Kaup og sala fyrirtækja
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 13 ›
Flatey færir út kvíarnar og kaupir ísbúðir Nú um mánaðarmótin tók félagið á bakvið Flatey pítsustaðina við rekstri ísbúða Gaeta Gelato, en Gaeta framleiðir ítalskan gelató-ís frá grunni úr hráefni frá Ítalíu og íslenskri mjólk. Viðskipti innlent 7.12.2023 17:09
Helmingi sagt upp hjá KOM og tveir eigendur keyptir út Fjórum starfsmönnum, KOM, elsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði almannatengsla, hefur verið sagt upp störfum. Eftir uppsagnirnar starfa fjórir hjá fyrirtækinu. Einn þriggja eigenda félagsins stefnir að því kaupa hina tvo út úr félaginu. Viðskipti innlent 4.12.2023 18:06
Norvik eignast 95 prósent í nítján milljarða króna félagi Mikill meirihluta hluthafa í Bergs Timber AB, sem starfar í alþjóðlegum timburiðnaði, hefur samþykkt yfirtökutilboð íslenska félagsins Norvik. Norvik á eftir yfirtökuna ríflega 95 prósent hlutafjár í Bergs en átti fyrir um 59 prósent hlut. Viðskipti innlent 29.11.2023 17:41
Landsbankinn selur hlutinn í Keahótelum sem tekinn var upp í skuldir Landsbankinn hefur auglýst 35 prósent hlut sinn í Keahótelum ehf. til sölu. Bankinn eignaðist hlutinn eftir endurskipulagningu félagsins sem fól í sér að skuldum við bankann var breytt í hlutafé. Viðskipti innlent 28.11.2023 21:25
Ardian kaupir meðal annars Verne gagnaverið á Íslandi í risaviðskiptum Franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian, sem eignaðist Mílu undir lok síðasta árs, hefur náð samkomulagi við breska fjárfestingafélagið Digital 9 Infrastructure (D9) um kaup á öllum eignarhlutum þess í gagnaverum undir hatti Verne Global, meðal annars starfsemina á Íslandi. Kaupverðið á öllu hlutafé Verne getur numið allt að 575 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 80 milljarða íslenskra króna, en aðeins tvö ár eru frá því að gagnaverið hér á landi komst í eigu D9 sem hefur glímt við fjárhagserfiðleika að undanförnu. Innherji 27.11.2023 18:09
Tilboðið í Marel í lægri kantinum Bandarískt fyrirtæki hefur greint frá áhuga sínum á að kaupa Marel. Er mögulegt tilboð 38 prósent hærra en verðmat Marel á íslenskum markaði. Greinandi segir tilboðið þó vera í lægri kantinum. Viðskipti innlent 24.11.2023 11:57
Bandarískur tilboðsgjafi metur Marel á 363 milljarða króna Marel hefur tilkynnt að John Bean Technologies Corporation (JBT) sé fyrirtækið sem lagði fram óskuldbindandi viljayfirlýsingu, varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í Marel. Viðskipti innlent 24.11.2023 10:38
Marel rauk upp áður en lokað var fyrir viðskipti Lokað var fyrir viðskipti með hlutabréf í Marel í morgun. Gengi bréfanna rauk upp um tæplega þrjátíu prósent í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var um óskuldbindandi viljayfirlýsingu um kaup á öllu hlutafé félagins. Opnað hefur verið fyrir viðskiptin á ný. Viðskipti innlent 24.11.2023 10:24
OK kaupir upplýsingatæknihluta TRS OK hefur fest kaup á upplýsingatæknifyrirtækinu TRS á Selfossi. Viðskipti innlent 14.11.2023 10:43
Rafnar kaupir Rafnar-Hellas Haftæknifyrirtækið Rafnar ehf. hefur keypt meirihluta í gríska skipasmíðafélaginu Rafnar-Hellas. Rafnar á Íslandi hefur unnið með Rafnar-Hellas frá árinu 2019, en það er það fyrirtæki sem hefur smíðað flesta báta í heiminum samkvæmt hönnun Rafnar. Lykilstarfsmenn og stofnendur Rafnar-Hellas munu koma inn í framkvæmdastjórn móðurfélagsins ásamt því að verða áfram eigendur að hluta í félaginu. Viðskipti innlent 9.11.2023 08:57
Deloitte og EY fá að renna saman Samkeppniseftirlitið hefur veitt Deloitte og Ernst & Young (EY) á Íslandi undanþágu til að framkvæma samruna félaganna tveggja á meðan eftirlitið rannsakar samrunann. Viðskipti innlent 7.11.2023 12:56
