Stj.mál

Fréttamynd

Ekki draumastarf stjórnmálamanns

Halldór Ásgrímsson hefur setið lengst utanríkisráðherra og verið ráðherra alls í rúm sautján ár. Hann tekur við embætti forsætisráðherra í dag og segir að embættinu fylgi mikil ábyrgð og það reyni mikið á. Hann segir það ekki endilega draumastarf hvers stjórnmálamanns. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Tek við góðu búi

Sigríður Anna Þórðardóttir tekur við embætti umhverfisráðherra í dag. Hún hlakkar til að takast á við starfið enda umhverfismálin vaxandi málaflokkur. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Sölu Símans skotið á frest

Í síðustu viku var útlit fyrir að einkavæðingu Símans yrði hrundið af stað nú þegar. Nú er málið komið í biðstöðu á ný. Framsóknarmenn vilja öflugt dreifikerfi. Sjálfstæðismenn vilja gott verð.

Innlent
Fréttamynd

Síminn ekki seldur með hraði

Davíð Oddsson segir forsætisráðherraskipti tefja sölu Símans en áfram sé stefnt að því að ljúka henni fyrir lok kjörtímabilsins. Á morgun tekur hann við starfi utanríkisráðherra og segist kveðja miðbæinn og Kvosina með trega enda fari hann í fyrsta skipti á starfsævinni úr miðbænum "upp í sveit". 

Innlent
Fréttamynd

Geir leysir Davíð af

Geir H. Haarde fjármálaráðherra flytur ræðu Davíðs Oddssonar, verðandi utanríkisráðherra, á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. Davíð Oddsson sagði í viðtali við Fréttablaðið að hann og Halldór Ásgrímsson myndu leysa hvorn annan af hér eftir sem hingað til, þrátt fyrir stólaskipti þeirra í ríkisstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Skammarlegt fyrir ríkisstjórnina

Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður segir skammarlegt ef ríkisstjórnin ætli að láta öryrkja draga sig í fjórða sinn fyrir dómstóla vegna vanefnda á samningum. Hún segir málið prófraun fyrir framsóknarmenn þegar Halldór Ásgrímsson tekur við stjórnartaumunum.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið vinni að dreifikerfinu

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir afstöðu framsóknarmanna skýra varðandi uppsetningu dreifikerfis um land allt. Jafnvel komi til greina að ríkið vinni að uppbyggingu slíks kerfis, þótt Síminn verði kominn úr eigu þess.

Innlent
Fréttamynd

Davíð kannast ekki við skilyrði

Þingmenn Framsóknarflokks eru óánægðir með hægagang í uppbyggingu dreifikerfis Símans. Þingflokkurinn gerði uppbyggingu dreifikerfisins að skilyrði fyrir einkavæðingu. Davíð Oddsson forsætisráðherra kannast ekki við slík skilyrði.

Innlent
Fréttamynd

Nú styttist í þessu

„Nú styttist í þessu,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra við fréttamenn þegar hann mætti í Stjórnarráðið í morgun til að fara á fyrsta ríkisstjórnarfund sinn eftir veikindi og þann næst síðasta á samfelldum þrettán ára ferli sínum sem höfuð ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherraskiptin verða 15. september.

Innlent
Fréttamynd

Ábyrgðarleysi að útiloka ESB-aðild

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra segir "ábyrgðarleysi" að útiloka aðild að ESB. Það sé "bara hluti af framtíðinni að ræða þetta", hvort sem mönnum líki betur eða verr. "Það þýðir ekkert að forðast að segja óþægilega hluti þótt menn hrökkvi við og segi sig jafnvel úr flokknum," sagði utanríkisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Þriðjungur nyti ekki skattalækkana

Meðalskattgreiðandi fær 27 þúsund krónur á ári í vasann ef tekjuskattur lækkar um eitt prósent um áramót. Um 35 prósent borga hins vegar ekki tekjuskatt og njóta því ekki lækkunarinnar. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Setur skilyrði fyrir sölu Símans

Framsóknarflokkurinn setur það skilyrði fyrir sölu Landssímans að lokið verði uppbyggingu dreifikerfisins þannig að landsbyggðin öll hafi aðgang að nútímafjarskiptum. Þá er rætt um að byrjað verði á því að bjóða almenningi að kaupa hlutabréf í Símanum. Þetta kom fram á fundi framsóknarmanna í Borgarnesi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Standa við loforð um fasteignalán

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að Framsóknarflokkurinn muni standa við kosningaloforð sitt um að hækka lán Íbúðarlánasjóðs upp í 90 prósent af íbúðarverði á næstunni. Þetta kom fram í ræðu Halldórs sem hann hélt á haustfundi landsstjórnar og þingflokksins í Borgarnesi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Öryrkjum svarað 1. október

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vill ekki upplýsa hvort staðið verði við samkomulag hans við öryrkja um hækkun örorkulífeyris á næstu mánuðum. Hann segir að það komi í ljós 1. október þegar fjárlög næsta árs verði kynnt.

