James Webb-geimsjónaukinn
1 2 ›
Nýjar ljósmyndir Webb sýna Neptúnus í nýju ljósi Ný ljósmynd hefur verið tekin af plánetunni Neptúnusi með aðstoð Webb sjónaukans. Myndin er sú skýrasta sem náðst hefur af ísplánetunni í áratugi og sýna hringi Neptúnusar í nýju ljósi. Erlent 26.12.2023 19:43
Fann hornstein lífrænnar efnafræði í sólkerfi í fæðingu Kolefnissameind sem er talin hornsteinn lífrænnar efnafræði fannst í fyrsta skipti í fjarlægu sólkerfi sem er verða til með athugunum James Webb-geimsjónaukans. Rannsóknin á frumsólkerfisskífunni er einnig sögð sýna fram á þátt útfjólublárrar geislunar í lífvænleika nýrra sólkerfa. Erlent 27.6.2023 12:21
Enginn alvöru lofthjúpur utan um lofandi fjarreikistjörnur Líkur á að lífvænlegar aðstæður finnist í Trappist-sólkerfinu fara þverrandi eftir að rannsóknir James Webb-geimsjónaukans bentu til þess að þykkan lofthjúp sé ekki að finna á tveimur af sjö bergreikistjörnum þar. Fundur reikistjarnanna vakti athygli á sínum tíma þar sem þær eru nær allar á stærð við Venus. Erlent 20.6.2023 10:09
Webb mældi hitastig á innstu reikistjörnu Trappist Hitastigið á dagshlið fjarreikistjörnunnar Trappist-1 b nær um 230 gráðum og gefur það til kynna að ekkert andrúmsloft sé þar að finna. Þetta segja meðlimir alþjóðlegs teymis vísindamanna sem beindu öflugum linsum James Webb geimsjónaukans (JWST) að fjarreikistjörnunni. Erlent 28.3.2023 10:24
Fundu steindaský í lofthjúpi fjarlægrar risareikistjörnu Ský úr sílíkötum eru á meðal þess sem James Webb-geimsjónaukinn fann í lofthjúpi fjarreikistjörnu sem er margfalt stærri en nokkur hnöttur í okkar sólkerfi. Mælingar sjónaukans á reikistjörnunni eru sagðar byltingakenndar. Erlent 23.3.2023 13:53
Fönguðu dauðateygjur verðandi sprengistjörnu Innrautt auga James Webb-geimsjónaukans náði mynd af sjaldséðri og skammlífri tegund risavaxinnar stjörnu í dauðateygjunum. Athuganir sjónaukans veita stjörnufræðingum í fyrsta skipti tækifæri til að fræðast meira um geimryk sem leikur lykilhlutverk í þróun alheimsins. Erlent 14.3.2023 21:55
Fundu risavetrarbrautir sem reyna á skilning á alheiminum Risavaxin fyrirbæri sem gætu verið tröllvaxnar vetrarbrautir frá bernsku alheimsins gætu reynt á skilning stjarneðlisfræðinga á alheiminum og upphafsárum hans. Vísindamenn sem fundu þau trúðu ekki eigin augum en þeir en bíða enn staðfestingar á uppgötvuninni. Erlent 23.2.2023 11:04
Fimmtíu þúsund vetrarbrautir á einni mynd Djúpmynd sem James Webb-geimsjónaukinn tók nýlega skartar um það bil fimmtíu þúsund vetrarbrautum sem eru í milljarða ljósára fjarlægð frá jörðinni. Myndin er ein sú dýpsta sem sjónaukinn hefur tekið til þessa. Erlent 17.2.2023 13:08
Webb fann fyrstu fjarreikistjörnuna Geimvísindamenn hafa í fyrsta sinn fundið fjarreikistjörnu með James Webb sjónaukanum (JWST). Umrædd reikistjarna kallast LHS 475 b og er í um 41 ljósárs fjarlægð. Hún er talin á stærð við jörðina en hún er nokkur hundruð gráðum heitari en jörðin. Erlent 11.1.2023 23:57
Geimárið 2022: Gleggsta auga mannkynsins opnaðist og jarðvarnir voru efldar Geta mannkynsins til þess að rannsaka óravíddir alheimsins tók risavaxið stökk fram á við á árinu sem er að líða. James Webb-geimsjónaukinn hreiðraði um sig í sólkerfinu og byrjaði að senda myndir sem eiga sér enga hliðstæðu aftur til jarðar. Erlent 19.12.2022 14:00