HS Orka jók hlutafé um 5,6 milljarða til að kaupa virkjanir af tveimur fjárfestum Hlutafé HS Orku var aukið um 5,6 milljarða króna til að fjármagna kaup á tveimur vatnsaflsvirkjunum í Seyðisfirði en viðskiptin voru „að stærstum hluta“ fjármögnuð með eiginfjárframlagi frá hluthöfum orkuframleiðandans. Seljandi var Kjölur fjárfestingarfélag, sem er í eigu tveggja manna, en það seldi hlut sinn í GreenQloud fyrir um tvo milljarða króna árið 2017. Eigendur Kjalar stofnuðu skemmtistaðinn Sportkaffi rétt fyrir aldamót. Innherji 30.10.2023 14:55
Hafa ekki valið enskt heiti fyrir Kerið „Við erum mjög ánægðir með að hafa náð að klára þessi viðskipti og erum mjög spenntir fyrir því að taka við þessum stað og reyna að varðveita hann og byggja upp sem öflugan ferðamannastað,“ segir forstjóri Arctic adventures um kaup á Kerinu. Kaupverðið er trúnaðarmál og Kerinu hefur ekki verið fundið nýtt nafn. Viðskipti innlent 30.10.2023 07:00
Áforma að selja Verne Global gagnaverin í heild sinni til að minnka skuldsetningu Breska fjárfestingafélagið Digital 9 Infrastructure, sem hefur verið í kröppum dansi vegna lausafjárerfiðleika og mikillar skuldsetningar, stefnir núna að því að selja alla eignarhluti sína í gagnverum undir hatti Verne Global, meðal annars starfsemina á Íslandi sem það keypti fyrir aðeins tveimur árum. Hlutabréfaverð breska innviðafjárfestingafélagsins hefur fallið í verði um liðlega sextíu prósent á einu ári og nýlega þurfti það að falla frá fyrri áformum sínum um arðgreiðslur til hluthafa. Innherji 27.10.2023 10:23
Norvik gerir yfirtökutilboð í nítján milljarða króna félag Norvik hefur sent tilkynningu til sænsku Kauphallarinnar um að lagt verði fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Bergs Timber AB, sem starfar í alþjóðlegum timburiðnaði. Tilboðið hljóðar upp á gengið 44,50 sænskar krónur fyrir hvern hlut í Bergs í reiðufé. Heildarverðmæti hlutafjár Bergs er því áætlað 1,54 milljarðar sænskra króna, sem samsvarar um 19,3 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 27.10.2023 10:07
Kaup Sýnar á Já frágengin Sýn hefur gengið frá kaupum á Eignarhaldsfélaginu Njálu, sem er móðurfélag Já hf. Áður hafði Samkeppniseftirlitið heimilað kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf. og Já hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn. Viðskipti innlent 20.10.2023 09:08
Eðalfang eignast meirihluta í 101 Seafood Eðalfang ehf. hefur keypt 50,1 prósent hlutafjár í félaginu 101 Seafood ehf., og verður þar með stærsti hluthafi félagsins. Viðskipti innlent 17.10.2023 15:14
Ná samkomulagi um kaup á Heimstaden Sparisjóðurinn Stefnir og Fredensborg AS, eigandi Heimstaden ehf., hafa komist að samkomulagi um möguleg kaup sjóðs á vegum Stefnis á öllu hlutafé í Heimstaden á Íslandi. Viðskipti innlent 12.10.2023 17:01
Sidekick kaupir þýskt fyrirtæki Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health hefur gengið frá kaupum á þýska fyrirtækinu aidhere GmbH. Viðskipti innlent 11.10.2023 08:32
Keypti sælgætisgerðina Freyju fyrir vel á þriðja milljarð króna Eignir Langasjávar, stór hluthafi í öllum þremur skráðu fasteignafélögunum og eigandi Ölmu íbúðafélags, rufu 100 milljarða króna múrinn um síðustu áramót en hagnaðurinn dróst engu að síður mikið saman, meðal annars vegna hækkandi fjármagnskostnaðar en félagið skuldar yfir 80 milljarða. Sælgætisgerðin Freyja bættist við eignasafn Langasjávar undir lok síðasta árs þegar það keypti fyrirtækið fyrir vel á þriðja milljarð króna. Innherji 9.10.2023 11:39
