið þegar hinn ósigraði Joe Calzaghe frá Wales leggur WBO beltið sitt í yfirmillivigt undir gegn Dananum Mikkel Kessler á Þúsaldarvellinum í Cardiff.

Sport
Fréttamynd

Pavlik lumbraði á Taylor

Kelly Pavlik varð í nótt óumdeildur heimsmeistari í millivigt hnefaleika þegar hann hirti titilinn af landa sínum Jermain Taylor í Atlantic City. Taylor var álitinn sigurstranglegri fyrir bardagann en annað átti heldur betur eftir að koma í ljós.

Sport
Fréttamynd

Tyson gengst við dópákærum

Fyrrum heimsmeistarinn í þungavigt, Mike Tyson, hefur viðurkennt fyrir rétti að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna í Arizona í fyrra. Hann hafði upphaflega neitað ákærum en viðurkenndi allt fyrir rétti í dag. Lögmaður hans segir Tyson hafa nú hafa verið edrú í 8 mánuði eftir meðferð við kókaínfíkn.

Sport
Fréttamynd

De la Hoya vill mæta Hatton

Bandaríska hnefaleikagoðsögnin Oscar de la Hoya segist stefna á að fresta því að leggja hanskana á hilluna um eitt ár til að berjast við Ricky Hatton. Hoya langar að berjast þrisvar í viðbót áður en hann hættir og segist vonast til að Hatton nái að sigra Floyd Mayweather í desember.

Sport
Fréttamynd

Mayweather mætti í United-treyju

Bandaríski hnefaleikarinn Floyd Mayweather gerir nú allt sem hann getur til að koma andstæðingi sínum Ricky Hatton úr jafnvægi fyrir risabardaga þeirra í Las Vegas þann 8. desember.

Sport
Fréttamynd

Hatton er bara fitubolla

Floyd Mayweather lætur ekki sitt eftir liggja til að kynda undir risabardaga sinn við Englendinginn Ricky Hatton. Hinn kjaftfori Mayweather kallar andstæðing sinn Vicky Fatton og segir hann loksins vera að berjast við almennilegan andstæðing.

Sport
Fréttamynd

Afþakkaði fund með Naomi Campbell

Breska hnefaleikaundrið Amir Khan vakti athygli í heimalandi sínu á dögunum þegar hann afþakkaði tækifæri til að hitta ofurfyrirsætuna Naomi Campbell. Khan er nú að undirbúa sig fyrir erfiðasta bardaga sinn á ferlinum til þessa og afþakkaði því að sitja fyrir á síðum Vogue til að einbeita sér að þjálfuninni.

Sport
Fréttamynd

Klitschko frestar endurkomunni

Fyrrum WBC meistarinn Vitali Klitschko hefur neyðst til að fresta endurkomu sinni inn í hnefaleikahringinn vegna meiðsla. Hinn 36 ára gamli Úkraínumaður hafði ætlað að berjast við Bandaríkjamanninn Jameel McCline þann 22. þessa mánaðar í Munchen, en bakmeiðsli gera það að verkum að ekkert verður úr bardaganum. Vitali er eldri bróðir IBF meistarans Vladimir Klitschko.

Sport
Fréttamynd

Klitschko náði fram hefndum

Úkraínumaðurinn Wladimir Klitschko náði í gærkvöld fram hefndum gegn Bandaríkjamanninum Lamon Brewster þegar þeir áttust við öðru sinni á þremur árum. Klitschko varði þarna IBF titil sinn í þungavigt og hefndi fyrir óvænt tap fyrir Bandaríkjamanninum árið 2004. Dómarinn stöðvaði bardagann í upphafi sjöundu lotu eftir að frábær flétta frá Klitschko vankaði Brewster.

Sport
Fréttamynd

Mayweather boðnar 630 milljónir fyrir að mæta Hatton

Umboðsmaður breska hnefaleikarans Ricky Hatton hefur boðist til að greiða Floyd Mayweather 630 milljónir króna fyrir að taka hanskana fram á ný og berjast við Hatton. Mayweather hefur látið í það skína að hann sé tilbúinn að berjast við Hatton, en það verður þá ekki ókeypis frekar en annað þegar stærstu nöfnin í hnefaleikunum eru annars vegar.

Sport
Fréttamynd

Hatton rotaði Castillo í fjórðu lotu

Englendingurinn Ricky Hatton olli 10,000 stuðningsmönnum sínum ekki vonbrigðum í nótt þegar hann sigraði Jose Luis Castillo með yfirburðum í Las Vegas í nótt. Fyrirfram var búist við jöfnum bardaga en hann var eign Hatton frá upphafi til enda. Hatton var ákaft fagnað af fjölda Englendinga sem fylgdu honum yfir hafið og þar á meðal voru kappar eins og Wayne Rooney, Robbie Williams og Vinnie Jones.

Sport
Fréttamynd

10.000 stuðningsmenn fylgja Hatton til Las Vegas

Ricky Hatton mun fá góðan stuðning í nótt þegar hann mætir Jose Luis Castillo í einum af bardögum ársins í hnefaleikaheiminum. Búist er við að um 10 þúsund manns muni fylgja Englendingnum yfir Atlantshafið og þar á meðal verður knattspyrnumaðurinn Wayne Rooney. Bardaginn í Las Vegas verður sýndur beint á Sýn í nótt.

