Leik lokið: FH - Fram 27-23 | Hefja titil­vörnina á sigri

Smári Jökull Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson og félagar byrja nýtt tímabil á heimavelli sínum.
Aron Pálmarsson og félagar byrja nýtt tímabil á heimavelli sínum. Vísir/Diego

FH bar sigur úr býtum gegn Fram þegar liðin mættust í 1. umferð Olís-deildar karla í handknattleik í kvöld. Lokatölur 27-23 og FH hefur því titilvörnina þetta tímabilið á sigri.

FH-ingar tóku frumkvæðið snemma í kvöld og komust mest sex mörkum yfir í fyrri hálfleik. Þeir leiddu 14-10 í hálfleik og héldu forskotinu í síðari hálfleik. Fram náði að minnka muninn í eitt mark í stöðunni 22-21 en lengra komust þeir ekki.

Lokatölur 27-23 og Hafnfirðingar hefja því titilvörnina í Olís-deildinni á góðum sigri.

Nánari umfjöllun og viðtöl á Vísi innan skamms.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira