Erlent
173 174 175 176 177 178 179 180 181 … 334 ›
Leiðtogi Wagner segir Bakhmut fallna Yfirmaður rússnesku Wagner málaliðanna segir þá hafa umkringt borgina Bakhmut þar sem aðeins væru eftir börn og gamalmenni til að berjast gegn innrás þeirra. Yfirvöld í nágrannahéraðinu Kharkiv hafa síðan fyrirskipað fjölskyldum með börn og öðrum viðkvæmum hópum að yfirgefa borgina Kupiansk vegna látlausra loftárása Rússa. Erlent 3.3.2023 20:01
Daniel Ellsberg er á dánarbeðinum Daniel Ellsberg, einn mesti örlagavaldur í bandarískri stjórnmálasögu, er með ólæknandi krabbamein í brisi og er talinn eiga um hálft ár eftir ólifað. Erlent 3.3.2023 19:00
Segjast enn verja Bakhmut Embættismenn í Úkraínu segja úkraínska hermenn enn verja bæinn Bakhmut í Dónetskhéraði. Yfirmaður herafla Úkraínu í austri er sagður hafa heimsótt hermennina þar í dag. Hersveitir Rússa eru þó nærri því að umkringja bæinn og eru sagðar beina fallbyssum sínum að einu birgðaleið Úkraínumanna inn og út úr bænum. Erlent 3.3.2023 16:43
Murdaugh dæmdur í lífstíðarfangelsi Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh hefur verið dæmdur í tvöfallt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Murdaugh var dæmdur sekur í nótt en dómskvaðning fór fram nú fyrir skömmu í Suður-Karólínu. Erlent 3.3.2023 15:06
Íbúar Austur-Palestínu óttast langvarandi mengun Nærri því mánuður er liðinn frá því lest sem bar mikið magn eiturefna fór út af sporinu nærri bænum Austur-Palestínu í Ohio í Bandaríkjunum eru íbúar enn reiðir og óttaslegnir. Margir segjast enn finna fyrir áhrifum frá efnunum sem sluppu út í andrúmsloftið. Erlent 3.3.2023 14:30
Friðarverðlaunahafi dæmdur í fangelsi í Belarús Yfirvöld í Belarús, eða Hvíta-Rússlandi, hafa dæmt Alex Bialiatski til tíu ára fangelsisvistar. Það er samkvæmt Viasna, mannréttindasamtökum sem hann stofnaði en Bialiatski var dæmdur fyrir að hafa fjármagnað mótmæli í gegn alræðisstjórn Alexanders Lúkasjenka, einræðisherra Belarús. Erlent 3.3.2023 12:08
Dó líknardauða sextán árum eftir að hafa myrt fimm börn sín Belgísk kona, sem myrti fimm börn sín árið 2007, hefur dáið líknardauða, sextán árum eftir að hún banaði fimm börnum sínum. Erlent 3.3.2023 11:52
Sprengdu brýr við Bakhmut og virðast ætla hörfa Útlit er fyrir að úkraínskir hermenn ætli sér að hörfa eða séu þegar byrjaðir að hörfa frá Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á bæinn um mánaða skeið og hafa nú nærri því umkringt hann. Erlent 3.3.2023 11:06
Afhjúpa nýuppgötvað hólf í Pýramídanum mikla Egypsk fornleifayfirvöld sviptu hulunni af nýuppgötvuðu og lokuðu hólfi í Pýramídanum mikla í Giza í gær. Óljóst er hver tilgangur hólfsins var en það er ekki aðgengilegt utan frá. Erlent 3.3.2023 09:35
Geta stefnt Trump vegna árásarinnar á þinghúsið Lögreglumönnum og þingmönnum er heimilt að stefna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, vegna árásar stuðningsmanna hans á þinghúsið, að mati bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Trump heldur því fram að hann njóti friðhelgi fyrir slíkum kröfum. Erlent 3.3.2023 08:50
Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í nótt fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son í þeim tilgangi að draga athyglina frá margmilljóna dala efnahagsbrotum sínum. Erlent 3.3.2023 06:37
Skilaboð Blinkens til Lavrovs voru einföld og skýr Skuggi innrásar Rússa í Úkraínu skyggði á öll önnur málefni á fundi utanríkisráðherra 20 helstu iðnríkja heims á Indlandi í dag. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Rússa að láta af hernaði sínum og utanríkisráðherra Rússlands sagði aldrei hafa staðið á Rússum að semja við Bandaríkin um örlög Úkraínu. Erlent 2.3.2023 18:57
Rússneskir öfgamenn réðust á þorp í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi segja hóp skemmdarverkamanna frá Úkraínu hafa gert árásir á þorp í Bryanskhéraði í Rússlandi. Hópur fjar-hægri Rússa sem er andvígur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hefur lýst yfir ábyrgð á atvikinu, sem Pútín hefur lýst sem hryðjuverki. Erlent 2.3.2023 14:47
Óvæntur hliðarfundur á hitafundi Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands hittust stuttlega á óvæntum hliðarfundi á samkomu G20-ríkjanna á Indlandi í dag. Erlent 2.3.2023 14:05
