
RIFF

Margar milljónir í menninguna
Hátt í hundrað verkefni hlutu styrk úr borgarsjóði á sviði menningarmála, en 225 umsóknir bárust í haust um styrki sem hljóða upp á tæplega 390 milljónir króna. Útnefning Listhóps Reykjavíkur 2025 fór fram í Iðnó í dag.

Mikil stemning á lokahófi RIFF
Innlent og erlent kvikmyndargerðar- og bransafólk kom saman í vikunni á Parliament hótelinu til að fagna lokum RIFF kvikmyndahátíðarinnar.

Super Happy Forever hlaut Gullna lundann
Super Happy Forever eftir japanska leikstjórann Kohei Igarashi hlaut Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF, við hátíðlega athöfn í dag.

Fagnaðarfundir þegar Bong Joon-Ho hitti Dag Kára
Húsfyllir var í Háskólabíó þegar Bong Joon-Ho hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi listfengi á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF. Uppselt var á athöfnina, sem fór fram eftir sýningu á skrímslamyndinni The Host, eða Hýsillinn, en þá ræddi dagskrárstjóri RIFF, Frédéric Boyer, við kóreska leikstjórann í gegnum fjarfundarbúnað. Þar nefndi Bong meðal annars vináttu sína við íslenska leikstjórann Dag Kára.

Reyna að eyða minningum um hvort annað í sturluðum dansi
Íslensku stjörnurnar Bríet og Birnir voru að senda frá sér tónlistarstuttmynd sem var jafnframt opnunarmynd á hátíðinni RIFF í ár. Erlendur Sveinsson er leikstjóri myndarinnar en blaðamaður ræddi við hann um verkefnið.

Kynntu dagskrá RIFF 2024
Dagskrá kvikmyndahátíðarinnar RIFF í ár var kynnt á blaðamannafundi í Háskólabíói í morgun. Hrönn Marínósdóttir, stjórnandi RIFF, bauð gesti velkomna og talaði um sérstöðu og mikilvægi RIFF í íslensku samfélagi. Viðburðir og úrval mynda hefur sjaldan verið jafn mikið og á hátíðinni í ár sem hefst eftir viku þann 26. september og stendur yfir til 6. október.

Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina
Hið vinsæla bílabíó snýr aftur laugardaginn 21. september á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð Reykjavík, enn sem fyrr er það eitt það stærsta sem haldið hefur verið hér á landi. Risastóru bíótjaldi verður komið fyrir við reiðhöllina í Víðidal þar sem tekið verður á móti gestum í sannkallaða kvimyndaveislu.

Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF
Suður-Kóreski handritshöfundurinn og leikstjórinn Bong Joon Ho verður heiðraður á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í ár. Hann er hvað þekktastur fyrir kvikmyndina Parasite, sem hlaut Óskarsverðlaun sem besta myndin árið 2020.

„Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu“
Norsk-íslenska kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir á heiðurinn að opnunarmynd Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík í ár, RIFF, en hún hefst í Háskólabíói 26. september næstkomandi og stendur til 6. október. Myndin ber heitið Elskulegur er frumraun Lilju á hvíta tjaldinu og byggir á hennar eigin hjónabandskrísu.

Nastassja Kinski heiðursgestur á RIFF í ár
Þýska kvikmyndaleikkonan og fyrirsætan Nastassja Kinski er heiðursgestur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í ár og hreppir heiðursviðurkenningu RIFF. Hátíðin hefst í Háskólabíói þann 26. september næstkomandi og stendur til 6. október.

„Þú getur verið feimin og á sama tíma fær um öfgafyllstu tegundir tjáningar“
Hin franska Isabelle Huppert, stórstjarna í evrópskri kvikmyndagerð, er heiðursgestur á Riff í ár. Huppert segir leik sinn byggjast á innsæi og eðlishvöt. Hún er áhugasöm um íslenska kvikmyndagerð og er spennt fyrir því að vinna með íslenskum leikstjóra.

Konur í krísu, siðblindir síkópatar og morðkvendi
Isabelle Huppert, ein þekktasta leikkona Frakklands og stórstjarna í evrópskri kvikmyndagerð, er heiðursgestur á RIFF í ár. Í tilefni af komu Huppert til landsins hefur Vísir tekið saman nokkra magnaða leiksigra hennar.

Nýsleginn formaður situr fyrir svörum
Gísli Snær Erlingsson, sem er nýtekinn við sem formaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, mun sitja fyrir svörum og ræða framtíðarsýn stofnunarinnar á opnum fundi með kvikmyndagerðarfólki á morgun, mánudag, klukkan 16 í Norræna húsinu.

Urmull af íslenskum myndum á hvíta tjaldinu um helgina
Kvikmyndahátíðin RIFF stendur nú yfir og mun gera næstkomandi viku. Nú um helgina verða íslenskar kvikmyndir í hávegum hafðar og þónokkrar íslenskar myndir sem ekki hafa verið sýndar áður á Íslandi verða á hvíta tjaldinu um helgina.

Íslensk frumraun og Cannes-verðlaunahafi keppa um Gullna lundann
Níu myndir keppa um Gullna lundan, aðalverðlaun RIFF, í ár. Meðal þátttakenda eru sigurvegarar á Cannes og Locarno en einnig er þar að finna fyrstu mynd íslenska leikstjórans Ninnu Pálmadóttur í fullri lengd.

