Fréttir
Tveir handteknir vegna gruns um mansal á nuddstofu í Reykjavík
Tveir starfsmenn á nuddstofu í Reykjavík voru handteknir í síðustu viku, grunaðir um mansal. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta í samtali við Vísi.
Deildar meiningar um áfengi og piparúða
Í hádegisfréttum fjöllum við um deilu sem upp virðist risin innan ríkisstjórnarinnar og varðar netsölu með áfengi hér innanlands.
„Forsætisráðherra með dólg og svo rokinn úr salnum í fýlu“
Þingfundur hófst nú klukkan 10:30 og byrjaði með látum í umræðu um fundastjórn forseta. Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu upp í pontu hver á fætur öðrum og auglýstu eftir fjárlagafrumvarpinu.
Sót yfir allri íbúðinni þegar hún kom heim frá útlöndum
Jóhanna Kristín Kristinsdóttir var erlendis á föstudaginn þegar eldur kviknaði á fyrstu hæð í blokkinni hennar að Kóngsbakka 1. Hún kom heim í gær og birti myndbönd á Instagram sem sýndu mikið sót sem hafði lagst yfir alla íbúðina.
Mikilvægt að ómenningu sé ekki sýnt umburðarlyndi
Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra varðandi heiðurstengt ofbeldi og umfang þess á Íslandi. Hún segir tilefnið vera ljótt mál um ofbeldi innan palestínskrar fjölskyldu á Suðurnesjum sem virðist vera heiðurstengt.
Willum blandar sér í málið og útskýrir bréfið
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur nú blandað sér í umræðu ráðherra um netsölu áfengis með tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem hann fer yfir bréfið sem hann sendi Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra fyrr í þessum mánuði. Bréfið varð til þess að Sigurður Ingi sendi lögreglu erindi um málið.
Erindi ráðherra hafi engin áhrif á rannsókn sem lýkur fljótlega
Áfengissala í netverslun hefur verið til rannsóknar og á borði lögreglu í þrjú ár og 360 daga en fimm netverslanir eru nú undir eftirliti lögreglu. Erindi sem Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sendi lögreglunni varðandi málið hefur lítil sem engin áhrif á rannsókn lögreglunnar.
Sagði „kærustuna“ í sambandi þó hún segði annað
Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, í Héraðsdómi Vesturlands vegna hótana.
Svæðinu við Dettifoss lokað vegna færðar
Svæðinu við Dettifoss hefur verið lokað vegna mikils vatnselgs. Mikið magn af snjó safnaðist fyrir á svæðinu í óveðrinu sem gekk yfir landið í síðustu viku og með hlýnandi veðri hefur hann tekið að bráðna mjög hratt. Aðstæður sem hafa skapast eru orðnar varasamar, segir í tilkynningu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Enginn vinningshafi gefið sig fram í happdrætti Ástþórs
Ástþór Magnússon segist ekkert vita um hvort einhver hafi hreppt stærsta vinninginn í happdrætti Lýðræðishreyfingarinnar fyrir forsetaframboð Ástþórs. Vinningurinn var rafmagnsbíll af gerðinni Hupmobile K3 en ásamt honum var fjöldinn allur af smærri vinningum.
Lágvaxinn, grjótharður nagli og alltaf hress
Skúli Óskarsson kraftlyftingamaður er fallinn frá. Ekki er víst að yngri kynslóðin geri sér fulla grein fyrir því hvers kyns stórstjarna Skúli var á sínum tíma og átti hvert bein í þjóðinni. Hann lét sannarlega til sín taka, svo mjög að Laddi samdi um hann lag sem naut talsverðra vinsælda.
Þjóðaróperan alls ekki „úti í kuldanum“
Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, segir það alrangt að Þjóðaróperan sé „úti í kuldanum“. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að hún verði að veruleika og taki til starfa 1. janúar á næsta ári, 2025.
Einn fluttur á slysadeild eftir að bíll endaði utan vegar
Bíl var ekið af Elliðavatnsvegi, sem er einnig þekkt sem Flóttamannaleið, í morgun og var einn fluttur á slysadeild.
Lokað í Bláa lóninu vegna gasmengunar
Lokað verður í Bláa lóninu til hádegis í það minnsta í dag vegna slæmra loftgæða. Í nótt var suðaustanátt og gasmengun úr eldgosinu í Sundhnúkagígum blés til norðvesturs yfir Reykjanesbæ og Bláa lónið.
Ellefu aðildarfélög BSRB skrifa undir kjarasamninga
Ellefu aðildarfélög BSRB undirrituðu á öðrum tímanum í nótt nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samið var á sambærilegum nótum og á almennum markaði í vor.
Sagðist ekki hafa slegið eiginkonuna heldur sjálfan sig með pönnu
Karlmaður hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tvær líkamsárásir gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni.
