Salan á Íslandsbanka
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 17 ›
Kraumar undir niðri í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins Orðrómur um hugsanlegt framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi er enn ein vísbending um að Guðlaugur Þór og formaðurinn Bjarni Benediktsson gangi ekki í takt. Og að innan flokks skipist menn í sveitir. Líklega er um að ræða eitt verst geymda leyndarmál í íslenskum stjórnmálum. Innlent 26.10.2022 15:35
Nokkrir dagar í Íslandsbankaskýrslu Umsagnarfrestur um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka rennur út í dag og nokkrir dagar eru væntanlega í birtingu. Innlent 25.10.2022 15:18
Veita frest að beiðni Bankasýslunnar Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að framlengja frest til að skila umsögnum um drög að skýrslu Ríkisendurskoðunar á sölu hlut ríkisins í Íslandsbanka. Innlent 17.10.2022 19:04
Íslandsbankaskýrslan loks komin í umsagnarferli Ríkisendurskoðun hefur nú sent fjármála- og efnahagsráðuneyti, Bankasýslu ríkisins og stjórn hennar drög að skýrslu embættisins um sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka til umsagnar. Ríkisendurskoðun hefur veitt aðilum frest til miðvikudagsins 19. október til að skila umsögnum. Viðskipti innlent 13.10.2022 13:22
Tuttugu hádegisverðir, rándýr kvöldmatur og ýmsar jólagjafir Á tæpu ári sátu fulltrúar Bankasýslu ríkisins tuttugu hádegisverðarfundi með fulltrúum ýmissa fjármálafyrirtækja. Tvisvar fögnuðu starfsmenn Bankasýslunnar frumútboði á hlutum í Íslandsbanka með kvöldverði. Kvöldverðirnir kostuðu 34 þúsund og 48 þúsund krónur á mann. Viðskipti innlent 10.10.2022 13:06
Rannsóknin sé ítarleg og muni taka af allan vafa Seðlabankastjóri segir að rannsókn Fjármálaeftirlits bankans á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka muni taka af allan vafa hvort innherjaupplýsingar hafi verið nýttar í tengslum við yfirvofandi útboð bankans. Allir þættir málsins verði skoðaðir. Viðskipti innlent 28.9.2022 13:09
Rannsakar hlutabréfaviðskipti dagana fyrir útboð Íslandsbanka Rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka fyrr á árinu beinist meðal annars að mögulega óeðlilegum viðskiptum á hlutabréfamarkaði yfir tveggja daga tímabil áður en útboðið kláraðist. Eftirlitið hefur kallað eftir ítarlegum gögnum frá söluráðgjöfunum um samskipti þeirra við viðskiptavini sína dagana 21. og 22. mars síðastliðinn. Innherji 28.9.2022 07:00
„Þetta voru losaraleg tímamörk“ Almenningur þarf enn að bíða eftir Íslandsbankaskýrslunni. Nú er gert ráð fyrir því að skýrslan verði gerð opinber í október en í upphafi var stefnt að því að skýrslan fengi að líta dagsins ljós í júní. Yfirferð Ríkisendurskoðunar hefur tekið töluvert meiri tíma en áætlað var í upphafii en íkisendurskoðandi segir að töfin eigi sér málefnalegar skýringar. Innlent 26.9.2022 18:51
Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. Innlent 16.9.2022 19:21
Bjarni ekki stressaður fyrir skýrslunni um Íslandsbanka Fjármálaráðherra kveðst enn þeirrar skoðunar að íslenska ríkið eigi að selja þann 100 milljarða króna hlut sem það á eftir í Íslandsbanka. Hann segir að færð hafi verið ágæt rök fyrir því að rannsókn Ríkisendurskoðunar hafi tekið sinn tíma og vonast eftir uppbyggilegum ábendingum úr væntanlegri skýrslu. Innlent 11.9.2022 16:01