„Reykjavík er auðvitað frábær kvikmyndahátíðaborg“
Undirbúningur fyrir kvikmyndahátíðina RIFF er í fullum gangi en hún verður haldin dagana 28. september til 8. október í Háskólabíó og víðar. Stjórnandi hátíðarinnar segir markmið hátíðarinnar að bæta kvikmyndamenningu og kynna kvikmyndaborgina Reykjavík.

Taugaveiklaður ræningi, sjoppuverur og fleiri keppa um bestu stuttmyndina
Tíu nýjar íslenskar stuttmyndir keppa um verðlaun fyrir bestu stuttmyndina á RIFF í ár. Meðal keppenda eru bæði nýir og reyndir leikstjórar. Sigurmyndin verður sýnd á Rúv og hlýtur leikstjóri hennar 300 þúsunda gjafabréf hjá Trickshot.

Töfrandi listakona, dauð gaupa og undarlegt samband systra, meðal mynda á RIFF
Kvikmyndahátíðin Reykjavík film festival, eða RIFF, verður haldin í tuttugasta skiptið í ár og fer fram dagana 28. september til 8. október. Hátíðin hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein eftirsóttasta kvikmyndahátíð Norðurlanda og því spennandi að sjá úrvalið í ár.

Life of Pi á risaskjá í Laugardalslaug
Stærsti sundbíóviðburður RIFF hingað til verður haldinn 25. ágúst næstkomandi. Myndin Life of Pi verður sýnd á 100 fermetra skjá sem er sá stærsti sem settur hefur verið upp utandyra á Íslandi.

Háskólabíó verður aðalbíóhús RIFF
Háskólabíó verður aðalbíóhús kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem fram fer í haust. Bíóhúsið verður skreytt að innan í samstarfi við Góða Hirðirinn.

Hundrað dagar í RIFF
Hundrað dagar eru í að Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, eða RIFF, verður sett formlega og það í tuttugasta sinn. Hátíðin hefst þann 28. september og mun standa yfir til 8. október. Frá því hátíðin var haldin fyrst hefur hún stækkað í gegnum árin.

RIFF á lista yfir mikilvægustu kvikmyndahátíðarnar
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, var á dögunum valin ein af tuttugu mikilvægustu alþjóðlegu kvikmyndahátíðum ársins af tímaritinu The Moviemaker. Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, segir þetta mikinn heiður.

RIFF í formlegt bandalag með sjö evrópskum hátíðum
RIFF, Alþjóðleg Kvikmyndahátíð í Reykjavík, tekur þátt í samstarfi sjö evrópskra kvikmyndahátíða sem deila með sér þekkingu á ólíkum sviðum.

Húrra fyrir evrópskri kvikmyndagerð!
Það er mikið fagnaðarefni að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin séu haldin á Íslandi í ár og ástæða er til að hrósa stjórnvöldum fyrir að leggja í þá vinnu og fjármögnun. Verðlaunin eru stórviðburður og verða afhent, eins og kunnugt er, í Hörpu næsta laugardag að viðstöddu stórskotaliði evrópskrar kvikmyndaframleiðslu. Sýnt verður frá verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu á RÚV og um alla Evrópu.

Dynjandi lófatak á frumsýningu Sumarljós og svo kemur nóttin
Það var margt um manninn á lokahófi RIFF í Háskólabíói síðast liðið laugardagskvöld þar sem RIFF var haldin í nítjánda sinn. Aðsókn á myndir var með besta móti á hátíðinni.

Ótemjureið hlaut Gullna lundann
Ótemjureið eftir Lolu Quivoron hlaut verðlaunin Gullna lundann, meginverðlaun RIFF í ár, en hátíðin var haldin í nítjánda sinn og hlaut mikla aðsókn.

„Áríðandi saga um styrkleika mannsandans“
Konungur fiðrildanna, ný kvikmynd eftir Ólaf de Fleur, var sýnd á RIFF í þessari viku. Myndin var frumsýnd á Nordisk Panorama hátíðinni í síðustu viku og hefur hlotið lofsamlega dóma gagnrýnenda.

Ófullkomnun fagnað í allri sinni dýrð
Myndin Karókí Paradís sem sýnd hefur verið á RIFF hefur vakið mikla eftirtekt og fengið góða dóma. Hún er tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem afhent verða í Hörpu í desember.

„Það er ekki hægt að kaupa ánægju með peningum“
Kvikmyndaleikstjórunum Albert Serra og Alexandre O. Philippe voru veitt heiðursverðlaun RIFF 2022 fyrir framúrskarandi listræna sýn. Leikstjórarnir eru staddir hér á landi og veittu verðlaununum móttöku fyrir helgi í Húsi máls og menningar.

Persónuleg heimildarmynd um einstakt ferðalag til Nepal
Listamaðurinn Brandur Bryndísarson Karlsson deilir ævintýralegu ferðalagi sínu til Nepal í nýfrumsýndri heimildarmynd sem ber nafnið Atomy og er eftir Loga Hilmarsson. Myndin segir frá einstöku ferðalagi Brands þegar hann fór að hitta meistara austrænna lækningafræða, Rahuk Bharti, og var frumsýnd á RIFF í gærkvöldi.