Sport

Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir
Þórir Hergeirsson var heiðraður samtímis á tveimur verðlaunahófum í gærkvöld, á Íslandi og í Noregi. Ein af stjörnunum sem hann þjálfaði svo lengi í norska handboltalandsliðinu, Stine Oftedal Dahmke, þakkaði Þóri fyrir allt í verðlaunaræðu.

Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn
Ákveðið hefur verið að stórveldaslagur Liverpool og Manchester United fari fram í dag, á Anfield í Liverpool, eftir óvissu vegna mikillar snjókomu.

Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu
Elvar Örn Jónsson, einn af burðarásum íslenska handboltalandsliðsins, vonast til þess að geta brátt tekið fullan þátt í lokaundirbúningnum fyrir HM. Hann er á toppi þýsku 1. deildarinnar með liði sínu Melsungen.

Myndasyrpa: Glódís og forsetinn í hláturskasti á hófinu í Hörpu
Gleðin var við völd í Hörpu í gærkvöld þegar fremsta íþróttafólk landsins var heiðrað fyrir frammistöðu sína á nýliðnu ári. Hulda Margrét ljósmyndari smellti myndum af verðlaunahöfum, forseta Íslands og öðrum góðum gestum.

Telur sig hafa fengið hálfgert loforð frá ÍSÍ um fjármuni
Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands segir það mikil vonbrigði fyrir sambandið að fá ekki úthlutað fjármunum úr afrekssjóði ÍSÍ enn einu sinni. Hann telur sig hins vegar hafa fengið hálfgert loforð frá forsvarsmönnum ÍSÍ sem lofi góðu um framhaldið hvað úthlutun varðar.

Allt er fertugum LeBron fært
Hinn fertugi LeBron James heldur áfram að skríða upp alla þá lista yfir tölfræði sem NBA-deildin í körfubolta getur boðið upp á. Nú síðast fór hann upp fyrir Michael Jordan er kemur að því að skora 30 stig eða meira í leik.

„Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, var heldur ósáttur með leik sinna manna í 1-1 jafntefli liðsins við Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á laugardag.

„Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið“
Tindastóll vann frábæran sigur á KR í síðustu umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Í Körfuboltakvöldi í kjölfarið var farið yfir hvað Tindastóll hefur sem önnur lið á Íslandi búa hreinlega ekki yfir.

Dagskráin í dag: Toppslagur í NBA, lokaumferð NFL, Grindavík og margt fleira
Alls eru tólf meinar útsendingar á dagskrá rása Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. Allt frá efstu deild karla í fótbolta í Skotlandi til þáttanna um Grindavík, NFL og sannkallaðs stórleiks í NBA-deildinni í körfubolta.

Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina
„Nei,“ sagði Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, einfaldlega aðspurður hvort hans liðið væri komið aftur í gírinn eftir 4-1 sigur á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni.

Tryggvi Snær öflugur en það dugði skammt
Tryggvi Snær Hlinason átti virkilega góðan leik þegar lið hans Bilbao Basket mátti þola tap á útivelli gegn Lenovo Tenerife.

Tindastóll upp fyrir Njarðvík
Tindastóll lagði Njarðvík í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld og fór þar með upp fyrir þær grænklæddu í töflunni.

Þessi hlutu atkvæði sem Íþróttamaður ársins, lið ársins og þjálfari ársins
Í kvöld var Glódís Perla Viggósdóttir kosin Íþróttamaður ársins 2024 af Samtökum íþróttafréttamanna. Hér að neðan má sjá hver fengu atkvæði en Glódís Perla vann með fullt hús stiga.

Glódís Perla íþróttamaður ársins með fullt hús stiga
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta sem og stórliðsins Bayern München, var kjörin Íþróttamaður ársins 2024 af Samtökum íþróttafréttamanna.

Karlalið Vals er lið ársins 2024
Karlalið Vals í handbolta var valið lið ársins 2024 á Íslandi. Frá þessu var greint á verðlaunahófi Samtaka íþróttafréttamanna í kvöld.