Tímamót í Vesturbænum: Hræðilega sárt að selja „barnið hans Þóris“ Elsta starfandi blómabúð landsins, sem hefur verið rekin af sömu fjölskyldunni frá stofnun, er komin á sölu. Eigandi segir það skelfilega sárt að selja búðina en ekkert annað sé í stöðunni. Viðskipti innlent 4.10.2023 19:29
Kvika stefnir á sölu eða skráningu TM Í framhaldi af stefnumótunarvinnu Kviku banka hefur stjórn Kviku tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að sölu eða skráningu TM trygginga hf.. Viðskipti innlent 3.10.2023 19:23
Eigandi Verne Global í kröppum dansi og söluferli gagnavera dregst á langinn Hlutabréfaverð breska fjárfestingarfélagsins Digital 9 Infrastructure, sem rekur meðal annars Verne Global á Íslandi, hrundi um nærri 40 prósent þegar ljóst varð að það myndi ekki standa við áform um arðgreiðslu til hluthafa vegna lausafjárþurrðar og mikillar skuldsetningar og að söluferli á hlutum í gagnaverunum myndi tefjast. Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist í Verne Global sem verðmeta gagnaver félagsins nálægt bókfærðu virði, eða samtals jafnvirði liðlega 90 milljarða króna. Innherji 3.10.2023 11:42
Töldu sig svikna eftir milljarða sölu og stefndu Helga Helgi Hermannsson, stærsti hluthafi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sling, var í sumar dæmdur til að greiða fjórum hönnuðum samanlagt 67 milljónir króna. Starfsmennirnir stefndu Helga sem þeir töldu hafa svikið sig um gerða samninga þegar Sling var selt fyrir fleiri milljarða króna. Fyrirtæki sem þeir höfðu tekið þátt í að byggja upp og átt kauprétt í. Viðskipti innlent 2.10.2023 09:01
Fjárfestingafélag Heiðars hagnast um nærri hálfan milljarð Fjárfestingafélag Heiðars Guðjónssonar, fyrrverandi forstjóra Sýnar, skilaði tæplega 470 milljóna króna hagnaði í fyrra en Ursus seldi þá allan eignarhlut sinn í fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækinu. Góð afkoma Ursus í fyrra skýrist einkum af uppfærslu á óbeinum eignarhlut félagsins í HS Veitum. Innherji 28.9.2023 15:09
Kaupir helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf. Samherji og Síldarvinnslan hafa gengið frá kaupum þess síðarnefnda á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood en með því lýkur viðræðum sem fyrst var tilkynnt um í lok mars á þessu ári. Viðskipti innlent 26.9.2023 10:11
Kaup Brims á hlut í Iceland Seafood „skref í að vinna með öðrum í sölu“ Forstjóri Brims segir um kaup á ellefu prósenta hlut í Iceland Seafood International að lengi hafi staðið til að styrkja sölukerfi útgerðarinnar á fiskafurðum. „Þetta er eitt skref í að vinna með öðrum í sölu.“ Innherji 25.9.2023 16:38
Brim kaupir hlut félags Bjarna Ármannssonar í Iceland Seafood Brim hf. hefur gert samkomulag um kaup á hlut Sjávarsýnar ehf., fjárfestingafélags Bjarna Ármannssonar, í Iceland Seafood International hf. Viðskipti innlent 24.9.2023 22:26
Sjóðurinn IS Haf fjárfestir í Thor Landeldi og eignast yfir helmingshlut Fjárfestingarsjóður sem einblínir á haftengda starfsemi hefur gengið frá samningum um fjárfestingu í Thor Landeldi sem mun tryggja honum yfir helmingshlut í eldisfyrirtækinu sem áformar uppbyggingu á tuttugu þúsund tonna laxeldi í Þorlákshöfn. Ásamt sjóðnum IS Haf munu reynslumiklir norskir fjárfestar úr laxeldi koma að fjárfestingunni. Innherji 21.9.2023 15:18
Stjórn tekur ekki afstöðu til bætts tilboðs Stjórn Eikar fasteignafélags hf. hefur samið viðbót við greinargerð sína vegna breytinga á valfrjálsu yfirtökutilboði Regins hf. til hluthafa Eikar fasteignafélags. Stjórnin tekur að svo stöddu ekki afstöðu til þess hvort hún geti mælt með því við hluthafa sína að taka breyttu tilboði. Viðskipti innlent 21.9.2023 08:39