
Deilur Johnny Depp og Amber Heard

Heard hættir við áfrýjun eftir samkomulag
Leikkonan Amber Heard hefur tilkynnt að hún hafi gert samkomulag um að hætta við áfrýjun í meiðyrðamál Johnny Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar. Hún var í fyrra dæmd til að greiða Depp um tvo milljarða króna í skaðabætur vegna greinar sem hún skrifaði í Washington Post árið 2018, þar sem hún sagðist hafa verið fórnarlamb heimilisofbeldis.

Amber Heard vill áfrýja
Lögmannateymi leikkonunnar Amber Heard hefur skilað inn beiðni um áfrýjun dóms í máli hennar og fyrrverandi eiginmanns hennar Johnny Depp.

Johnny Depp slær sér upp með lögfræðingnum sínum
Leikarinn Johnny Depp er byrjaður að hitta fyrrum lögfræðing sinn, Joelle Rich, samkvæmt heimildum People. Rich starfaði með honum í máli sem hann höfðaði gegn The Sun árið 2020.

Dómari hafnaði kröfum Heard
Bandarískur dómari neitaði í gær að fella niður tíu milljóna dala miskabætur sem leikkonunni Amber Heard hefur verið gert að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum, Johnny Depp, fyrir meiðyrði. Depp vann meiðyrðamál gegn Heard í síðasta mánuði en það sneri að grein sem hún skrifaði á vef Washington Post þar sem hún sagðist hafa orðið fyrir heimilisofbeldi.

Heard vill úrskurðinn gegn sér felldan niður
Lögmenn leikkonunnar Amber Heard hafa farið fram á það við dómara að úrskurðurinn í máli Johnny Depps, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni verði felldur niður og ný réttarhöld fari fram. Hún var nýverið dæmd til að greiða honum tæpar tvo milljarða króna í skaðabætur fyrir meiðyrði.

Segir umræðuna á samfélagsmiðlum ósanngjarna
Leikkonan Amber Heard segir að samfélagsmiðlar hafi leikið sig grátt varðandi réttarhöld í meiðyrðamáli Johnny Depps, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni. Hún var nýverið dæmd til að greiða Depp tæpa tvo milljarða króna í skaðabætur.

Heard ætlar að áfrýja
Amber Heard ætlar að áfrýja dómi í máli Johnny Depp á hendur henni. Í gær var hún fundin sek um meiðyrði í garð hans og dæmd til að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum fimmtán milljónir dollara.

Depp hafði betur í meiðyrðamálinu gegn Heard
Kviðdómur í Bandaríkjunum tók afstöðu með leikaranum Johnny Depp í meiðyrðamáli hans gegn Amber Heard, leikkonu og fyrrverandi eiginkonu. Heard var dæmd til að greiða Depp alls 15 milljónir dala í skaðabætur, eða sem nemur tæplega tveimur milljörðum króna.

Tróð óvænt upp á tónleikum og bíður úrskurðar kviðdóms
Tónleikagestir ráku upp stór augu þegar stórleikarinn Johnny Depp tróð óvænt upp á tónleikum gítarleikarans Jeff Beck's í Yorkshire á sunnudagskvöld.

Örlög Depp og Heard í höndum kviðdóms eftir sjónvarpsviðburð aldarinnar
Sex vikna réttarhöldum í meiðyrðamáli Johnny Depp og Amber Heard lauk í dag. Réttarhöldin hafa vakið gríðarlega athygli þar sem Depp virðist njóta mikils stuðnings en Heard, og ungu barni hennar, hefur verið hótað lífláti. Kviðdómur reyndi að komast að niðurstöðu í kvöld en mun koma saman aftur á þriðjudag.

Er Johnny Depp að skaða metoo hreyfinguna ef hann berst fyrir æru sinni?
Einstaka feministar virðast óttast að ef það kemst upp að einstaka konur eru ofbeldismanneskjur í hjónabandi muni það skaða feminiska baráttu.

Lögmenn Depps saumuðu að Heard í vitnastúkunni
Réttarhöld í meiðyrðamáli bandaríska leikarans Johnny Depp á hendur fyrrverandi eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Amber Heard, héldu áfram í dag. Þar var Heard borin þungum sökum af lögmannateymi Depps, meðal annars um að hafa barið hann og breytt ljósmyndum til að sýna fram á ofbeldi hans gegn henni.

„Ég hugsaði, svona mun ég deyja“
Amber Heard brast nokkrum sinnum í grát í réttarsal vestanhafs í dag er hún lýsti mörgum meintum árásum Johnnys Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar. Hún sakaði hann meðal annars um að hafa kýlt sig í andlitið og nauðga sér með flösku.

„Mig langaði að trúa honum, svo ég gerði það“
Amber Heard sagði fyrir dómi í dag að hún hefði ætlað sér að yfirgefa Johnny Depp, fyrrverandi eiginmann hennar, eftir að hann sló hana fyrst utan undir. Hann hefði þó beðið hana afsökunar og heitið því að beita hana aldrei ofbeldi aftur.

