Ferðaþjónusta

Þrettán vilja verða ferðamálastjóri
Alls bárust fjórtán umsóknir um embætti ferðamálastjóra. Einn dró umsókn sína til baka en umsóknarfresturinn rann út 10. nóvember síðastliðinn.

Telja göngubann ekki samræmast lögum
Ferðafélagið Útivist telur bann við göngu upp Kirkjufell samræmist ekki lögum um almannarétt. Ekki sé hægt að setja ferðir óvanra göngumanna undir sama hatt og ferðir skipulagðra hópa sem búa að mikilli þekkingu.

Meiri gæði, öryggi og ánægja í ferðamannalandinu Íslandi
Þessa dagana mætir okkur í matvöruverslunum brosandi fólk og býður Neyðarkallinn til sölu, eða raunar Neyðarkonuna þetta árið. Ég hvet auðvitað öll til að styðja við öflugt starf björgunarsveitanna okkar um allt land, með því að kaupa neyðarfólkið eða með öðrum hætti. Starf þeirra er ómetanlegt og landið væri einfaldlega ekki eins öruggt og raun ber vitni ef þeirra nyti ekki við.

Vök Baths hlutu Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar
Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar voru afhent í dag í nítjánda sinn en það voru Vök Baths á Egilsstöðum sem hlutu verðlaunin að þessu sinni. Eliza Reid afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Flestar brottfarir í október voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 159 þúsund í nýliðnum október samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða fjórða fjölmennasta októbermánuðinn frá því mælingar hófust. Brottfarir í ár voru 80% af því sem þær voru í októbermánuði 2018 eða þegar mest var.

Fátt sem fellur með krónunni
Arion banki spáir sex prósent hagvexti árið 2022 sem er nokkuð meiri vöxtur en hafði verið gert ráð fyrir. Bankinn segir að gengi íslensku krónunnar muni halda áfram að gefa eftir fram á næsta ár. Fátt falli með henni um þessar mundir.

Icelandair flýgur til Prag og Barcelona
Icelandair hefur kynnt tvo nýja áfangastaði í millilandaflugi sumarið 2023, Prag og Barcelona. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið flýgur áætlunarflug til Prag. Flogið verður í morgunflugi.

„Þrjú banaslys á fjórum árum, það er bara of mikið“
Landeigendur hafa bannað göngur á Kirkjufell við Grundarfjörð fram á næsta sumar. Þrjú banaslys á fjórum árum sé ekki ásættanlegt og því þurfi að bregðast við.

Bannið við gönguferðum á Kirkjufell sé skiljanlegt
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að ákvörðun landeigenda um að banna gönguferðir á Kirkjufell sé vel ígrunduð. Það sé skiljanlegt að vant fjallafólk setji sig á móti ákvörðuninni en raunin sé sú að óvant ferðafólk sé stór hluti þeirra sem sæki á svæðið.

Bláa lónið setur stefnuna á Kauphöllina í byrjun næsta árs
Bláa lónið, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, vinnur nú að undirbúningi að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað sem það áformar að geti orðið að veruleika á fyrri hluta næsta árs. Tvö innlend fjármálafyrirtæki hafa verið fengin sem ráðgjafar Bláa lónsins við skráningarferlið þar sem til stendur að bjóða hluti í félaginu til sölu. Fyrirtækið var verðmetið á um 60 milljarða í síðustu stóru viðskiptum með bréf í félaginu fyrir meira en ári.

Banna gönguferðir upp Kirkjufell
Landeigendur jarðanna Kirkjufells, Háls og Búða hafa ákveðið að banna allar göngur á Kirkjufelli frá og með deginum í dag þar til um miðjan júní. Þrjú dauðsföll hafa orðið í fjallinu á fjórum árum.

92 þúsund flugu með Play í október
Flugfélagið Play flutti 91.940 farþega í október. Sætanýting var 81,9 prósent, samborið við 81,5 prósent í september.

Fólk sem býr og starfar við Elliðavatn lýsir dásemdum útvistarperlunnar
„Það er alveg dásamlegt að vinna hérna. Þessi kyrrð og nánd við náttúruna. Þetta er ólýsanlegur vinnustaður. Þetta eru forréttindi að fá að vinna á þessum stað,“ segir Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, en skrifstofa félagsins er í Elliðavatnsbænum. Auður býr auk þess í Norðlingaholti, en hún segir það meðal lífsgæða hverfisins hvað það er nálægt Heiðmörk.

Átta barna móðir ekur daglega um veg sem er að síga í sjóinn
Samgöngur brenna á Fljótamönnum. Þeirra heitasta ósk er að fá jarðgöng milli Siglufjarðar og Fljóta.

„Sorgleg afleiðing ólýðræðislegra stjórnarhátta“
Afsögn Önnu Dóru Sæþórsdóttur, fyrrverandi forseta Ferðafélags Íslands, kom ekki til vegna aðgerðaleysis stjórnar í eineltis- og kynferðisofbeldismálum, „heldur var hún sorgleg afleiðing ólýðræðislegra stjórnarhátta og eineltistilburða hennar.“

Ferðamenn dvelja lengur og eyða meiru en nokkru sinni áður
Þrátt fyrir að ferðaþjónustuárið hafi farið hægt af stað í kjölfar afléttinga takmarkana heimsfaraldursins víða um heim, er margt sem bendir til þess að velta í ferðaþjónustu gæti náð óþekktum hæðum á árinu 2022.

