Íslenski boltinn

Uppgjör: HK - Valur 1-2 | Þriðji sigur Vals í röð
HK tók á móti Val í 7. umferð Bestu deildar karla í fótbolta en bæði lið höfðu unnið síðustu tvo leiki sína. Leikurinn var fínasta skemmtun og skoraði Arnþór Ari Atlason eitt af furðulegri mörkum sumarsins fyrir HK en Jónatan Ingi Jónsson tryggði Val sigurinn.

Valsmenn hafa unnið alla deildarleiki sína við HK frá hruni
17. ágúst 2008. Það er í síðasta skiptið sem HK náði í stig á móti Valsmönnum í efstu deild karla í fótbolta. HK-ingar reyna að breyta því í kvöld.

Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki
Dregið var í dag í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins í fótbolta hjá báðum kynjum og það verða tveir Bestu deildar slagir hjá bæði körlum og konum.

Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær þegar sjöunda umferðin hófst og þar fögnuðu Víkingar, KR-ingar og KA-menn góðum sigrum. Nú má sjá mörkin fjórtán úr leikjunum þremur hér inn á Vísi.

Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra
Aron Sigurðarson, leikmaður KR, var að vonum ánægður með sigur liðsins gegn FH þegar hann mætti í viðtal til Gunnlaugs Jónssonar strax að leik loknum. Aron kom KR yfir með marki úr vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik en það var hans fyrsta mark fyrir KR í deildinni.

Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús
KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta með 4-2 sigri á Fylki fyrir norðan í dag. Heimamenn leiddu 3-0 í hálfleik en Fylkismenn gengu á lagið í þeim síðari og úr varð opinn og skemmtilegur leikur.

„Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“
Hallgrími Jónassyni, þjálfara KA, var eðlilega létt eftir að KA nældi í sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta eftir brösulega byrjun á tímabilinu.

Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði
FH tók á móti KR í Kaplakrika í 7. umferð Bestu deildar karla. Eftir afar kaflaskiptar 90 mínútur fór svo að lokum að KR vann 2-1 sigur.

„Hann þekkir mig örugglega betur en ég sjálfur“
Eftir að hafa þurft að dúsa á varamannabekknum í síðustu umferð kom Danijel Dejan Djuric til baka af krafti í 4-1 útisigri Víkings gegn Vestra. Danijel átti frábæran leik, skoraði tvö mörk og hefði hæglega getað sett það þriðja en var tekinn af velli.

Jafnmörg mörk og rauð spjöld í Vestmannaeyjum
Báðum leikjum dagsins í Lengjudeild karla í fótbolta lauk með jafntefli.

Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum
Vestri tók á móti Víkingi á AVIS vellinum í Laugardal í 7. umferð Bestu deildar karla. Víkingar fóru þar með afar öruggan 1-4 sigur.

„Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“
Kyle McLagan, sem hefur verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar, ber Rúnari Kristinssyni, þjálfara Fram, afar vel söguna.

Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal
Eftir að hafa misst af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla hefur Kyle McLagan verið einn besti leikmaður Bestu deildar karla í sumar. Hann hefur verið sem klettur í vörn Fram sem er óþekkjanleg frá fyrri árum. Kyle kom fyrst hingað til lands í hálfgerðu bríaríi fyrir nokkrum árum en hefur fest rætur á klakanum og nýtur lífsins hér.

Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins
„Auðvitað er mjög erfitt að kyngja þessu en það verður bara að gera það“, sagði Kristján Guðmundsson eftir 3-4 tap Stjörnunnar gegn Breiðabliki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Úrslitin réðust á röngum vítadómi í framlengingu.

Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu
Breiðablik vann Stjörnuna 4-3 og er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna. Venjulegum leiktíma lauk með 3-3 jafntefli en úrslitin réðust á kolröngum vítaspyrnudómi sem féll gegn Stjörnunni. Agla María steig á punktinn og skoraði sigurmarkið.

Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga
Leiknir vann Breiðholtsslaginn gegn ÍR og Njarðvík hélt sigurgöngu sinni í Lengjudeild karla áfram í dag.

Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík
Lið Þórs/KA er komið áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta eftir sigur á Tindastóli, 1-2, í dag. Leikið var á Dalvík.

Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki
Bikarmeistarar Víkings eru komnir áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta. Sömu sögu er að segja af Keflavík og Fylki.

Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni
Stjörnumenn lögðu KR-inga að velli með fimm mörkum gegn þremur þegar liðin áttust við í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld.

Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg
Breiddin hjá kvennaliði Breiðabliks var til umræðu í Bestu mörkunum í gær en Blikakonur hafa unnið fimm fyrstu leiki sína og það með markatölunni 16-1.

„Sá að þeim leið aldrei illa“
Bestu mörkin ræddu þann ávana Íslandsmeistaranna af Hlíðarenda að lenda alltaf undir í sínum leikjum. Það hefur þó ekki komið að sök, að minnsta kosti ekki hingað til.

Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús
Breiðablik hefur unnið alla fimm leiki sína til þessa í Bestu deild kvenna eftir 2-0 útisigur gegn Fylki í kvöld.

Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs
Þróttur tók á móti Víkingi í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna á Avis-vellinum í Laugardal í kvöld. Nýliðarnir úr Fossvogi tóku stigin þrjú í kvöld með 1-0 sigri og leita Þróttarar enn að fyrsta sigrinum í deildinni.

Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli
Óvandvirkni við samningagerð virðist hafa reynst KA dýrkeypt í dómsmáli liðsins og Arnars Grétarssonar, fyrrum þjálfara liðsins, ef rýnt er í dóm Héraðsdóms. KA var í gær dæmt til að greiða Arnari tæpar níu milljónir í vangoldin laun vegna samningsákvæðis sem sneri að bónusgreiðslum.

Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“
Lárus Orri Sigurðsson og Albert Brynjar Ingason eru ekki alltaf sammála og voru það svo sannarlega ekki þegar þeir fjölluðu um leik Víkings og FH í Bestu deild karla í Stúkunni á mánudaginn.

„Þegar við skorum að þá er gaman“
„Ég er ægilega ánægður, mér fannst liðið bara flott í þessum leik á móti erfiðu liði,“ sagði Jóhann Kristinn þjálfari Þór/KA eftir 4-0 sigur á Keflavík á Akureyri í Bestu deild kvenna í fótbolta.

„Þetta var eins og handboltaleikur“
FH tapaði í kvöld gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ. Eftir ótrúlegar upphafsmínútur þar sem staðan var 4-1 eftir korter fyrir heimakonum þá bitu Hafnfirðingar frá sér í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn niður í eitt mark. Lokatölur 4-3.

„Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í”
Valur lagði Tindastól með þremur mörkum gegn einu þegar þessi lið mættust í 5.umferð Bestu deild kvenna í dag. Fanndís Friðriksdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö af mörkum Íslandsmeistaranna sem lentu nokkuð óvænt undir.

Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum
Stjarnan fékk FH í heimsókn á Samsungvöllinn í kvöld, í 5. umferð Bestu deildar kvenna. Boðið var upp á markasúpu en fyrstu fimm mörk leiksins komu á fyrsta korterinu. Lauk leiknum með sigri heimakvenna 4-3.

Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum
Þór/KA vann góðan 4-0 heimasigur á Keflavík í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Akureyri í dag. Fyrir leikinn var Þór/KA í þriðja sæti deildarinnar með níu stig en gestirnir í botnsætinu án stiga.