Viðskipti erlent

Kaupandi fundinn að Carnegie bankanum í Svíþjóð
Samkvæmt frétt í Dagens Nyheder er búið að finna kaupenda að Carnegie bankanum sænska og að tilkynnt verði um kaupin seinna í dag. Milestone átti 10% í bankanum þegar sænska ríkið þjóðnýtti hann fyrr í vetur.

Segir Íslendinga vera hina nýju Pólverja
Ásókn Íslendinga í störf í Noregi hefur margfaldast að undanförnu og í frétt um málið í blaðinu Aftenposten eru Íslendingar sagðir vera hinir nýju Pólverjar þar í landi.

Nikkei-vísitalan lækkaði um tæpt prósent
Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan lækkaði um tæpt prósent í morgun en jenið, gjaldmiðill Japans, styrktist hins vegar töluvert og hefur ekki haft jafnsterka stöðu gagnvart bandaríkjadollar í meira en þrjár vikur. Talið er að japanskir útflytjendur kaupi nú jen í miklum mæli til að reyna að styrkja gjaldmiðilinn. Í Hong Kong hækkuðu hlutabréf í viðskiptum dagsins og þokaðist Hang Seng-vísitalan upp á við um tæpt prósent.

Blankir Baugsmenn þurftu að selja þyrlu til forstjóra Iceland
Fjárhagsstaða Baugs var svo bág í lok síðasta árs að félagið neyddist til að selja þyrlu í eigu þess til Malcolm Walker, forstjóra Iceland, fyrir tvær milljónir punda eða um 340 milljónir króna.

Kaupþing ætlar að endurskipuleggja Mosaic
Kaupþing hefur tekið yfir 49% hlut Baugs í tískuvörukeðjunni Mosaic Fashion og hyggst bankinn endurskipuleggja reksturinn að sögn The Sunday Times. Skuldir Baugs við Kaupþing nema 450 milljónum punda eða um 76 milljörðum samkvæmt blaðinu.

Þingnefnd rannsakar innlán sveitarfélaga á reikninga bankanna
Nefnd á vegum breska þingsins rannsakar nú þá ákvörðun margra sveitastjórna í Bretlandi að leggja sparifé inn á reikninga íslensku bankanna, en féð var fryst þegar bankarnir hrundu í október. Richard Kemp borgarfulltrúi í Liverpool borg hefur fullyrt fyrir nefndinni að viðræður við skilanefndir bankanna gæfu ástæðu til þess að vonast til að féð fengist greitt.

Kanna áhættustjórnun bankastjórna
Bresk yfirvöld hyggjast rannsaka bónusgreiðslur til æðstu stjórnenda í bönkum þar og tengsl launabónusa við áhættusækni. Þetta hefur Sunday Telegraph eftir Alistair Darling fjármálaráðherra.

Atvinnuleysið 7,6% í Bandaríkjunum
Atvinnuleysi jókst meira í Bandaríkjunum í síðasta mánuði en nokkru sinni síðan árið 1974, segir á vef breska blaðsins Times.

Íbúar í Huddersfield fá enn ekkert út úr Icesave
Útsvarsgreiðendur í Huddersfield í Bretlandi bíða enn eftir því að fá greidda peninga út úr Icesave reikningum Landsbanka Íslands.

FIH bankinn þarf að afskrifa 10 milljarða kr.
FIH bankinn danski, sem nú er í eigu íslenska ríkisins þarf að afskrifa um hálfan milljarð danskra kr. eða tæplega 10 milljarða kr. eftir árið í fyrra. Bankinn mun samt skila hagnaði eftir árið.

Verð á gulli rýfur brátt 1.000 dollara múrinn
Heimsmarkaðsverð á gulli mun brátt fara yfir 1.000 dollara á únsuna og stefnir jafnvel í að setja nýtt met. Fjárfestar standa nú í röðum eftir að kaupa gull sökum þeirrar óvissu sem ríkir nú á fjármálamörkuðum heimsins.

Greiðslustöðvun BG Holding samþykkt í London
Dómstóll í London hefur fallist á beiðni skilanefndar Landsbankans um greiðslustöðvun hjá BG Holding félagi Baugs í London. Jafnframt hefur PriceWaterhouseCoopers verið skipað sem stjórnendur félagsins meðan á greiðslustöðvuninni stendur.

Volvo blæðir út í fjármálakreppunni
Bílaframleiðandinn Volvo í Svíþjóð skilaði tapi upp á 2,5 milljarða sænskr kr. eða um 35 milljörðum kr. á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Greinendur höfðu hinsvegar spáð tapi upp á þriðjung af þeirri upphæð eða 807 milljónir sænskra kr..

Danske Bank kominn á hnéin eftir gífurleg útlánatöp
Stærsti banki Danmerkur, Danske Bank, er nú kominn á hnéin eftir gífurleg útlánatöp á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Og Peter Straarup bankastjóri bankans aðvarar hlutahafa um að ástandið muni versna á þessu ári.