Blíðviðri á Norðurlandi í dag
Blíðviðri verður á Norðurlandi í dag og getur hitinn náð allt að 19 stigum. Rigning verður með köflum á sunnanverðu landinu en yfirleitt bjart fyrir norðan. Líkur eru á þokulofti á annesjum við norður- og austurströndina.
Heitavatnslaust á Seltjarnarnesi
Ekkert heitt vatn er á Seltjarnarnesi vegna rafmagnsbilunar hjá Hitaveitu Seltjarnarness. Viðgerðarteymi hefur verið kallað út og kemur heitt vatn aftur á kerfið innan skamms.
Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei
Öldungadeild argentínska þingsins hefur naumlega samþykkt efnahagsaðgerðapakka Javier Milei, forseta Argentínu. Á sömu stundu tókust mótmælendur og lögregla á fyrir utan þinghúsið í Buenos Aires.
Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita
Loka þurfti einum vinsælasta ferðamannastað í Grikklandi, Akrópólis í Aþenu, í dag vegna mikils hita. Þá var einnig skólum lokað og gefin úr viðvörun frá heilbrigðisyfirvöldu. Hitabylgja gengur nú yfir landið. Methiti, miðað við árstíma, var í dag og verður á morgun í Aþenu. Hitastigið gæti náð 43 gráðum.
Auglýsti hlaðvarp Miðflokksins í pontu
Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins uppskar hlátur í lok ræðu sinnar í eldhúsdagsumræðum í kvöld þegar hann auglýsti hlaðvarp flokksins, Sjónvarpslausa fimmtudaga, sem hann og Sigmundur Davíð flokksbróðir hans halda uppi.
Flóttamannastraumurinn renni þangað sem stærstu glufurnar finnast
Dómsmálaráðherra fagnar því að boðaðar séu veigamiklar breytingar á útlendingalöggjöf í áraraðir. Í eldhúsræðu sinni sagði hún málefni útlendinga eru viðkvæman málaflokk en hún hræðist ekki vegferðina sem er fram undan í útlendingamálum.
Um tólf vopnuð útköll lögreglu og sérsveitar í hverri viku
Alls fór lögreglan á Íslandi í 180 útköll á síðasta ári þar sem hún þurfti að vopnast. Flest voru útköllin á höfuðborgarsvæðinu, eða alls 97. Sérsveitin fór í alls 461 vopnuð útköll á síðasta ári. Samanlagt eru það 558 útköll eða um 12 útköll á viku.
Piparúði á mótmælendur barst að þingmönnum Pírata
Lögregla beitti piparúða á mótmælendur fyrir utan Alþingishúsið í kvöld. Nokkrir þingmenn Pírata voru á svæðinu þegar piparúðanum var hleypt af og barst hluti piparúðans að þeim svo þá sveið í augun.
Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists
Fræðimenn við Humboldt-háskólann í Berlín hafa uppgötvað að gamall handritsbútur, sem hefur legið ósnertur á bókasafni í Þýskalandi um áratugaskeið, er úr svokölluðu Bernskuguðspjalli Tómasar. Um er að ræða elstu útgáfu af guðspjallinu sem vitað er um.
„Vinstri vængurinn er ekki brotinn, en hann er laskaður“
Eva Dögg Davíðsdóttir þingkona Vinstri grænna sagði í ræðu sinn í eldhúsdagsumræðum á þingi í kvöld mikilvægt að verja vinstrið og koma í veg fyrir skautun. Hún ræddi tímann og mikilvægi ákvarðana sem teknar eru í nútíð fyrir framtíð.
Sér fyrir sér 2031 án hvalveiða og sjókvíaeldis
Þingmaður Pírata sagði ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar komna yfir síðasta söludag og gagnrýndi hvalveiðileyfið sem matvælaráðherra tilkynni um í gær, í eldhúsræðu sinni í kvöld. Hann sagði að fyrsta verk Pírata í ríkisstjórn væri að styrkja Samkeppniseftirlitið vegna þess að kapítalismi án samkeppni kallist arðrán.
Sameyki framlengdi kjarasamning við ríkið
Samninganefndir ríkisins og Sameykis gengu frá samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningum aðila við Fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs í kvöld.
Ósanngjarnt að Íslendingar borgi íbúðina tvisvar eða þrisvar
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar byrjaði ræðu sína í eldhúsdagsumræðum á því að ræða veðrið á Íslandi og það lága hitastig sem við búum við. Hann sagði á sama tíma það vera alveg sturlað að sama tala væri á stýrivöxtum mánuðum saman og meðalhitastigi á sumrin.
Yngsti þingmaðurinn vill að meira sé gert fyrir ungt fólk
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði flokkinn alltaf halda áfram að ganga í þau mál sem þarf að vinna. Þá skipti ekki máli hvort málin séu umdeild eða hvort þau fái ekki athygli.