Verðlag
1 2 3 4 5 6 7 … 32 ›
Þarf að auka valdheimildir ríkissáttasemjara til að grípa inn í vinnudeilur Til að styrkja þjóðhagslega ábyrgð við gerð kjarasamninga væri réttast að breyta lögum þannig að ríkissáttasemjari geti komið fram með miðlunartillögu án samþykkis frá forystufólki launaþegahreyfingar, að mati hagfræðiprófessors og forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Þeir leggja sömuleiðis til, líkt og gert er á hinum Norðurlöndunum, að miða launasetningu við afkomu útflutningsgreina til að koma í veg fyrir kjarasamninga sem ýta undir verðbólgu. Innherji 10.11.2024 13:03
„Græni punkturinn“ allt að helmingi dýrari en í Bónus og Prís Fjöldi vara sem merktar eru lágvöruverði í Kjörbúðinni eru í raun þriðjungi til helmingi dýrari en í Bónus eða Prís samkvæmt athugun verðlagseftirlits ASÍ. Neytendur 5.11.2024 17:12
Spá auknu atvinnuleysi og hagvexti Útlit er fyrir að verg landsframleiðsla aukist um 0,1% í ár. Samkvæmt þjóðhagsreikningum dróst verg landsframleiðsla saman um 1,9% á fyrri hluta ársins sem einkenndist af neikvæðum áhrifum utanríkisviðskipta og birgðabreytinga, meðal annars vegna loðnubrests. Viðskipti innlent 4.11.2024 10:26
Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ Innherji 31.10.2024 10:59
Fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ eftir ákvörðun Hagstofunnar Ákvörðun Hagstofunnar um að skilgreina fyrirhugað kílómetragjald á öll ökutæki sem veggjald þannig að það sé tekið inn í mælingu á vísitölu neysluverðs kemur á óvart, að mati hagfræðings, og sú nálgun ólík þeim alþjóðlegu stöðlum og regluverki sem stofnunin hefur í meginatriðum fylgt í sambærilegum málum. Hann telur að með þessari niðurstöðu sé fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ en ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa lækkaði mikið á markaði í dag. Innherji 30.10.2024 16:48
Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur hjöðnun verbólgu, umfram það sem Seðlabankinn spáði í ágúst, auka líkur á því að bankinn lækki vexti við ákvörðun í nóvember. Hjöðnunin var drifin áfram af minni hækkun húsnæðis og segir ráðuneytið segir að spenna á húsnæðismarkaði virðist loks fara minnkandi. Viðskipti innlent 30.10.2024 16:32
Kílómetragjaldið fer inn í vísitöluna og krafa verðtryggðra ríkisbréfa lækkar Fyrirhuguð upptaka kílómetragjalds á öll ökutæki í staðinn fyrir olíugjald verður tekið með í útreikninga á vísitöluneysluverðs, staðfestir Hagstofan, en óvissa hefur verið meðal markaðsaðila hvernig stofnunin myndi meðhöndla útfærslu á þeirri breytingu. Ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa hefur lækkað skarpt í morgun þar sem nú er ljóst að mæld verðbólga verður hærri en ella í upphafi næsta árs vegna ákvörðunar Hagstofunnar. Innherji 30.10.2024 11:15
Verðbólga hjaðnar en kílómetragjaldið verður tekið inn í mælingu Verðbólga hjaðnar um 0,3 prósentustig milli mánaða og mælist nú 5,1 prósent. Hagstofan mun taka nýtt kílómetragjald inn í vísitöluna en yrði það ekki gert myndi mæld verðbólga hjaðna enn frekar. Viðskipti innlent 30.10.2024 09:06
Verðbólguhjöðnun í kortunum sem gæti opnað á stóra vaxtalækkun í nóvember Nokkuð skiptar skoðanir eru á meðal greinenda og hagfræðinga hversu hratt verðbólgan mun halda áfram að ganga niður þegar mælingin fyrir október verður kunngjörð síðar í vikunni, sú síðasta áður en peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næsta mánuði. Gangi bjartsýnustu spár eftir um að árstaktur verðbólgunnar muni lækka niður í fimm prósent ætti það að auka líkur á að Seðlabankinn telji forsendur til að íhuga að minnsta kosti 50 punkta vaxtalækkun. Innherji 28.10.2024 18:00
Matvara hækkar með rykk eftir tveggja mánaða lækkun Eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hækkar það nú með nokkrum rykk. Hækkunin milli september og október nemur einni prósentu, að mestu leyti vegna hækkunar á kjötvöru. Neytendur 22.10.2024 14:44
Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Allir nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabankans vildu lækka stýrivexti um 0,25 prósentur eins og var gert fyrir tveimur vikum. Herdís Steingrímsdóttir hefði þó fremur kosið að halda vöxtum óbreyttum. Viðskipti innlent 16.10.2024 16:41
Hvað verður um verðbólguna í janúar? Nokkuð miklar líkur eru á því að verðbólga muni lækka mjög hratt í upphafi næsta árs og það hraðar en bjartsýnustu verðbólguspár gera ráð fyrir. Sú þróun mun skapa umhverfi til skarpara og hraðara vaxtalækkunarferlis en flestir telja líklegt. Innherji 16.10.2024 09:19
Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Vísitala íbúðaverðs mældist 108,4 stig í september og lækkaði um 0,28 prósent á milli mánaða og er það í fyrsta skiptið sem íbúðaverð lækkar á milli mánaða frá því í janúarmánuði. Viðskipti innlent 15.10.2024 15:48
Spá minnstu verðbólgunni í þrjú ár Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga lækki úr 5,4 prósentum í 5,1 prósent milli mánaða í október. Verðbólgan var síðast í 5,1 prósenti í desember árið 2021. Neytendur 10.10.2024 10:43
Betra að byrja en bíða þangað til hagkerfið er „sannarlega komið í kreppu“ Peningastefnunefnd mat áhættuna af því að byrja vaxtalækkunarferlið minni heldur en að bíða enn lengur og þurfa þá mögulega ráðast í hraðar lækkanir samhliða því að hagkerfið væri að sigla inn í „kreppu,“ að sögn seðlabankastjóra, sem hefur væntingar um að verðbólgan sé að fara koma skarpt niður og aðhaldsstigið gæti því aukist enn frekar. Falli hlutirnir með nefndinni fram að næsta fundi seint í nóvember megi búast við frekari lækkunum en nefndin var ekki sérstaklega með augun á vaxtalækkunum stóru erlendu seðlabankanna að undanförnu við ákvörðun sína þótt ljóst sé að Ísland er mjög tengt þróuninni í Bandaríkjunum. Innherji 3.10.2024 07:50
Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2.10.2024 22:01
Ræðst í fyrstu vaxtalækkunina í fjögur ár samhliða minnkandi verðbólguþrýstingi Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta, fyrsta vaxtalækkun nefndarinnar frá árslokum 2020, samhliða því að undirliggjandi verðbólga hefur minnkað, verðbólguálág lækkað og merki um frekari kólnun í efnahagslífinu. Mikil óvissa var um hvers mætti vænta við vaxtaákvörðun nefndarinnar, fjárfestar og markaðsaðilar skiptust í tvær fylkingar hvort hún myndi hefja vaxtalækkunarferlið, en nefndin undirstrikar hins vegar að kröftug innlend eftirspurn kalli á „varkárni.“ Innherji 2.10.2024 09:16
Markaðurinn klofinn hvers megi vænta nú þegar vextirnir eru á „snúningspunkti“ Flest hefur fallið með peningastefnunefnd frá síðustu ákvörðun með lækkandi verðbólgu og verðbólguvæntingum, sem hefur um leið þýtt enn hærra raunvaxtastig, og nefndin mun því velja á milli þessa að milda tóninn í yfirlýsingu sinni eða ráðast í sína fyrstu vaxtalækkun frá tímum faraldursins – sem gæti jafnvel orðið meiri en 25 punktar. Markaðsaðilar eru klofnir í afstöðu sinni til ákvörðunar nefndarinnar í vikunni, samkvæmt könnun Innherja, en þeir sem vænta óbreyttra vaxta telja að bankinn vilji sjá skýrari merki áður en hann breytir um kúrs en aðrir segja að aðhaldsstigið sé nú þegar mun meira en þurfi til að ná verðbólgu niður í markmið. Innherji 30.9.2024 11:08
Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Verðbólga hefur ekki mælst minni í tæp þrjú ár og hjaðnar á milli mánaða. Verðlækkun í mötuneytum vegna gjaldfrjálsra máltíða í grunnskólum hefur töluverð áhrif. Hagfræðingur hjá Viðskiptaráði telur þau eiga eftir að ganga til baka og raunar skila sér í aukinni verðbólgu. Viðskipti innlent 27.9.2024 12:01