Toyota spáir miklu tapi
Japanski bílaframleiðandinn Toyota gerir ráð fyrir að tapa 450 milljörðum jena, jafnvirði rúmlega 560 milljarða króna, vegna samdráttar á bílamarkaði á síðasta ári. Þetta er þrisvar sinnum meira en fyrri spá bílaframleiðandans hljóðaði upp á.

Skilanefnd Landsbankans svínaði fyrir konungsfjölskyldu Saudi Arabíu
Með því að ganga að veðunum í BG Holding í Bretlandi kom skilanefnd Landsbankans í veg fyrir að nokkrir meðlimir konungsfjölskyldunnar í Saudi Arabíu fjárfestu í Hamleys leikfangaverslununum.

Hækkun í Asíu
Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun, einkum bréf banka og hátæknifyrirtækja. Aukinnar bjartsýni gætir nú hjá fjárfestum vegna björgunaraðgerða ríkisstjórna og hækkuðu bréf Lenovo-tölvuframleiðandans í Hong Kong um 10 prósent eftir að skipt var um stjórn hjá fyrirtækinu. Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan þokaðist upp um eitt og hálft prósent.

Samvinna er forsenda hagvaxtar
Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Timothy Geithner, sagði í dag að það væri mjög mikilvægt fyrir Bandaríkin að vinna með öðrum ríkjum að því að auka hagvöxt í heiminum.

Eignir Baugs nema um þriðjungi af skuldum félagsins
Blaðið Telegraph hefur eftir heimildarmönnum sínum að eignir Baugs í Bretlandi nemi í besta falli um þriðjungi af skuldum félagsins. Eignirnar eru metnar á um 400 milljónir punda en skuldir Baugs við íslensku bankanna nemi um 1,3 milljarði punda eða um 200 milljörðum kr..

Stýrivextir í Bretlandi aldrei lægri
Englandsbanki lækkaði stýrivextir um 50 punkta í dag og fara þeir við það úr 1,5 prósentum í eitt prósent. Þeir hafa aldrei verið lægri.

Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu
Evrópski seðlabankinn hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 2,0 prósentum. Þetta er í samræmi við væntingar en bankinn hefur lækkað vextina hratt síðastliðna fjóra mánuði.

Landsbankamenn boðaðir á fund í breska fjármálaráðuneytinu
Forráðamenn skilanefndar Landsbankans hafa verið boðaðir á fund í breska fjármálaráðuneytinu í dag en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, er nú staddur í London.

Lögsókn hafin gegn gamla Glitni í Noregi
Fjórir af fyrrum viðskiptavinum Glitnis í Noregi, sem nú heitir BNbank, telja sig hlunnfarna af bankanum og ætla í mál gegn honum.

Bresk stjórnvöld æf af reiði út í skilanefnd Landsbankans
Bresk stjórnvöld munu vera æf af reiði út í skilanefnd Landsbankans sökum áforma þeirra um að setja Baug í greiðslustöðvun. Þetta kemur fram í grein sem viðskiptafréttastjóri blaðsins The Times skrifar í dag.

Baugur og Straumur leita að kaupanda að Magasin du Nord
Carsten Fensholt fjármálastjóri Magasin du Nord í Kaupmannahöfn segir að greiðslustöðvun Baugs hafi ekki bein áhrif á rekstur verslunarinnar. Hinsvegar leiti Baugur í samvinnu við Straum nú ákaft að kaupenda að versluninni.

Mikil óvissa um eignir Baugs í Bretlandi og Danmörku
Beiðni Baugs um greiðslustöðvun hefur vakið mikla athygli í breskum og dönskum fjölmiðlum og greina helstu blöð þessara landa frá málinu á vefsíðum sínum. Þar er m.a. tekið fram að mikil óvssa ríki nú um eignir Baugs í þessum löndum.

ILVA í Danmörku og Svíþjóð selt til IDdesign
Lagerinn, sem m.a. rekur verslanir Rúmfatalagersins á Íslandi, hefur gert samning um sölu á húsgagnaverslununum ILVA í Danmörku og Svíþjóð til danska félagsins IDdesign.

Kaupþing flutti 90 milljarða kr. frá Mön til London fyrir hrunið
Forstjóri fjármálaeftirlitsins á Mön segir að skömmu fyrir hrun íslensku bankanna hafi Kaupþing flutt 550 milljónir punda eða rúmlega 90 milljarða kr.úr útibúi sínu á eyjunni og yfir til London. Þetta gerðist skömmu fyrir hrun íslensku bankanna og frystingu eigna þeirra á Bretlandi í kjölfarið.

Óska tilboða í Actavis
Eignarhaldsfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator, hefur óskað eftir tilboðum í lyfjafyrirtækið Actavis. Bloomberg-fréttavefurinn greinir frá þessu og segir kaupverðið geta orðið allt að sex milljarða evra en skuldir fyrirtækisins séu fimm milljarðar evra. Novator óskar að sögn Bloomberg eftir því að tilboð berist í þessum mánuði.

Yfirtakan á Singer & Friedlander rannsökuð sérstaklega
Þingnefnd sú á breska þinginu sem er að rannsaka orsakir bankakreppunnar þar í landi hefur ákveðið að rannsaka sérstaklega yfirtöku Kaupþings á Singer & Friedlander bankanum árið 2005.