Sport
Fréttamynd

Hatton vill bara stóra andstæðinga framvegis

Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton segist aðeins vilja berjast við "stóra" andstæðinga framvegis á ferli sínum, en hann mætir einum slíkum í Jose Luis Castillo í Las Vegas aðfararnótt sunnudagsins. Bardaginn verður sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Toney í bann vegna steraneyslu

Þrefaldi heimsmeistarinn James Toney hefur verið dæmdur í eins árs keppnisbann frá hnefaleikum eftir að hafa í annað skipti á ferlinum fallið á lyfjaprófi vegna steraneyslu. Toney féll á lyfjaprófinu í maí eftir að hann sigraði Danny Bathelder í bardaga, en sá féll reyndar einnig á lyfjaprófi sem tekið var fyrir bardagann. Toney er 38 ára gamall og hefur verið atvinnumaður í nær tvo áratugi.

Sport
Fréttamynd

Castillo: Hatton hefur aldrei mætt manni eins og mér

Jose Luis Castillo gefur lítið fyrir flekklausan árangur andstæðings síns Ricky Hatton fyrir bardaga þeirra í Las Vegas þann 23. júní næstkomandi. Hatton hefur unnið alla 42 bardaga sína á ferlinum en Castillo vill meina að margir þeirra hafi komið gegn lélegum andstæðingum.

Sport
Fréttamynd

Cotto rotaði Judah í elleftu lotu

Miguel Cotto varði í nótt WBA titil sinn í millivigt hnefaleika þegar hann rotaði andstæðing sinn Zab Judah í 11. lotu bardaga þeirra í Madison Square Garden í New York. Judah náði sér aldrei á strik eftir að hafa fengið skurð snemma í bardaganum. Cotto náði honum niður á hné í níundu lotu og kláraði dæmið með góðum vinstri krók í þeirri elleftu. Bardaginn var stöðvaður skömmu síðar.

Sport
Fréttamynd

Zab Judah mætir í hringinn á ný í kvöld

Villingurinn Zab Judah stígur í kvöld inn í hnefaleikahringinn í fyrsta skipti í meira en ár eftir keppnisbann þegar hann tekur á móti Miguel Cotto í bardaga um WBA beltið í veltivigt. Bardaginn verður sýndur beint á Sýn. Judah stormaði inn á sjónvarsviðið um aldamótin og var ósigrandi, en skapsmunir hans og óútreiknanleg hegðun hans hafa gert honum erfitt fyrir allar götur síðan.

Sport
Fréttamynd

De la Hoya - Mayweather rakaði inn 7,6 milljarða

Bardagi þeirra Oscar de la Hoya og Floyd Mayweather á dögunum stóð undir væntingum þegar litið er á fjármálahliðina en nú hefur verið staðfest að bardaginn rakaði 7,6 milljörðum króna í kassann og er því dýrasti bardagi allra tíma.

Sport
Fréttamynd

Diego Corrales lést í bifhjólaslysi

Bandaríski hnefaleikakappinn Diego Corrales lét lífið í bifhjólaslysi í Las Vegas í gærkvöldi. Hann var 29 ára gamall og varð á ferlinum heimsmeistari í tveimur þyngdarflokkum hnefaleika. Dauðsfall hans kemur tveimur árum eftir frægasta bardaga hans þegar hann sigraði Luis Castillo þrátt fyrir að hafa tvisvar verið laminn í gólfið.

Sport
Fréttamynd

Mayweather vann nauman sigur á De la Hoya

Floyd Mayweather stóð við stóru orðin í nótt þegar hann sigraði Oscar de la Hoya naumlega á stigum í bardaga þeirra um WBC titilinn í léttmillivigt. Ekkert varð þó úr barsmíðunum sem Mayweather var búinn að lofa, því De la Hoya barðist hetjulega og veitti andstæðingi sínum góða keppni.

Sport
Fréttamynd

Mayweather - De la Hoya í beinni í nótt

Bardagi ársins í hnefaleikaheiminum verður í Las Vegas í nótt þar sem hinn ósigraði og yfirlýsingaglaði Floyd Mayweather tekur á móti gulldrengnum Oscar de la Hoya. Sjónvarpsstöðin Sýn sýnir bardagann beint og hefst útsending klukkan eitt í nótt.

Sport
Fréttamynd

Dýrasti boxbardagi sögunnar á laugardaginn

Hnefaleikaheimurinn bíður nú spenntur eftir bardaga ársins á laugardaginn þegar Oscar de la Hoya tekur á móti hinum ósigraða Floyd Mayweather í Las Vegas. Þetta verður dýrasti boxbardagi sögunnar og þegar er búið að selja aðgöngumiða fyrir 1,2 milljarða króna á MGM Grand. Miðar á bardagann ganga nú kaupum og sölum fyrir allt að 1,3 milljónir króna.

Sport
Fréttamynd

Davíð lagði Golíat - Valuev tapaði

Rússneska tröllið Nikolai Valuev tapaði fyrsta bardaga sínum á ferlinum í nótt þegar hann tapaði fyrir Ruslan Chagaev frá Úsbekistan á stigum í bardaga þeirra um WBA beltið í þungavigt. Valuev var ósigraður í 46 bardögum. Hinn hugaði andstæðingur hans lét sig ekki muna um að vera feti lægri og 40 kílóum léttari og vann verðskuldaðan sigur.

Sport
Fréttamynd

Ófreskjan mætir Hvíta-Tyson á Sýn í kvöld

Það verður sannkallaður þungavigtarbardagi á dagskrá Sýnar í kvöld þegar rússneska tröllið Nikolai Valuev tekur á móti Ruslan Chagaev frá Úsbekistan í Stuttgart í Þýskalandi. Valuev er handhafi WBA beltisins og hefur ekki tapað í 46 bardögum. Bein útsending Sýnar hefst klukkan 21:55. Chagaev hefur notað óhefðbundnar aðferðir við æfingar til að búa sig undir að mæta tröllinu.

Sport