Formúla 1
82 83 84 85 86 87 88 89 90 … 152 ›
Vettel fremstur á ráslínu í tólfta skipti á árinu Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann varð aðeins 0.009 úr sekúndu á undan Jenson Button á McLaren, en Lewis Hamilton á McLaren var þriðji fljótastur og Felipe Massa á Ferrari á eftir honum. Formúla 1 8.10.2011 07:34
Button fremstur í flokki á lokaæfingunni Jenson Button á McLaren náði besta tíma á þriðju og síðustu æfingu Formúlu 1 ökumanna á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann var 0.507 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren, en Sebastian Vettel á Red Bull var með þriðja besta tíma, 0.867 á eftir Button. Fjórði varð Fernando Alonso á Ferrari, 1.024 sekúndu á eftir Button. Formúla 1 8.10.2011 03:14
Button fljótastur á æfingum í Japan í nótt Jenson Button á McLaren náði besta tíma á báðum æfingum Formúlu 1 liða sem fóru fram á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Á fyrri æfingunni var hann aðeins 0.091 úr sekúndu fljótari en næsti ökumaður, sem var Lewis Hamilton á McLaren. Á síðari æfingunni var Button 0.174 úr sekúndu fljótari en Fernando Alonso á Ferrari. Formúla 1 7.10.2011 07:46
McLaren samdi við Button um áframhaldandi samstarf McLaren Formúlu 1 liðið tilkynnti í dag að liðið hefur gert áframhaldandi samstarfssamning við Jenson Button. Button er í öðru sæti í heimsmeistaramóti ökumanna á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull. Báðir keppa þeir í Formúlu 1 mótinu á Suzukua brautinni í Japan um helgina, þar sem Vettel getur tryggt sér meistaratitilinn í ár, en Button á enn tölfræðilega möguleika á að vinna meistaratitilinn. Formúla 1 5.10.2011 14:45
Vettel og Webber vilja létta japönskum áhorfendum lífið Formúlu 1 meistarinn Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull liðinu keppa í japanska Formúlu 1 kappakstrinum um næstu helgi og vonast eftir góðu móti, sem létt getur japönskum áhorfendum lífið. Japanska þjóðin hefur gengið i gegnum erfiðleika vegna náttúruhamfaranna sem voru í mars og Formúlu 1 ökumenn hafa sýnt þeim samhug í verki vegna þess. Formúla 1 3.10.2011 20:00
Schumacher sexfaldur sigurvegari á Suzuka brautinni Michael Schumacher hjá Mercedes liðinu er sá Formúlu 1 ökumaður sem hefur oftast fagnað sigri á Suzuka-brautinni í Japan, en keppt verður á brautinni um næstu helgi. Mótið er það fyrsta í Asíu á árinu, en keppt verður í Suður Kóreu um aðra helgi. Brautin í Suzuka er í uppáhaldi hjá mörgum ökumönnum, og Nico Rosberg liðsfélagi Schumacher, telur hana eina af þeim bestu sem notuð er á keppnistímabilinu, rétt eins og Schumacher. Formúla 1 3.10.2011 16:00
Button: Verður tilfinningaþrungið að keppa í Japan Bretinn Jenson Button hjá McLaren segir Japan vera sinn annan heimavöll í Formúlu 1, en hann á japanska kærustu sem heitir Jessica Mishibata. Hún er þekkt fyrirsæta í sínu heimalandi og þau skötuhjú dvelja þar oft á tíðum. Um tíma var óljóst hvort Formúlu 1 mótið í Japan gæti farið fram vegna náttúruhamfaranna sem urðu í landinu í mars, en Button telur að mótsthaldið geti gefið japönsku þjóðinni styrk, en miklill áhugi er á Formúlu 1 í Japan. Formúla 1 30.9.2011 20:30
Tolla og skattayfirvöld í Indlandi að hrella Formúlu 1 liðin Fyrsta Formúlu 1 mótið í Indlandi fer fram í lok október, en snuðra er hlaupinn á þráðinn þar sem tolla og skattayfirvöld þar í landi eru ströng hvað allan innflutning varðar. Forráðamenn Formúlu 1 liða hafa verið í viðræðum við tilheyrandi aðila varðandi innflutning á bílum og starfsmönnum, en svo virðist sem skattleggja eigi bæði lið og ökumenn fyrir að koma til landsins. Formúla 1 28.9.2011 11:37
Kobayashi telur jákvætt að keppt sé í Japan eftir náttúruhamfarirnar Japanski Formúlu 1 ökumaðurinn Kamui Kobayashi verður á heimavelli í næstu keppni, sem verður í Japan um aðra helgi. Hann hefur stutt landa sína með ráði og dáð eftir náttúruhamfarirnar í Japan fyrr á árinu og útbjó m.a. rafræna Formúlu 1 bók í samstarfi við ökumenn og keppnisliðin til styrktar Rauða krossinum í Japan. Formúla 1 27.9.2011 14:36
Vettel og Red Bull vilja taka titilinn með trompi Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins segir að liðið og Sebastian Vettel vilji landa meistaratitli ökumanna með sigri í næsta móti sem er í Japan eftir hálfan mánuð. Vettel nægir tíunda sætið í mótinu og eitt stig, til að verða meistari þegar fimm mótum er ólokið á tímabilinu. Formúla 1 26.9.2011 15:51
Whitmarsh segir að Hamilton muni læra sína lexíu Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren liðsins hefur komið Formúlu 1 ökumanninum Lewis Hamilton til varnar, en Hamilton var harðlega gagnrýndur af Felipe Massa eftir mótið í Singapúr í gær. Hamilton keyrði aftan á Massa og hefur lent öðrum árekstrum á árinu. Formúla 1 26.9.2011 15:09
Stewart: Hamilton þarf að skoða hugarástand sitt Jackie Stewart sem er þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1 telur að Lewis Hamilton hjá McLaren þurfi að nálgast aksturinn á annan hátt í mótum en raunin er á köflum. Hamilton ók aftan á Ferrari ökumanninn Felipe Massa í keppninni í Singapúr í gær og hefur lent í óhöppum á þessu ári sem hann var valdur að. Formúla 1 26.9.2011 14:25
Vettel: Mjög ánægður með árangurinn Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu vann Formúlu 1 kappakstursmótið í Singapúr í dag og þegar fimm mótið er ólokið er hann aðeins einu stigi frá því að tryggja sér meistaratitilinn í Formúlu 1, annað árið í röð. Eftir mótið í dag getur aðeins Jenson Button há McLaren liðinu komið í veg fyrir það tölfræðilega séð. Formúla 1 25.9.2011 19:11
Vettel sigraði í Singapore - komin með níu fingur á titilinn Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir það að Sebastian Vettel, Red Bull, verði heimsmeistari í keppni ökumanna í Formúlu 1. Formúla 1 25.9.2011 14:32
Vettel getur orðið meistari í dag, en Hamilton í vandræðum Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu getur orðið heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 mótinu í Singapúr í dag, ef úrslitin í mótinu verða honum hagstæð. Vettel er fremstur á ráslínu, en fjórir keppinautar hans um titilinn eru í næstu sætum á eftir. Formúla 1 25.9.2011 10:19
Vettel getur slegið met Sebastian Vettel var ánægður með árangurinn í tímatökunni í Singapúr í dag. Hann náði besta tíma og hefur ellefu sinnum verið fremstur á ráslínu í Formúlu 1 á þessu ári. Vettel getur tryggt sér heimsmeistaratitilinn annað árið í röð ef úrslitin í kappakstrinum á sunnudag verða honum hagstæð. Formúla 1 24.9.2011 23:10
Vettel fremstur á ráslínu í ellefta skipti í ár Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökunni á Formúlu 1 brautinni í Singapúr í dag. Hann ók á tímanum 1:44.381 og Mark Webber á Red Bull náði næst besta tíma og var 0.351 úr sekúndu á eftir Vettel. Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma og var 0.428 sekúndum á eftir Vettel. Vettel verður fremstur á rásllínu í ellefta skipti á árinu í kappakstrinum á morgun. Formúla 1 24.9.2011 15:34
Webber sneggstur á lokæfingunni fyrir tímatökuna Mark Webber á Red Bull var fljótastur allra ökumanna á síðustu æfingu Formúlu 1 ökumanna í Singapúr í dag. Hann var 0.027 úr sekúndu fljótari en Jenson Button á McLaren, en Sebastian Vettel á Red Bull var með þriðja besta tíma. Vettel var 0.264 á eftir Webber. Formúla 1 24.9.2011 12:23
Vettel fljótastur í Singapúr í dag Sebastian Vettel á Red Bull náði besta aksturstímanum á seinni æfingu Formúlu 1 liða á götubrautinni í Singapúr í dag. Lewis Hamilton á McLaren hafði fyrr um daginn náð besta tíma á fyrri æfingu dagsins. Tími Vettel á seinni æfingunni var sá besti sem náðist í dag. Formúla 1 23.9.2011 15:06
Hamilton fljótastur á fyrstu æfingu Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á götubrautinni í Singapúr í dag. Hann varð 0.406 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Mark Webber á Red Bul varð þriðji, 1.467 sekúndu á eftir Hamilton. Formúla 1 23.9.2011 12:16
Vettel er ekkert kappsmál að landa meistaratitlinum um helgina Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu segir enga auka pressu á sér að reyna vinna meistaratitil ökumanna í Formúlu 1 í Singapúr um helgina. Hann á möguleika á því ef hann nær 125 stiga forskoti á næsta ökumann í stigamótinu, jafnvel þó fimm mót verði enn eftir, þegar mótinu í Singapúr er lokið. Vettel er núna með 112 stiga forskot á Fernando Alonso hjá Ferrari í stigamóti ökumanna. Vettel ræddi stöðuna í meistarakeppninni á fréttamannafundi í Singapúr í dag. Formúla 1 22.9.2011 14:52
Kobayashi: Mjög sérstök stemmning í Singapúr Japaninn Kamui Kobayashi er eini ökumaðurinn sem keppir í Formúlu 1 sem er frá Asíu og hann vill ná góðum árangri í Singapúr um næstu helgi áður en hann keppir í Japan. Næsta mót á eftir keppninni í Singapúr er á Suzuka brautinni í Japan og verða því tvö mót í Asíu á dagskrá á næstunni. Formúla 1 21.9.2011 13:04
Button stefnir á sigur í Singapúr Jenson Button hjá McLaren varð í öðru sæti í Formúlu 1 mótinu Ítalíu á dögunum og keppir í Singapúr um næstu helgi, þar sem hann stefnir á sigur. Button er meðal þeirra fimm efstu í stigamóti ökumanna, sem hafa barist á toppnum síðustu mánuði. Sebastian Vettel er eins og staðan er núna með það mikið forskot í stigamótinu að hann á möguleika á að tryggja sér meistaratitilinn í Singapúr. Formúla 1 20.9.2011 16:56
Hamilton telur titilinn nánast úr seilingarfjalægð Lewis Hamilton keppir með Formúlu 1 liði McLaren í Singapúr um næstu helgi, en hann er í fimmta sæti í stigamóti ökumanna. Hamilton er 126 stigum á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull, en Vettel á möguleika á því að tryggja sér meistaratitilinn um helgina ef úrslitin í mótinu verða honum hagstæð. Sex mótum er enn ólokið í Formúlu 1 á árinu. Formúla 1 20.9.2011 15:53
Framfarir hjá Mercedes að mati Rosberg Nico Rosberg og Michael Schumacher hjá Formúlu 1 liði Mercedes keppa í Singapúr um næstu helgi, en Rosberg féll úr leik í síðustu keppni á Monza brautinni á Ítalíu á meðan Schumacher náði fimmta sæti. Formúla 1 19.9.2011 16:44
Webber býst við hörðum stigaslag við þrjá keppinauta Mark Webber hjá Red Bull fékk engin stig úr síðustu Formúlu 1 keppni og er orðinn 117 stigum á eftir liðsfélaga sínum, Sebastian Vettel í stigamóti ökumanna, þegar sex mótum er ólokið. Webber keppir í Singapúr um næstu helgi, en aðeins 14 stig skilja að þá fjóra ökumenn sem eru á eftir Vettel í stigamótinu. Formúla 1 19.9.2011 15:14
Vettel vonast eftir sigri í Singapúr Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu, forystumaður stigamótsins í Formúlu 1 stefnir á sigur í næsta móti sem verður í Singapúr um næstu helgi. Vettel hefur unnið tvö síðustu mót á þessu keppnistímabili og er með 112 stiga forskot á Fernando Alonso hjá Ferrari í stigamóti ökumanna. Alonso vann mótið í Síngapúr í fyrra. Formúla 1 19.9.2011 14:15
McLaren gefst ekki upp í titilslagnum Martin Whitmarsh hjá McLaren segir liðið ekki hafa gefist upp í titilslagnum í Formúlu 1, en Sebastian Vettel á Red Bull er með afgerandi forskot í stigamóti ökumanna eftir sigur á Monza brautinni á Ítalíu á sunnudaginn. Jenson Button varð annar á McLaren á Monza brautinni, Fernando Alonso á Ferrari þriðji og Lewis Hamilton á McLaren fjórði. Formúla 1 13.9.2011 11:28
Vettel skrefi nær öðrum meistaratitilinum Sebastain Vettel hjá Red Bull er með 112 stiga forskot á næsta ökumann í stigamóti ökumanna í Formúlu 1, eftir sigurinn á Monza í dag, sem var hans áttundi á árinu. Vettel vann sinn fyrsta sigur á sömu braut árið 2008 með Torro Rosso liðinu. Formúla 1 11.9.2011 21:24
Sebastian Vettel vann kappaksturinn í Monza Sebastian Vettel, Reb Bull, kom fyrstu í mark í Formúli 1 kappakstrinum í Monza á Ítalíu í dag, en hann færist óðum nær heimsmeistaratitli ökumanna. Formúla 1 11.9.2011 14:15