Golf

Els í forystu í Dubai

Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els hefur náð forystu á Dubai mótinu í golfi eftir frábæran þriðja hring þar sem hann lék á 65 höggum eða sjö undir pari. Hann er því samtals á 11 undir pari á mótinu en Svíinn Henrik Stenson er annar á 10 undir eftir að leika á fjórum undir í dag.

Golf

Woods heldur forystunni í Dubai

Tiger Woods fékk fugl á síðustu holunni á öðrum hringnum á Dubai mótinu í golfi í dag og hefur því eins höggs forystu á næsta mann á mótinu. Woods er samtals á átta höggum undir pari.

Golf

Woods byrjaði vel í Dubai

Tiger Woods tók upp þráðinn frá því á Buick mótinu um helgina þegar hann lék fyrsta hringinn á Dubai mótinu á 65 höggum í morgun, eða sjö undir pari. Woods sigraði á Buick mótinu með átta högga mun á sunnudaginn.

Golf

Tiger sigraði með yfirburðum á mótinu sínu

Ameríski kylfingurinn Tiger Woods vann nokkuð öruggan sigur á boðsmóti sínu í Kaliforníu í gærkvöld þar sem 16 stórmeistarar leiddu saman hesta sína. Woods lauk keppni á 22 höggum undir pari eftir að hafa leikið lokahringinn á fjórum undir. Næstur kom landi hans Zach Johnson á 15 undir pari.

Golf

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari í dag

Birgir Leifur Hafþórsson komst betur frá öðrum keppnisdegi en þeim fyrsta á South African Airways-mótinu í Suður-Afríku en tvísýnt er hvort hann kemst í gegnum niðurskurðinn.

Golf

Birgir Leifur væntanlega úr leik

Birgir Leifur Hafþórsson á litla sem enga möguleika á að komast í gegn um niðurskurðinn á Alfred Dunhill mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku. Birgir lék reyndar annan hringinn á 70 höggum í morgun (-2) en var á sjö undir í gær og það var honum dýrkeypt.

Golf

Birgir Leifur enn í stuði

Birgir Leifur Hafþórsson var í miklu stuði í gær þegar hann lék á móti á vegum Kaupþings á Lariserva golfvellinum á Spáni á nýju vallarmeti - 11 höggum undir pari.

Golf

Birgir Leifur í skýjunum

Birgir Leifur Hafþórsson var að vonum ánægður með frammistöðu sína á úrtökumótinu á San Roque á Spáni í dag þar em hann tryggði sér þáttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári með því að hafna í 11.-15. sæti á mótinu. Hann lauk keppni á fimm höggum undir pari.

Golf

Metverðlaunafé í Dubai

Árið 2009 verður veitt hæsta verðlaunafé fyrir golfmót í sögunni. Sigurvegarinn í evrópsku mótaröðinni í Dubai mun geta brosað út að eyrum en hann mun fá um 1,67 milljónir dala í verðlaun sem eru rúmlega 100 milljónir íslenskra króna.

Golf

Birgir Leifur á fimm undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson er enn í góðri stöðu til að tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni í golfi á næsta ári eftir að hann lauk keppni í dag á einu höggi undir pari. Hann er því samtals á fimm undir pari þegar einum hring er ólokið á mótinu og er í kring um 20 sætið á mótinu. 30 efstu kylfingarnir tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni eftir lokahringinn á morgun.

Golf

Birgir Leifur á tveimur undir í dag

Birgir Leifur Hafþórsson er meðal efstu manna á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðin á Spáni en hann lék á tveimur höggum undir pari vallarins í dag.

Golf

Birgir Leifur á einu undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson er í 30.-58. sæti eftir fyrsta hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék á einu höggi undir pari vallarins í dag.

Golf

Mickelson sigraði í Kína

Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson tryggði sér í nótt sigur á Shanghai mótinu í golfi. Þríri menn voru efstir og jafnir eftir á 10 undir pari eftir 72 holur en Mickelson hafði betur eftir bráðabana við þá Ross Fisher og Lee Westwood.

Golf

Birgir Leifur sigraði á Spáni

Birgir Leifur Hafþórsson kórónaði frábæran leik sinn á úrtökumótinu á Acos Gardens með því að leika lokahringinn á þremur höggum undir pari og tryggja sér sigur á mótinu.

Golf

Birgir Leifur í fyrsta sæti

Birgir Leifur Hafþórsson er í fyrsta sæti á annars stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina á næsta ári fyrir lokahringinn sem fer fram á morgun.

Golf

Birgir Leifur á meðal efstu manna

Birgir Leifur Hafþórsson lék annan hringinn á úrtökumótinu á Spáni á 68 höggum í dag, fjórum undir pari. Birgir lék á pari í gær og er á meðal allra efstu manna á mótinu. Nítján efstu kylfingarnir á mótinu komast á lokaúrtökumótið fyrir Evróputúrinn í næstu viku.

Golf