Fylgdust með skýjafari á Títani með hjálp Webb Langþráðar myndir James Webb-geimsjónaukans af Títani, stærsta tungli Satúrnusar, gerðu stjörnufræðingum kleift að fylgjast með þróun skýja í lofthjúpi hans í síðasta mánuði. Athugarnirnar eru í samræmi við loftslagslíkön sem spáðu fyrir um að ský gætu hæglega myndast á þessum tíma árs. Erlent 2.12.2022 22:00
Fordæmalaus sýn á andrúmsloft fjarreikistjörnu Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur birt nýjar mynd sem tekin var með James Webb geimsjónaukanum. Um er að ræða litrófsgreiningu af andrúmslofti fjarlægs gasrisa en greiningin hefur varpað ljósi á hvaða efni finna má í andrúmslofti reikistjörnunnar og er það í fyrsta sinn sem geimvísindamenn öðlast svo nákvæm gögn af þessu tagi. Erlent 22.11.2022 17:04
Stjarna að fæðast í stundaglasi Frumstjarna í hjarta stundaglasslaga gasskýs sem James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega mynd af er sögð veita innsýn í hvernig sólin og sólkerfið okkar leit út í frumbernsku sinni. Hún er talin á fyrsta stigi í myndunarferli sínu. Erlent 21.11.2022 13:00
Webb endurgerði frægustu mynd Hubble Hluti Arnarþokunnar sem hlaut nafnið Stöplar sköpunarinnar þegar Hubble-geimsjónaukinn gerði hann frægan fyrir meira en aldarfjórðungi er skarpari en nokkru sinni fyrr á mynd sem James Webb-geimsjónaukinn, arftaki Hubble, náði. Erlent 19.10.2022 15:43
Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. Erlent 21.9.2022 14:55
Webb greindi koltvísýring í andrúmslofti fjarreikistjörnu Geimvísindamenn hafa fundið skýr og greinileg ummerki koltvísýrings í andrúmslofti gasrisa í annarri stjörnuþoku. Þetta er í fyrsta sinn sem koltvísýringur greinst í andrúmslofti fjarreikistjörnu. Erlent 25.8.2022 23:46
Gæði nýrra mynda af Júpíter komu á óvart Geimvísindamenn birtu í dag nýjar myndir af gasrisanum Júpíter sem teknar voru með James Webb-geimsjónaukanum. Júpíter er áhugaverð reikistjarna og vonast vísindamenn til þess að skilja hana mun betur með gögnunum frá James Webb. Erlent 22.8.2022 22:17
Uppgötvuðu elstu stjörnuþoku sem hefur sést James Webb-geimsjónaukinn náði nýverið mynd af stjörnuþokunni GLASS-z13 sem er 13,5 milljarða gömul og þar af leiðandi elsta stjörnuþoka sem hefur verið uppgötvuð til þessa. Erlent 21.7.2022 11:58
Sýndu mátt James Webb geimsjónaukans Geimvísindastofnanir Bandaríkjanna, Evrópu og Kanada birtu í dag nýjar myndir úr James Webb geimsjónaukanum (JWST). Fyrsta myndin var opinberuð í gær en sjónaukinn er sá stærsti og besti sem hefur verið smíðaður og er talinn munu gjörbreyta stjarnvísindum á komandi árum. Erlent 12.7.2022 13:51
Segir sjónaukann marka nýtt upphaf í stjarnvísindum Fyrsta ljósmyndin úr James-Webb geimsjónaukanum birtist í gærkvöldi og eru fleiri myndir væntanlegar klukkan hálf þrjú í dag. Þetta eru skýrustu myndir sem mannkynið hefur tekið og séðaf sumum af daufustu og fjarlægustu vetrarbrautum til þessa. Stjörnu-Sævar segir þetta sögulegan dag og marka nýtt upphaf í stjarnvísindum. Innlent 12.7.2022 12:27