Vöxtur endurnýjanlegrar orku kom í veg fyrir enn meiri aukningu í losun Heimsbyggðin hélt áfram að auka losun á gróðurhúsalofttegundum vegna orkuframleiðslu í fyrra og hefur hún aldrei verið meiri. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar segir að losunin hefði aukist þrefalt meira ef ekki væri fyrir vöxt í endurnýjanlegum orkugjöfum. Erlent 2.3.2023 10:12
Rússneski fáninn málaður á Litlu hafmeyjuna Enn og aftur hafa skemmdarverk verið unnin á einu helsta kennileiti dönsku höfuðborgarinnar. Rússneski fáninn var í nótt málaður á steininn þar sem Litla hafmeyjan situr við Löngulínu. Erlent 2.3.2023 08:42
Fundu nýja Moai-styttu á Páskaeyju Vísindamenn á Páskaeyju í Kyrrahafi fundu undir lok febrúar nýja Moai-styttu. Styttan fannst ofan í eldfjallagíg en lítið stöðuvatn var ofan í gígnum áður. Erlent 2.3.2023 08:39
Vo Van Thuong nýr forseti Víetnam Vo Van Thoung var í gær valinn nýr forseti Víetnam. Hann tekur við af Nguyen Xuan Phuc sem gegndi embættinu í einungis tæp tvö ár og sagði af sér eftir að hafa verið sakaður um spillingu. Erlent 2.3.2023 08:05
G20 ríkin funda á Indlandi Utanríkisráðherrar G20 ríkjanna koma saman í Nýju Delí á Indlandi í dag. Erlent 2.3.2023 07:36
Kom til átaka í mótmælum í kjölfar lestarslyssins í Grikklandi Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu fyrir utan höfuðstöðvar grísku lestarstofnunarinnar í Aþenu í gærkvöldi í kjölfar lestarslyssins þar sem staðfest er að 43 hið minnsta týndu lífi. Margir hafa sagt að einungis hafi verið tímaspursmál hvenær slys sem þetta myndi eiga sér stað. Erlent 2.3.2023 06:22
Í basli með að senda hlébarða til Úkraínu Úkraínumönnum hefur verið lofað tugum vestrænna skriðdreka á næstu vikum og mánuðum. Minnst fjórir hafa þegar verið sendir til landsins og er verið að þjálfa hermenn á skriðdrekana í nokkrum löndum. Ríki Evrópu eiga þó í basli með að standa við stóru orðin og gengur erfiðlega að finna skriðdreka. Erlent 1.3.2023 15:00
Segir fjölmiðlafólk öfundsjúkt út í Tucker Carlson Kevin McCarthy, forseti Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, varði í gær þá ákvörðun sína að veita Tucker Carlson, hinum umdeilda þáttastjórnenda hjá Fox, einum aðgang að myndefni úr öryggismyndavélum þinghússins frá árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Annað fjölmiðlafólk hefur einnig krafist aðgangs að myndefninu en McCarthy segir þau vera „öfundsjúk“. Erlent 1.3.2023 13:01
Umtöluð réttarhöld að enda komin: „Ég myndi aldrei skaða þau“ Réttarhöld gegn bandarískum lögmanni sem grunaður er um að hafa myrt eiginkonu sína og son eru að enda komin. Mál Alex Murdaughs og morðin hafa vakið mikla athygli og hefur meðal annars verið fjallað um málið í heimildarþáttum á Netflix. Erlent 1.3.2023 11:10
Finnar byrja að girða sig af frá Rússlandi Framkvæmdir við girðingu á hluta landamæra Finnlands og Rússlands eru hafnar. Finnska landamærastofnunin segir að girðingin verði þriggja metra há með gaddavír ofan á henni. Tilgangurinn sé að tryggja landamærin frekar. Erlent 1.3.2023 10:14
Finnski fjöldamorðinginn Juha Valjakkala látinn Finnski fjöldamorðinginn Nikita Bergenström, sem áður gekk undir nafninu Juha Valjakkala, er látinn. Hann varð 57 ára gamall. Valjakkala var á sínum tíma dæmdur fyrir að hafa banað heilli fjölskyldu í kirkjugarði í Svíþjóð árið 1988. Erlent 1.3.2023 09:25
Hristi sig og hornin hrundu af Þjóðgarðsvörðurinn Derek Burgoyne náði myndbandi af því þegar elgur hristi sig og missti í leiðinni horn sín. Afar sjaldgæft er að sjá þegar hornin falla af elgum. Erlent 1.3.2023 07:41
Linda Kasabian úr Manson fjölskyldunni er látin Linda Kasabian, ein af fylgjendum Charles Manson er látin, 73 ára að aldri. Erlent 1.3.2023 07:41
Murdoch viðurkennir að ýtt hafi verið undir lygar um kosningarnar Rupert Murdoch, ástralski auðjöfurinn sem á og rekur fjölmiðla um heiminn allan, viðurkenndi við vitnaleiðslur að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, þeirrar vinsælustu í Bandaríkjunum, ýttu undir lygar Donalds Trump, fyrrverandi forseta um kosningarnar 2020. Murdoch viðurkenndi einnig að hafa ekki reynt að grípa inn í. Erlent 1.3.2023 07:01
Tinubu verður forseti Nígeríu Bola Tinubu, frambjóðandi stjórnarflokksins APC í Nígeríu, verður næsti forseti Nígeríu. Niðurstöður kosninganna voru staðfestar í nótt en alls voru átján manns í framboði. Erlent 1.3.2023 06:50
Þrjátíu og tveir látnir hið minnsta í lestarslysi á Grikklandi Að minnsta kosti þrjátíu og tveir eru látnir og 85 slasaðir eftir lestarslys á Grikklandi í nótt. Erlent 1.3.2023 06:21