Verulega minni verðbólga Verðbólga mælist nú 5,4 prósent og hefur minnkað um 0,6 prósentustig frá síðasta mánuði. Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í september 2024 lækkar um 0,24 prósent frá fyrri mánuði. Viðskipti innlent 27.9.2024 09:17
Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Aðalhagfræðingur Samtaka Iðnaðarins segir misskilnings gæta í ummælum Seðlabankastjóra um stöðu byggingageirans og hússnæðisskort. Seðlabankastjóri tali með skringilegum hætti um áhrif hárra vaxta á greinina, líklega í tilraun til að halda verðbólguvæntingum niðri. Viðskipti innlent 26.9.2024 12:17
Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Greiningadeild Arion banka spáir því að verðbólga verði 3,6 prósent í lok næsta árs og aðeins 3,1 prósent í lok spátíma árið 2027. Spáin gerir ráð fyrir því að Hagstofan taki nýtt kílómetragjald ekki inn í vísitölu neysluverðs, sem muni minnka verðbólgu um heilt prósentustig. Viðskipti innlent 26.9.2024 10:15
Hafa rúmir opnunartímar áhrif á verðlag? Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir það mjög furðulegt ef matvöruverslanir myndu ekki stytta opnunartíma sína ef það gæti gert þeim kleift að lækka verð á matvörum. Hún telur það áhugavert álitamál og bendir á að matvöruverslanir eru með rúman opnunartíma hér á landi. Neytendur 24.9.2024 20:04
Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Seðlabankinn hefur brugðist lögbundnu hlutverki sínu og vinnur gegn fólkinu í landinu, að mati formanns VR. Hann segir nauðsynlegt að verkalýðshreyfingin komist út úr kjarasamningum sem fyrst, „með góðu eða illu“. Innlent 24.9.2024 14:21
Pallborðið: „Taumlaus græðgi“ eða verðið á hveiti? Staða heimilanna og fyrirtækja á haustmánuðum, útlitið í efnahagsmálum og efnd loforða í tengslum við kjarasamninga verða til umræðu í Pallborðinu í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 12.15. Innlent 24.9.2024 10:44
Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Greining Íslandsbanka spáir því að stýrivextir verði komnir í 8,25 prósent um mitt næsta ár, 7,5 prósent í lok árs 2025 og niður í 5,5 prósent í lok árs 2026. Þetta kemur fram nýrri þjóðhagsspá bankans. Stýrivexti eru í dag 9,25 prósent og hafa verið óbreyttir í meira en ár. Viðskipti innlent 23.9.2024 14:16
Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Framkvæmdastjóri Tes og kaffis segir kaffiverð líklega koma til með að hækka á næstu mánuðum. Hann telur ekki að nýir samkeppnisaðilar myndu geta náð verðinu niður, líkt og á matvörumarkaði með tilkomu Prís. Neytendur 18.9.2024 21:38
„Merkilega sterkar“ kortaveltutölur drifnar áfram af aukinni neyslu erlendis Heildarvelta innlendra greiðslukorta jókst talsvert í liðnum mánuði, drifin áfram af meiri neyslu Íslendinga á ferðalögum erlendis, og voru tölurnar „merkilega sterkar,“ að sögn hagfræðings í Greiningu Arion banka. Þróunin í kortaveltunni getur gefið vísbendingar um þróttinn í einkaneyslu landsmanna, sem peningastefnunefnd mun horfa til þegar tilkynnt verður um næstu vaxtaákvörðun eftir tvær vikur, en sú fylgni hefur hins vegar veikst nokkuð á árinu. Innherji 18.9.2024 13:06
Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktun með stuðningi þingmanna Pírata og Samfylkingar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gagnvart Ísrael. Engin stjórnarmál voru á dagskrá Alþingis í dag. Innlent 17.9.2024 20:25
Vænta þess að verðbólgan verði orðin nálægt fimm prósentum í árslok Útlit er fyrir að árstaktur verðbólgunnar muni lækka nokkuð í septembermánuði, ef marka má meðalspá banka og greinenda, og hún verði komin nálægt fimm prósentum í árslok og hafi þá ekki verið lægri í þrjú ár. Þrátt fyrir að verðbólgan sé að hjaðna er talið afar ósennilegt að peningastefnunefnd Seðlabankans hefji vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman eftir um tvær vikur. Innherji 16.9.2024 14:43