Stjórnsýsluúttekt á lokametrunum sem muni „vekja athygli“ Úttekt ríkisendurskoðunar á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka er á lokametrunum og styttist mjög í að hún fari í umsagnarferli. Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, treysti sér ekki til að nefna dagsetningu í þessu samhengi en sagði ljóst að úttektin verði tilbúin fyrir lok þessa mánaðar. Innlent 6.9.2022 15:37
Skýrslan um söluna á Íslandsbanka á lokametrunum Skýrsla ríkisendurskoðunar um afar umdeilda sölu ríkisins á hluta sínum í Íslandsbanka, er væntanleg innan tíðar. Mikil eftirvænting ríkir innan sem utan þings vegna skýrslunnar. Viðskipti innlent 5.9.2022 10:42
Jón Þór ráðgjafi við úttekt á sölunni á Íslandsbanka Jón Þór Sturluson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og fyrrverandi aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, er sérstakur ráðgjafi Ríkisendurskoðunar við vinnu stofnunarinnar að stjórnsýsluúttekt á sölu ríkissjóðs á 22,5 prósenta eignarhlut í Íslandsbanka í útboði til fagfjárfesta í mars á þessu ári. Innherji 5.9.2022 10:01
Sjóðastýringarrisinn Capital minnkar við hlut sinn í ISB fyrir um 800 milljónir Sjóðir í stýringu bandaríska félagsins Captal Group, sem hefur verið einn stærsti eigandi Íslandsbanka allt frá því að hann var skráður á markað í júní í fyrra, hefur á síðustu dögum og vikum verið að minnka við hlut sinn í bankanum. Eignarhlutur sjóðastýringarrisans er nú kominn undir fimm prósent. Innherji 29.8.2022 09:40
Skýrslunni skilað um næstu mánaðamót Búist er við að Ríkisendurskoðun skili skýrslu sinni um sölu á rúmlega 22 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka um næstu mánaðamót. Viðskipti innlent 15.8.2022 10:16
Skýrslan um sölu Íslandsbanka væntanleg í þessum mánuði Skýrsla ríkisendurskoðunar um umdeilda sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur frestast en ríkisendurskoðandi boðar að hún verði lögð fram til þinglegrar meðferðar í þessum mánuði. Innlent 2.8.2022 14:36
Bætt við sig í Íslandsbanka fyrir um 17 milljarða á þremur mánuðum Átta af helstu lífeyrissjóðum landsins, sem eiga það allir sammerkt að fara í dag með meira en eins prósenta hlut í Íslandsbanka, hafa stækkað eignarhlut sinn í bankanum um samanlagt liðlega þriðjung frá því að útboði ríkissjóðs lauk í mars á þessu ári. Sömu lífeyrissjóðir eiga nú samtals tæplega 28 prósenta hlut í Íslandsbanka en fyrir rétt rúmlega þremur mánuðum nam eignarhluturinn um 21 prósenti. Innherji 10.7.2022 13:17
LOGOS fékk alls 6,2 milljónir frá Bankasýslunni Lögmannsstofan LOGOS fékk samtals greitt 1.475.750 krónur fyrir vinnu við lögfræðiálit um hvort sölumeðferð á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka stæðist reglur um jafnræði. Lögmannsstofan hafði áður veitt Bankasýslunni ráðgjöf í aðdraganda sölunnar en var þá ekki sérstaklega beðin um að meta hvort salan stæðist reglur um jafnræði. Innlent 2.7.2022 18:37
Íslandsbanki herðir reglur um viðskipti starfsmanna Íslandsbanki herti reglur sínar um bankaviðskipti starfsmanna bankans þann 15. júní síðastliðinn. Með breytingunum er starfsmönnum einungis heimilt að eiga viðskipti með hlutabréf og skuldabréf bankans á opnu viðskiptatímabili og miðlurum bankans er alfarið meinað að versla með eigin reikning. Viðskipti innlent 22.6.2022 17:24
Bankasöluskýrslu ekki lokið fyrir mánaðarlok Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka verður ekki kláruð fyrir lok þessa mánaðar líkt og stefnt var að. Viðskipti innlent 21.6.2022 08:05
Afvegaleiðing Íslandsbankamálsins Íslandsbankamálið er í sérkennilegum farvegi eftir að Bjarni Benediktsson tók fram fyrir hendurnar á Alþingi um það hvar málið yrði rannsakað og beitti sér fyrir því að Ríkisendurskoðun tæki upp málið. Skoðun 2.6.2022 13:30
