Viðskipti erlent

Eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims kaupir Medivation
Samningurinn er metinn á 1.600 milljarða króna.

Nóbelsverðlaunahafinn Stiglitz lýsir yfir dauða nýfrjálshyggju
Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz telur að búið sé að sanna að ein af aðalhugmyndum nýfrjálshyggju gangi ekki upp. Hann telur nýfrjálshyggju hugsunarháttinn dauðan í bæði þróunarlöndum og þróuðum löndum. Aðrir fræðimenn og

Selfie ýta undir sölu á förðunarvörum
Talsmaður Estee Lauder rekur níu prósent söluaukningu á förðunarvörum til vaxandi vinsælda sjálfsmynda.

Vefrisinn Google með nýtt stýrikerfi í smíðum
Óvíst er hvaða hlutverki nýja stýrikerfið Fuchsia mun gegna.

Óæskilegir Pokémon-ar bannaðir víða um heim
Eitthvað hefur Pokéstop-um fækkað, eftir kvartanir um óviðeigandi Pokémon veiðar.

Ræða samning vegna útblásturssvindlsins
Sektir fyrirtækisins í Bandaríkjunum gætu verið meira en 1,2 milljarðar dala eða rúmir 140 milljarðar króna.

Hagvöxtur nær enginn í Japan
Hagvöxtur jókst um einungis 0,2 prósent á öðrum ársfjórðungi í Japan, samkvæmt tölum sem birtust í morgun.


Pundið ekki lægra í mánuð
Gengi pundsins hefur nú fallið um fjórtán prósent frá því að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið í lok júní, og hefur ekki verið lægra síðan árið 1985.

Stofnandi Huffington Post stígur úr ritstjórastólnum
Arianna Huffington, annar stofnenda Huffington Post, hyggst nú einbeita sér að nýju verkefni, Thrive Global.

Stefnir hratt í kreppu í Bretlandi
Meðalhúsnæðisverð í London hefur lækkað um 155 þúsund krónur á dag frá því að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið. Ný skýrsla frá Morgan McKinley sýnir að nýjum störfum í breska fjármálageiranum hafi fækkað um 12 prósen

Ávöxtunarkrafa neikvæð í Bretlandi
Ávöxtunarkrafa á breskum ríkisskuldabréfum lækkaði í gær og varð neikvæð eftir að Englandsbanki náði ekki markmiðum sínum í kaupum á nýjum skuldabréfum.

Í Ríó græða Airbnb- salar þrjá milljarða
Vegna Ólympíuleikanna í Ríó hefur eftirspurn eftir hótelum og húsnæði margfaldast.

Breytinga að vænta á MacBook tölvunum
Þetta eru fyrstu breytingarnar á týpunni í meira en fjögur ár.

Bandarískir fíkniefnasalar stórgræða á netsölu fíkniefna
Er talið að markaðshlutdeild þeirra nemi um þriðjungi markaðarins sem hefur þrefaldast á þremur árum.

Útflutningur frá Kína dregst saman á ný
Útflutningur frá Kína dróst saman um 4,4 prósent í júlímánuði, samanborið við árið áður. Útflutningur hefur dregist saman á tólf af síðustu þrettán mánuðum.

Óttast að stjórnvöld geti lítið hjálpað
Möguleiki valdhafa til að örva hagvöxt fer ört minnkandi, og bæði seðlabankar og ríkisstjórnir um allan heim hafa sífellt færri tól til þess að auka hagvöxt, samkvæmt nýrri rannsókn frá sérfræðingum greiningardeildar Barclays banka.

Danskt fyrirtæki greiðir hluta launa í PokéCoins
Stjórnendur fyrirtækisins segja að ákveðið hafi verið að fara þessa leið til að móta fyrirtækinu sérstöðu og lokka að yngra starfsfólk til þess.

Airbnb 3.500 milljarða virði
Airbnb er eitt af fjórum verðmætustu fyrirtækjum í heiminum sem ekki eru skráð á markað.

Aukinn ferðamannastraumur til Bretlands vegna Brexit
Flugbókunum til Bretlands fjölgaði um 4,3 prósent mánuðinn eftir að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið.

Forstjórar stærstu fyrirtækjanna með 800 milljónir í árslaun
Forstjórar stærstu fyrirtækja Bretlands eru með 144 föld árslaun meðal Breta.

Hækkun hafin á vöruverði í Bretlandi
Raftækjaframleiðendur, fataverslanir, og bíla- og bílavarahlutaframleiðendur eru byrjaðir að hækka laun eða vara við hækkun í bráð vegna hruns pundsins.

RBS tapaði 300 milljörðum
Gengi hlutabréfa í RBS hafa lækkað um 8,23 prósent það sem af er degi.

Facebook bannar smellubrellur
Þið trúið ekki hvernig þau ætla að fara að því.

Venesúela senn uppiskroppa með reiðufé
Efnahagslegar og pólitískar óeirðir hafa geisað í Venesúela á árinu.

Lægra olíuverð hefur eytt 200 þúsund störfum
Síðan olíuverð hóf að lækka árið 2014 hefur verið skorið niður um 195 þúsund störf í olíugeiranum í Bandaríkjunum.

Stýrivextir á Bretlandi aldrei verið lægri
Stýrivextir á Bretlandi voru í morgun lækkaðir í 0,25 prósent.

Virði stærstu banka lækkað um helming
Gengi hlutabréfa í nokkrum af stærstu bönkun Evrópu hefur lækkað um allt að 85 prósent á síðastliðnu ári. Margir bankar komu illa út úr álagsprófi Samtaka evrópskra banka. Sérfræðingar á markaði segja bankana illa fjármagnaða.

Hætta á að íbúar Venesúela geti ekki vafrað á netinu
Fjarskiptafyrirtæki landsins skortir gjaldeyri til að greiða erlendum aðilum fyrir þjónustu þeirra.

Nýi Samsung-síminn búinn augnskanna
Samsung kynnti Galaxy Note 7 símann í gær.