Innlent
Fréttamynd

Ráðherra sakar hagfræðinga um rugl

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra brást öndverður við sparnaðarhugmynd hagfræðings við háskóla Íslands og bað kennara við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands að "vera frekar í hagfræði en pólitík.

Innlent
Fréttamynd

Aftur í hálfa gátt hjá Halldóri

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra útilokar ekki ESB-aðild í stefnumarkandi ræðu í Borgarnesi í dag þrátt fyrir orð hans í gær um "nýlendustefnu". </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ráðherrarnir hans Davíðs

Davíð Oddsson hefur myndað fjórar ríkisstjórnir frá því að hann var kjörinn á þing í apríl 1991. Tuttugu og níu ráðherrar hafa setið í stjórnum hans, þar af sjö konur og aðeins tvær úr hans eigin flokki. Tólf eru hættir í pólitík og gegna flestir þeirra embættum á vegum hins opinbera. Halldór Ásgrímsson hefur setið manna lengst í stjórn undir forsæti Davíðs. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Bush með gott forskot

Bush Bandaríkjaforseti mælist með nokkuð öruggt forskot á keppinaut sinn, John Kerry, í nýrri fylgiskönnun vegna forsetakosninganna sem birt var í Bandaríkjunum í dag. Bush fengi fimmtíu og tvö prósent atkvæða samkvæmt henni en Kerry fjörutíu og þrjú prósent. Fylgisaukning Bush er þökkuð flokksþingi repúblikana í fyrri viku.

Erlent
Fréttamynd

Túlka ummælin á ólíka vegu

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sakaði Halldór um að hafa skipt um skoðun í Fréttablaðinu í gær. Eiríkur Bergmann sem er varaþingmaður Samfylkingarinnar og óumdeilt helsti sérfræðingur flokksins í Evrópumálum telur formanninn taka rangan pól í hæðina.

Innlent
Fréttamynd

Hitti naglann á höfuðið

Framkvæmdastjóri stærsta fiskvinnslufyrirtækis Bretlands segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hafa hitt naglann á höfuðið í beinskeyttri gagnrýni sinni á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Hann segist vona að gagnrýni Halldórs eigi eftir að berast víða um Evrópusambandið.

Innlent
Fréttamynd

Ummæli Halldórs brosleg

Jóhann Ársælsson þingmaður Samfylkingarinnar segir ummæli utanríkisráðherra um Evrópusambandið fyrst og fremst til þess fallin að róa Sjálfstæðismenn. Á meðan utanríkisráðherra líki sjávarútvegsstefnu ESB við nýlendustefnu kaupi Íslendingar þar veiðiheimildir sem aldrei fyrr.

Innlent
Fréttamynd

Á brattann að sækja fyrir Kerry

Ef draga má lærdóm af forsetakosningunum fyrir átta og tólf árum er demókratinn John Kerry búinn að tapa forsetakosningunum fyrir George W. Bush Bandaríkjaforseta.

Erlent
Fréttamynd

Vilja flýta landsfundi

Áhugi er fyrir því innan Samfylkingarinnar að flýta landsfundi flokksins sem á að fara fram næsta haust. </font />

Innlent
Fréttamynd

Einkavæðing Símans hafin að nýju

Einkavæðingarnefnd kom saman til fundar í gær til að hefja undirbúning að sölu ríkisins á Landssímanum. Ólafur Davíðsson, formaður nefndarinnar segir að þetta hafi verið fyrsti fundur nefndarinnar frá því í byrjun sumars.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórn dregin fyrir dómstóla

Ríkisstjórn Íslands verður dregin fyrir dómstóla standi hún ekki við það samkomulag sem gert var við öryrkja fyrir einu og hálfu ári. Þetta fullyrðir formaður Öryrkjabandalagsins. Heilbrigðisráðherra lýsti því yfir í fyrravetur að hann ætlaði sér að standa að fullu við ákvæði samningsins innan árs.

Innlent
Fréttamynd

Fiskveiðistefna ESB úrelt

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir Evrópusambandið aðhyllast nýlendustefnu gagnvart fiskveiðiþjóðum Norður-Evrópu. Hann segir fiskveiðistefnu sambandsins úrelta. Halldór flutti opnunarræðu á sjávarútvegsráðstefnu Íslandsbanka á Akureyri í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sinnaskipti utanríkisráðherra

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að með ræðu sinni í gær á Akureyri hafi Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, bakkað algjörlega frá fyrri viðhorfum sínum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. </font />

Innlent
Fréttamynd

Fátt gott við fiskveiðistefnu ESB

Utanríkisráðherra hafði fátt gott um sjávarútvegsstefnu ESB að segja á ráðstefnu á Akureyri í gær. Fundarmenn, sem margir stjórna stórum sjávarútvegsfyrirtækjum í Evrópusambandinu, virtust flestir á sama máli. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Þörf á annarri samsteypu

Bandarískum fjölmiðlahagfræðingi reiknast til að samþjöppun á íslenskum fjölmiðlamarkaði sé veruleg og meiri en í öðrum löndum. Leysa mætti vandann með annarri fjölmiðlasamsteypu á borð við Norðurljós. </font /></b />

Innlent