Menning

Raggi Bjarna - Heyr mitt ljúfasta lag

Einn ástsælasti söngvari landssins, Raggi Bjarna og færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir munu syngja saman á tónleikum næstkomandi laugardagskvöld. Með þeim spilar stór hópur hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess sem Selkórinn syngur með.

Menning

Leyndarmál hraunanna - elstu dýr Íslands

Jörundur Svavarsson, prófessor við Háskóla Íslands og Bjarni K. Kristjánsson, frá Hólaskóla, munu halda erindi í fyrirlestraröðinni Undur Veraldar laugardaginn 3. mars. Ber erindið heitið Leyndarmál hraunanna - elstu dýr Íslands. Er það Raunvísindadeild Háskóla Íslands sem stendur fyrir fyrirlestrarröðinni.

Menning

Ráðstefna um verndun Skerjafjarðar

Föstudaginn 2. mars verður haldin ráðstefna um verndun náttúrufars Skerjafjarðar. Dagskrá ráðstefnunnar hefst með ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands og Jónínu Bjartmarsdóttur, umhverfisráðherra. Munu ýmsir aðilar með sérfræðiþekkingu á málefninu flytja erindi.

Menning

Þekktu sjálfan þig: Innsýn í jógafræðin

Í byrjun mars kemur út ný bók eftir Guðjón Bergmann rithöfund, fyrirlesara og jógakennara. Bókin ber titilinn Þekktu sjálfan þig: Innsýn í jógafræðin. Í bókinni leitast höfundur við að veita lesendum innsýn í heim jógaheimspekinnar og kynna hugmyndafræðina sem býr að baki. Öll framsetning er á almennu máli og gagnast því jafnt byrjendum og lengra komnum.

Menning

Ögrar ímyndunaraflinu

Sverrir Norland er tvítugur nemi við Háskóla Íslands og FÍH og situr jafnframt í ritstjórn vefsíðunnar dindill.is. Sverrir hlýtur að vera upptekinn ungur maður því ásamt þessu heldur hann úti vefsíðunni http://www.nyttljodahverjumdegi2007.blogspot.com/

Menning

Álfaálög á dansflokknum

Hvert áfallið á fætur öðru hefur riðið yfir Íslenska dansflokkinn undanfarnar vikur, á meðan hann stóð í æfingum fyrir sýninguna Í okkar nafni, sem frumsýnd var á föstudaginn. „Það eru nokkrir eftir heilir, við skulum orða það þannig,“ sagði Valgerður Rúnarsdóttir, dansari.

Menning

Suðvestan 7 í Saltfisksetrinu

Ljósmyndarinn Olgeir Andrésson heldur sína fyrstu einkasýningu í Listasal Saltfisksetrins í Grindavík. Ber sýningin heitið Suðvestan 7. Áður hefur Olgeir sýnt með Ljósopi, félagi áhugaljósmyndara en hann byrjaði að taka myndir fyrir alvöru fyrir tveimur árum síðan.

Menning

Listir allra álfa

Heimsdegi barna verður fagnað í þriðja sinn í dag en þá geta börn og unglingar komist í kynni við framandi menningu frá öllum heimsálfum í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og félagsmiðstöðinni Miðbergi. Heimsdagur barna er liður í Vetrarhátíð í Reykjavík sem er samvinnuverkefni Höfuðborgarstofu, Alþjóðahússins, Kramhússins og fyrrgreindra aðila.

Menning

Kvennahreyfing ÖBÍ fundar

Fundur Kvennahreyfingar Öryrkjabandalags Íslands, verður haldinn á morgun, laugardaginn 24. febrúar. Jóhanna Leópoldsdóttir mun flytja erindið Gleðin og sorgin – systur tvær.

Menning

Íslensk tískuhönnun brúar bil milli borga

Á sýningunni Íslensk tískuhönnun sem opnuð var í Þjóðmenningarhúsinu af forsætisráðherra Geir H. Haarde 29. júní 2006 sést að íslensku hönnuðurnir tíu, sem þar sýna verk sín, sækja innblástur í náttúruna og andstæður hennar. Mýkt og harka, birta og myrkur, fínleiki og grófleiki endurspeglast í ögrandi og sjálfstæðri hönnun sem að margra mati er með því flottasta sem sést í heiminum í dag.

Menning

Stofuspjall um Kraftbirtíngarhljóm guðdómsins

Sunnudaginn 25. febrúar kl. 16.00 er komið að öðru stofuspjalli ársins í tengslum við verk mánaðarins á Gljúfrasteini sem að þessu sinni er skáldsagan Heimsljós. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur stýrir spjallinu og mun hún einkum beina sjónum sínum að Kraftbirtíngarhljómi guðdómsins, fyrsta hluta sögunnar.

Menning

Aldarafmæli Íslandsvinar

Breska skáldið Wystan Hugh Auden var annálaður Íslandsvinur en skáldjöfur þessi er af mörgum talinn eitt ágætasta skáld enskrar tungu á tuttugustu öld þó að alla jafna fari ekki hátt um ævi hans og störf.

Menning

Funheitt gróðurhús eða brunagaddur ísaldar?

Ólafur Ingólfsson, prófessor, mun halda fyrirlestur um ransóknir á veðurfarssögu jarðarinnar síðutu 650 milljón ára, á morgun laugardag. Verður fyrirlesturinn haldinn í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, í sal 132 og hefst hann klukkan 14:00. Þetta er fyrsti fyrirlesturinn í fyrirlestrarröð Raunvísindadeildar Háskóla Íslands sem ber heitið Undur veraldar og er haldin í tilefni af ári jarðarinnar 2008.

Menning

Allt sem einhverju skiptir

Ást, kynlíf, dauði, guð og allt hitt sem skiptir máli er viðfangsefni gjörningaleikhúsverks Ingibjargar Magnadóttur og Kristínar Eiríksdóttur sem sanna hið fornkveðna að fæstir eru spámenn í eigin föðurlandi.

Menning

Franska aldan á leiðinni

Efnt var til fundar í Ráðherrabústaðnum í gær þar sem franska menningarveislan Pourquoi pas? var kynnt. Sú þrettán vikna franska veisla hefst í næstu viku og eiga landsmenn á góðu von; hingað munu streyma listamenn, fræðimenn og aðrir andans menn til að gleðja og fræða um flest það sem franskt er, hvort sem það tengist menningu, matargerð, trúisma eða viðskiptum.

Menning

Skáldið Jón Laxdal

Ljóðskáldið Jón Laxdal Halldórsson er ef til vill betur þekkt fyrir myndlist sína en skáldskap en á því verður gerð bragarbót í kvöld. Norður á Akureyri eru haldin bókmenntakvöld á vegum menningarsmiðjunnar Populus Tremula en smiðja sú starfar í Listagilinu þar í bæ.

Menning

Hið smávægilega

„Næstum því ekki neitt, það er ekki ekki neitt“ er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Nýlistasafninu á morgun í tengslum við franska menningarvorið – Pourquoi pas? Að frumkvæði sendiráðsins var ákveðið að setja upp sýningu og tengjast galleríi sem fatahönnuðurinn og framleiðandinn Agnes B eða agnes b setti af stað fyrir tveimur áratugum rúmum í Frakklandi.

Menning

Veiðisögur Bubba koma út í haust

„Ekki er einu sinni kominn titill á bókina. Svo skammt er þetta á veg komið. En vinnuheitið er Veiðisögur Bubba,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri JPV útgáfu.

Menning

Ummæli safnstjóra metin á tvær milljónir króna

„Þetta verður það sama og með geirfuglinn sem var boðinn upp úti í London á sínum tíma. Það fór fram söfnun og uppboðshaldarinn úti vissi upp á krónu hvað safnaðist og fuglinn fór á það,“ segir Tryggvi Páll Friðriksson í Gallerí Fold og einn helsti uppboðshaldari Íslands.

Menning

Argentískur tangó á Borginni

Hver vill ekki læra að dansa argentískan tangó og upplifa ekta milongu stemningu? Milongu er tangódansleikur, en slíkur dansleikur verður haldinn á Borginni á fimmtudagskvöldið.

Menning

Nýtt tímarit um Íslands- og mannkynssögu

SAGAN ÖLL er nýtt tímarit á Íslandi og mun koma út í fyrsta sinn fimmtudaginn 22. febrúar næstkomandi, síðan mánaðarlega. Umfjöllunarefnið er Íslandssagan og mannkynssagan í máli og myndum.

Menning

Safnaramarkaður

Safnaramarkaður með frímerki, mynt, seðla, barmmerki og margt fleira verður haldinn sunnudaginn 18. febrúar næstkomandi. Verður safnaramarkaðurinn til húsa að Síðumúla 17, á annarri hæð.

Menning

Kjaftshögg fyrir þjóðina

Breiðavíkur-málið á hug þjóðarinnar um þessar mundir. Fyrir þrjátíu árum kom út bók sem varpaði einstöku ljósi á dvölina þar en var stungið undir stól af þjóðinni.

Menning

Grafík á Miðbakka

Það er velkunnugt leyndarmál að félagsskapurinn Íslensk grafík rekur lítið safn, sölu og sýningarsal, í Hafgnarhúsinu á Miðbakkanum í gömlu höfninni í Reykjavík. Þar eru gjarnan uppi sýningar á verkum félagsmanna og gesta þeirra og þar er nú sýning á ljósmyndaverkum Soffíu Gísladóttur.

Menning

Þekkir þú myndefnið?

Ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri státar af safnkosti upp á 2,5 milljónir mynda. Margar myndanna eru óþekktar og nú óskar Minjasafnið eftir aðstoð almennings við að koma nafni á andlit og heiti á hús og önnur mannvirki.

Menning

Sjöttu sýningunni fagnað

Fossar, lækir og lænur, álar, vötn og aurar eru einkennandi fyrir sýninguna, sem nefnist Landbrot. Stendur hún yfir til fjórða mars.

Menning

Gæðastrætis minnst

Margir Íslendingar eiga góðar minningar um molana úr Gæðastræti en það skrjáfandi góðgæti kenna flestir við Mackintosh.

Menning