Sannleikurinn er sagna bestur
Undanfarnar vikur hefur Ferðafélag Íslands verið mikið í fjölmiðlum þar sem m.a. hafa komið fram alvarlegar ásakanir í garð stjórnar, og félagið jafnvel kallað „skjallbandalag“ þar sem þöggun og meðvirkni ráði ríkjum”.

Gestir klæða sig úr fötunum inni í fjalli í Þjórsárdal
„Fjallaböðin“, hótel og baðaðstaða er nýtt verkefni í Þjórsárdal, sem hófst í dag þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Einnig verður byggð upp gestastofa, veitingaaðstaða, fjölbreyttir gistimöguleikar, sýningarhald og upplýsingamiðstöð á staðnum.

Actice ehf. undir hatt Kynnisferða
Ferðaþjónustufyrirtækið Kynnisferðir hefur nú undirritað samkomulag við fyrirtækið Actice ehf. um kaup á því síðarnefnda. Actice ehf. eða Activity Iceland sérhæfir sig í sérsniðnum ferðalausnum í íslenskri náttúru.

Icelandair hækkar en erlendir keppinautar lækka
Hlutabréfaverð fjölda erlendra flugfélaga hefur lækkað skarpt á einu ári. Þrátt fyrir það hefur Icelandair hækkað lítillega á sama tíma. Viðskiptalíkan Icelandair byggir á tengiflugi milli Evrópu og Ameríku, en sjóðstjóri segir að af þeim sökum sé rekstur flugfélagsins ekki eins berskjaldaður fyrir verri efnahagshorfum í Evrópu og önnur flugfélög.

Áhugavert fyrsta rekstrarár eftir að hafa opnað hótel í upphafi faraldurs
Hún var ferðamálastjóri í áratug áður en hún keypti aflagðan sveitaskóla nyrst í Skagafirði og breytti í hótel með ærnum kostnaði. Sama dag og Ólöf Ýrr Atladóttir og maður hennar opnuðu var hins vegar öllu skellt í lás vegna covid.

Blússandi aðsókn í Skógarböðin
Aðsóknin að Skógarböðunum í Eyjafirði gegnt Akureyri hefur verið miklu meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir en nú hafa tæplega sextíu þúsund manns heimsótt böðin frá því að þau opnuðu í vor. Næsta skref er að byggja Spa hótel við böðin með hundrað og tuttugu herbergjum.

Skráðar gistinætur aldrei fleiri og framboð á gistirýmum aldrei meira
Skráðar gistinætur fyrstu níu mánuði ársins voru 7.144.438 og er þetta í fyrsta sinn sem fjöldinn fer yfir sjö milljónir. Framboð af gistirýmum hefur aldrei verið meira en í september síðastliðnum, eða 11.677 herbergi en þörf er á enn fleirum, að sögn framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.

Verðmat IFS á Icelandair 29 prósentum yfir markaðsgengi
IFS hækkaði verðmat sitt á Icelandair eftir uppgjör þriðja ársfjórðungs og verðmetur nú félagið 29 prósentum yfir markaðsgengi við upphaf dags. Hærra verðmat má rekja til þess að gert er ráð fyrir að reksturinn fari batnandi samhliða meðal annars lækkandi olíuverði og betri sætanýtingu.

„Þetta var algjör hörmung“
Samgönguverkfræðingur segir ekkert því til fyrirstöðu að á höfuðborgarsvæðinu verði til almenningssamgöngur á pari við þær sem finna má í borgum á borð við Lundúnir og Kaupmannahöfn - en halda þurfi rétt á spöðunum. Fréttastofa tók snúning á samgöngumálunum og ræddi við ferðamenn, sem sögðu farir sínar ekki sléttar af Strætó.

Bílaleiga Akureyrar með sjö þúsund bíla og 300 starfsmenn
Umsvif Bílaleigu Akureyrar hafa aldrei verið eins mikil og í ár en fyrirtækið er með yfir sjö þúsund bíla í leigu og starfsfólkið fór yfir þrjú hundruð í sumar. Þá styttist óðum í fimm hundraðasta rafmagnsbílinn.

Stefnt að því að skemmtiferðaskip tilkynni leiðina að næstu höfn
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, stefnir að því að leggja fram frumvarp á vorþingi sem felur í sér ákvæði um að skemmtiferðaskip þurfi að tilkynna um áætlaða leið að næstu höfn hér á landi.

Renata nýr framkvæmdastjóri hjá Arctic Adventures
Renata Blöndal hefur verið ráðin til ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures þar sem hún tekur við stöðu framkvæmdastjóra sölu- og þjónustu.

Settu upp Blátt lón og bræddu hraun í Lundúnum
Stærsti kynningarviðburður seinni ára á Íslandi sem áfangastað fer nú fram í Lundúnum. Öllu hefur verið tjaldað til fyrir viðburðinn, til að mynda hefur manngerðu Bláu lóni verið komið fyrir.

Vildu banna forsetanum að ræða við stjórn og starfsfólk Ferðafélagsins
Tillaga sem stjórn Ferðafélagsins lagði fram við Önnu Dóru Sæþórsdóttur, þáverandi forseta þess, gerði ráð fyrir að hún ætti hvorki að vera í samskiptum við framkvæmdastjóra, stjórn né starfsfólks á skrifstofu félagsins. Hún segist hafa litið á tillöguna sem „þöggunarsamning“.