Leik lokið: Valur - Álftanes 87-81 | Valur innbyrti gríðarlega mikilvægan sigur Hjörvar Ólafsson skrifar 16. janúar 2025 20:54 vísir/Anton Valur hafði betur 87-81 þegar liðið fékk Álftanes í heimsókn í N1-höllina að Hlíðarenda í 14. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Liðin voru jöfn að stigum með 10 stig fyrir þessa umferð líkt og ÍR en liðin sitja í áttunda til tíunda sæti deildarinnar. Barist var því um stig sem gætu fjarlægt liðin frá fallsvæðinu og fært þau um leið nær sæti í úrslitakeppninni. Valsmenn fengu þau gleðitíðindi fyrir leikinn þegar þeir sáu Kristófer Acox hlaupa um meiðslalausan í búning en Kristófer spilaði í kvöld sínar fyrstu mínúturnar síðan hann varð fyrir meiðslum á hné í úrslitarimmu Vals gegn Grindavík síðastliðið vor. Valur hafði frumkvæðið fyrstu tvo leikhlutana og var mest níu stigum yfir í fyrri hálfleiknum. Hörður Axel Vilhjálmsson og David Okeke sáu þó til þess að staðan var jöfn, 46-46, þegar liðin röltu til búningsherbergja í hálfleik. Gestirnir frá Álftanesi komu svo sterkari til leiks inn í þriðja leikhuta og skoruðu fyrstu fimm stig leikhlutans. Það sem eftir lifði þriðja leikhlutans skiptust liðin á að leiða. Taiwo Badmus minnkaði muninn fyrir Val í eitt stig, 63-64, með þriggja stiga körfu undir lok þriðja leikhluta. Valur var svo sterkari á svellinu undir lok leiksins en þar voru Kristinn Pálsson og Adam Ramstedt í aðalhlutverki. Ramstedt kláraði leikinn endanlega með stigum sínum af vítalínunni. Valur er þar af leiðandi með 12 stig líkt og ÍR í áttunda til níunda sæti deildarinnar en Breiðhyltingar unnur óvæntan sigur gegn toppliði Stjörnunnar fyrr í kvöld. Álftanes er hins vegar í tíunda sæti með 10 stig. Finnur Freyr Stefánsson nældi í dýrmæt stig. Vísir/Pawel Finnur Freyr: Gladdi mig mest að sjá Kristó aftur á gólfinu „Þettar var vel spilaður leikur af beggja hálfu og svolítil skák eins og við var að búast. Álftanesliðið er vel drillað og við þurftum að bregðast við alls konar vel upp settum sóknarleik og mér fannst við bara gera það býsna vel. Eftir jafnan og spennandi leik vorum við ofan á þegar það skipti mestu máli og ég er mjög sáttur við það,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals. „Eftir slaka frammistöðu á móti Þór í síðustu umferð þá var mikilvægt að fá alvöru svar og það var allt annað lið sem mætti til leiks að þessu sinni. Það er mjög kærkomið að fá Kristófer aftur til baka og það gefur augaleið að hann styrkir liðið umtalsvert. Við vitum öll hvað hann gefur okkur og hversu mikilvægur hann er okkar liði. Dýnamíkin í liðinu breytist með tilkomu Kristófers og það var gaman að sjá hann í action afur eftir að hafa verið mjög duglegur í endurhæfingu sinni. Við eigum svo Frank Aaron Booker inni og við erum hægt og rólega að ná vopnum okkar á nýjan leik,“ sagði Finnur Frey enn fremur. „Það er hins vegar klárt að við megum ekki svífa of hátt upp til skýjanna eftir þennan sigur og skella langt niður og við gerðum gegn Þór. Við eigum bikarleik við Sindra á mánudaginn og deildarleik við Keflavík í kjölfarið. Handan við hornið eru krefjandi verkefni og við þurfum að halda áfram að bæta í ákefðina á æfingum og í leikjum,“ sagði hann um framhaldið. Atvik leiksins Kristinn Pálsson setti fjögur stig í röð á krúsíal tíma en í sókninni þar á undan hafði skot hans verið verið varið. Kristinn lét það ekki á sig fá og kom Val yfir þegar skammt var eftir Adam Ramstedt kom Val svo endanlega yfir línuna af vítalínunni. Stjörnur og skúrkar Taiwo Badmus var stigahæstur í jöfnu liði Vals með 20 stig en áðurnefndur Kristófer Acox er greinilega nálægt því að öðlast fyrri styrk eftir langa veru á meiðslalistanum. Kristófer spilaði rúmar 18 mínútur í sínum fyrsta leik síðan í maí á síðasta ári. Hjá Álftanesi var Justin James atkvæðamestur með 21 stig David Okeke fylgdi fast á hæla hans með sín 20 stig en hann var einnig öflugur á hinum enda vallarins. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Jóhannes Páll Friðriksson, Jakob Árni Ísleifsson og Bjarni Rúnar Lárusson, dæmdu leikinn prýðilega en eins og við var að búast miðað við mikilvægi leiksins voru þjálfarar og leikmenn liðanna ekki ávallt sáttir við störf þeirra og ákvarðanir. Þeir fá sjö í einkunn. Stemming og umgjörð Ágætlegar var mætt í Valsheimilið og andrúmsloftið var spennuþrungið. Kappið bar ekki fegurðina ofurliði sem er það sem mestu máli skiptir þegar lið leiða saman hesta sína í kappleik sem skiptir þá sem taka þátt í honum miklu máli. Bónus-deild karla Valur UMF Álftanes