Rýnt í uppruna alheimsins í fyrstu mynd James Webb Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í kvöld fyrstu unnu myndina úr James Webb-geimsjónaukanum. Myndin sýnir þyrpingu stjörnuþoka sem kallast SMACS 0723 og er í um 4,6 milljarða ljósára fjarlægð frá jörðu. Erlent 11.7.2022 23:37
Varð fyrir geimgrjóti og skemmdist lítillega Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, opinberuðu í vikunni að James Webb geimsjónaukinn varð nýverið fyrir smáu geimgrjóti sem skemmdi einn af speglum hans. Skemmdirnar eru þó sagðar koma lítið niður á gæðum mynda spegilsins. Erlent 12.6.2022 14:01
James Webb kominn á áfangastað James Webb geimsjónaukinn er nú kominn á lokaáfangastað sinn, svokallaðan Lagrange-punkt 2. „Velkominn heim, Webb“ sagði yfirmaður bandarísku geimferðarstofnunarinnar, NASA, við tilefnið. Erlent 24.1.2022 21:47
Vísindamenn anda léttar Vísindamönnum og verkfræðingum Geimvísindastofnanna Bandaríkjanna, Evrópu og Kanada tókst um helgina að opna gullhúðaðan spegil James Webb-geimsjónaukans. Það markaði lokaáfanga opnunar sjónaukans, sem er sá stærsti og besti sem hefur verið framleiddur. Erlent 11.1.2022 21:46
Það helsta í geimnum 2022: Aldrei meira um að vera í geimnum og leitin að lífi heldur áfram Vendingar í geimferðum og geimvísindum hafa verið miklar og hraðar á undanförnum árum og jafnvel sérstaklega í fyrra. Þessi þróun virðist ætla að halda áfram árið 2022 þar sem sífellt fleiri ríki og fyrirtæki koma sér fyrir á þessu sviði. Erlent 4.1.2022 08:01
James Webb tekur á sig mynd en ekkert má bregða útaf Byrjað er að opna geimsjónaukann James Webb sem skotið var út í geim á jóladag. Sjónaukinn er svo stór að brjóta þurfti hann saman til að koma honum af yfirborði jarðar og má ekkert fara úrskeiðis á meðan verið er að opna hann. Erlent 29.12.2021 17:00
Sá stærsti og besti lagður af stað James Webb geimsjónaukanum var skotið af stað í langt ferðalag í vel heppnuðu geimskoti frá frá evrópsku geimmiðstöðinni í Kourou í Frönsku Gvæjana í gær. Sjónaukinn, sem er sá stærsti og besti sem hefur verið framleiddur er nú á leið í langt ferðalag þar sem honum verður komið fyrir á sporbraut um sólina í um einni og hálfri milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu. Erlent 26.12.2021 10:34
Bein útsending: Áratuga ferli að ljúka á mikilvægu geimskoti James Webb-geimsjónaukanum var loks skotið á loft í dag eftir margra ára þróun og smíði og fjölmargar tafir. Sjónaukinn er sá háþróaðasti sem hefur nokkru sinni verið framleiddur og er meðal annars ætlað að varpa ljósi á uppruna alheimsins. Erlent 25.12.2021 06:00
Eðlilegt að fólk sé stressað fyrir geimskot James Webb James Webb geimsjónaukanum verður skotið á loft á aðfangadag, gangi áætlanir geimvísindamanna eftir. Gífurlega mikið er í húfi en fjölmargt þarf að ganga eftir svo sjónaukinn geti bylt geimvísindum eins og vonast er til. Innlent 20.12.2021 15:44
James Webb fær heilbrigðisvottorð eftir uppákomu sem seinkaði geimskoti Verkfræðingar hafa nú lokið prófunum á James Webb-geimsjónaukanum og staðfest að allt sé til reiðu að skjóta honum út í geim í næsta mánuði. Ákveðið var að fresta geimskotinu um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning á dögunum. Erlent 25.11.2021 09:44