Stærsti einkafjárfestirinn selur sig út úr Íslandsbanka Útgerðarfyrirtækið Jakob Valgeir ehf. í Bolungarvík hefur á síðustu vikum selt nær allan eignarhlut sinn í Íslandsbanka fyrir vel á þriðja milljarð króna. Félagið var fyrir söluna stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi bankans með rétt rúmlega eins prósenta hlut. Innherji 2.6.2022 06:01
Bankasýslan taldi sér „skylt“ að upplýsa um „læk“ á færslu um útboð ÍSB Bankasýslan ríkisins taldi sér „skylt“ að afhenda Ríkisendurskoðanda upplýsingar um að Hersir Sigurgeirsson, dósent við Háskóla Íslands, hefði sett „læk“ við færslu á Facebook þar sem framkvæmd útboðs við sölu á stórum hlut ríkissjóðs í Íslandsbanka var harðlega gagnrýnd og eins störf Bankasýslunnar. Innherji 31.5.2022 17:09
Hersir hverfur frá úttekt á útboði ÍSB eftir ábendingu um „læk“ Hersis Sigurgeirsson, dósent í fjármálum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og ráðgjafi fyrir Seðlabanka Íslands, hefur látið af störfum sem ráðgjafi við úttekt Ríkisendurskoðunar á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka eftir að Bankasýslan gerði athugasemd við að hann hefði „lækað“ við færslu á Facebook sem varðaði útboðið. Innherji 20.5.2022 11:32
Afskræming bankasölunnar Einhvers konar stundarbrjálæði hafði gripið um sig. Forsíður vefmiðla voru undirlagðar af fréttum um að hinir og þessir hefðu fengið að kaupa Íslandsbanka á undirverði, og gífuryrðum um spillingu. Það heyrðust jafnvel háværar kröfur um að sölunni skyldi rift. Umræðan 20.5.2022 09:58
Bandarískur fjármálarisi bætir enn við hlut sinn í Íslandsbanka Sjóðir í stýringu bandaríska félagsins Capital Group, sem hefur verið einn stærsti eigandi Íslandsbanka allt frá skráningu hans á markað í fyrra, juku enn frekar við eignarhlut sinn í bankanum fyrr í þessum mánuði með kaupum á bréfum fyrir samtals nærri 400 milljónir króna. Capital Group fer núna með 5,22 prósenta eignarhlut í Íslandsbanka. Innherji 20.5.2022 08:20
Segir fulla ástæðu til mótmæla þó hlutabréf Íslandsbanka hafi lækkað Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hæðist að mótmælendum vegna bankasölunnar og segir að nú hafi gróðinn þurrkast út. Gunnar Smári Egilsson, einn forsprakki mótmælanna segir þetta fráleitan útúrsnúing. Innlent 19.5.2022 13:21
Hlutabréfaverð Íslandsbanka fellur og nálgast gengið í útboði ríkissjóðs Gengi bréfa Íslandsbanka hefur lækkað um tvö prósent í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun og stendur nú í 117,8 krónum á hlut. Hlutabréfaverðið er því aðeins tæplega einni krónu hærra, eða sem nemur 0,7 prósentum, en þegar ríkissjóður seldi 22,5 prósenta hlut í bankanum með tilboðsfyrirkomulagi fyrir samtals tæplega 53 milljarða króna fyrir um tveimur mánuðum. Innherji 19.5.2022 11:03
Útboð ríkisins í Íslandsbanka í samræmi við jafnræðisreglu, segir LOGOS Ákvörðun um að takmarka þátttöku í útboði ríkissjóðs á 22,5 prósenta hlut í Íslandsbanka í mars síðastliðnum við hæfa fjárfesta án þess að setja sérstök skilyrði um lágmarkstilboð fól ekki í sér, að mati lögmannsstofunnar LOGOS, brot gegn jafnræðisreglu. Bankasýsla ríkisins, sem sá um framkvæmd söluferlisins, hafi sömuleiðis gert „fullnægjandi ráðstafanir“ til að tryggja jafnt aðgengi hæfra fjárfesta að útboðinu. Innherji 18.5.2022 06:43
Bein útsending: Mótmæla bankasölunni á Austurvelli Sjötti mótmælafundurinn á Austurvelli vegna sölu ríkisins á hluta Íslandsbanka verður haldinn klukkan 14 í dag. Innlent 14.5.2022 13:30