Björg Elín íþróttaeldhugi ársins
Björg Elín Guðmundsdóttir var í kvöld útnefnd Íþróttaeldhugi ársins 2024.

Þórir Hergeirsson þjálfari ársins
Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handbolta, er þjálfari ársins 2024 á Íslandi. Frá þessu var greint á verðlaunahófi Samtaka íþróttafréttamanna í kvöld. Þá var Þórir kjörinn þjálfari ársins í Noregi.

Sigurbjörn Bárðarson tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ
Sigurbjörn Bárðarson er 26. íþróttamaðurinn sem tekinn er inn í heiðurshöll ÍSÍ.

Díana Dögg öflug í sigri
Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik þegar Blomberg-Lippe vann átta marka sigur á Göppingen í efstu deild kvenna í þýska handboltanum, lokatölur 34-22. Þá skoraði Sandra Erlingsdóttir eitt mark í tíu marka útisigri Metzingen á Bensheim-Auerbach.

Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn
Birmingham City stefnir hraðbyr á sæti í ensku B-deild karla í fótbolta. Liðið vann 3-0 útisigur á Wigan Athletic í dag þar sem Willum Þór Willumsson skoraði þriðja mark gestanna.

Haukar og Hamar/Þór með góða sigra
Haukar og Hamar/Þór unnu góða sigra í Bónus-deild kvenna í körfubolta í dag. Haukar lögðu Stjörnuna örugglega á meðan Hamar/Þór vann nýliðaslaginn gegn Aþenu.

Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool
Brighton & Hove Albion og Arsenal gerðu 1-1 jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla. Með sigri hefðu Skytturnar getað sett aukna pressu á topplið Liverpool.

Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli
Albert Guðmundsson var á varamannabekk Fiorentina þegar Napoli kom í heimsókn í Serie A, efstu deild ítalska fótboltans. Fór það svo að gestirnir unnu þægilegan 3-0 sigur.

Skrípamark en Mikael og félagar fengu bara stig
Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn fyrir Venezia í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag, þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Empoli.

Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 29-32 | Hafnfirðingar byrja árið af krafti
Haukakonur lönduðu sínum sjöunda sigri í Olís-deild kvenna þegar liðið sigraði Stjörnuna, 32-29, í Garðabæ í dag.Stjörnukonur voru staðráðnar að koma sterkari til leiks eftir að hafa fengið stóran skell þegar liðin mættust í september. Það var mikil barátta í heimakonum í upphafi leiks og héldu þær Haukum í skefjum.

Nýtt ár en áfram vinna Valskonur
Valskonur unnu alla sína leiki árið 2024 og byrja nýja árið með sama hætti en þær unnu 34-20 stórsigur á Selfossi í dag, í Olís-deildinni í handbolta. Fram er næst á eftir Val, eftir 31-22 sigur gegn Gróttu á sama tíma.

„Þetta eru gríðarlegar framfarir“
Stjarnan beið lægri hlut á móti Haukum í Olís-deild kvenna í dag. Deildin fór af stað að nýju eftir tæplega tveggja mánaða hlé og sigruðu Haukar leikinn með þremur mörkum, 32-29.

Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 64-84 | Þór hafði betur í Smáranum
Þór Akureyri hafði betur gegn Grindavík í leik liðanna í Bónus deild kvenna í dag er liðin mættust í Smáranum.

„Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis
Þór/KA hefur tryggt sér liðsstyrk fyrir næstu leiktíð í Bestu deild kvenna í fótbolta með því að fá Evu Rut Ásþórsdóttur frá Fylki.

Slæmt gengi gestanna heldur áfram
Slæmt gengi Chelsea í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu heldur áfram en liðið náði aðeins jafntefli gegn lánlausu liði Crystal Palace. Lokatölur í Lundúnum 1-1 að þessu sinni.