Segir Depp hafa stungið áfengisflösku í kynfæri Heard
Amber Heard þjáðist af áfallastreituröskun eftir árásir Johnny Depps, fyrrverandi eiginmanns hennar. Þetta sagði geðlæknir hennar í dómsal í dag og sagði hún að hann hefði meðal annars beitt hana kynferðislegu ofbeldi.

Ógeðsleg SMS á milli Johnny Depp og Paul Bettany um Amber Heard
Hollywoodstjörnurnar Johnny Depp og Amber Heard takast nú á fyrir opnum tjöldum í réttarsal vestanhafs og saka hvort annað um ofbeldi á víxl. Fleiri stórleikarar hafa dregist inn í réttarhöldin og bæði þurfa að viðra allan óhreina þvottinn sinn fyrir heimsbyggðinni.

Segist ekki getað lifað með því að fólk haldi hann beita heimilisofbeldi
Leikarinn Johnny Depp segist ekki hafa getað lifað með því að fólk héldi að hann beitti heimilisofbeldi. Þess vegna hafi hann ákveðið að stefna Amber Heard fyrrverandi eiginkonu sinni fyrir ærumeiðingar, eftir að hún sakaði hann um að hafa beitt sig ofbeldi.

Johnny Depp ber vitni í málinu gegn Amber Heard í dag
Leikarinn Johnny Depp mun bera vitni fyrir dómi í Fairfax sýslu í Virginiu í dag í máli sem hann höfðaði gegn Amber Heard fyrrverandi eiginonu sinni fyrir ærumeiðingar. Depp byggir mál sitt á því að Heard hafi logið því upp á hann að hafa beitt hana heimilisofbeldi.

Saka hvort annað um lygar og ofbeldi
Lögmenn Johnny Depp sögðu Amber Heard, fyrrverandi eiginkonu hans, vera lygara sem væri heltekin af ímynd sinni. Það gerðu þeir við upphaf réttarhalda í máli þar sem hann hefur sakað hana um að ljúga upp á sig ofbeldi.

Johnny Depp segir skilið við Fantastic Beasts
Leikarinn Johnny Depp hefur ákveðið að segja skilið við Fantastic Beasts kvikmyndaseríuna. Nokkrir dagar eru liðnir frá því að Depp tapaði meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn breska miðlinu The Sun vegna greinar sem hann birti þar sem Depp var sagður hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi.

Johnny Depp tapar meiðyrðamáli gegn The Sun
Bandaríski leikarinn Johnny Depp hefur tapað meiðyrðamáli gegn breska blaðinu The Sun. Depp höfðaði málið gegn blaðinu eftir að hafa verið sakaður um að hafa beitt þáverandi eiginkonu sína ofbeldi.

Koma Johnny Depp til varnar vegna ásakana um ofbeldi
Leikkonurnar Vanessa Paradis og Winona Ryder buðu fram jákvæðar umsagnir um leikarann Johnny Depp í meiðyrðamáli hans gegn breska götublaðinu The Sun.

Segir Heard hafa málað á sig marblettina
Bandaríski leikarinn Johnny Depp þvertekur fyrir að hafa beitt Amber Heard, fyrrverandi eiginkonu sína, líkamlegu ofbeldi. Þvert á móti hafi það verið hún sem beitti hann ofbeldi.

„Ég var logandi hrædd við skrímslið“
Í gögnunum lýsir Heard ofbeldi sem hún segir að Depp hafi beitt sig er þau voru gift.

Johnny Depp sagður vera einmana maður á villigötum
Prófíllinn sem dreginn er upp af Depp í þessu viðtali er ekki fagur. Hann er illa staddur fjárhagslega og stendur í lögsókn við fyrrverandi viðskiptastjóra sinn.

Amber Heard og Elon Musk eru saman
Leikkonan og frumkvöðullinn eru að stinga saman nefjum.

Johnny Depp og Amber Heard semja loks endanlega um skilnað
Depp mun greiða Heard fjárhæð að andvirði 800 milljóna króna.

Amber Heard opnar sig um heimilisofbeldi í tilfinningaþrungnu myndbandi
Hin þrítuga leikkona sem lenti í heimilisofbeldi fyrr á þessu ári af hendi fyrrum eiginmanns hennar, leikarans Johnny Depp, segir fórnarlömd heimilisofbeldis oft upplifa mikla skömm.

Óvæntustu stjörnuskilnaðirnir á þessu ári
Árið 2016 var ansi sorglegt ár þegar það kom að ástinni.

Johnny Depp hrósar örlæti Amber og tryggir að peningarnir rati á réttan stað
Johnny Depp ætlar að sjá til þess að þær 817 milljónir króna sem Amber átti að fá eftir skilnaðnni rati til þeirra góðgerðamála sem hún sagðist ætla að styrkja.