Viðskipti innlent

Ólafur Ragnar fer í stjórn Kerecis
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, mun taka sæti í stjórn íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Kerecis á hluthafafundi sem hefur verið boðaður fimmtudaginn 1. ágúst næstkomandi.

Verðbólga 3,1 prósent í júlí
Vísitala neysluverðs í júlímánuði mældist 468,8 stig og lækkaði um 0,2 prósent milli mánaða.

Framhaldið um WOW air líklega kynnt í þessari viku
Isavia staðfesti í dag að fundur hefði verið haldinn fyrir helgi með kaupendum þrotabús WOW Air þar sem aðilar kynntu sig hvor fyrir öðrum.

Vilja að Icelandair deili Boeing-bótum með farþegum
Er farið fram á það vegna þeirra farþega sem fá ekki þau þægindi sem lofað var.

Kemur á óvart að flugfargjöld hækki ekki meira í verði
Það kemur sérfræðingum í hagfræðideildum Landsbankans og Arion banka á óvart að flugfargjöld skuli ekki hafa hækkað meira á milli mánaða en raun ber vitni.

Kínverska sendiráðið beitir sér fyrir beinu flugi milli Íslands og Kína
Kínverskir embættismenn á Íslandi reyna að koma á beinu áætlunarflugi milli Íslands og Kína.

Boða nauðungarsölu á eignum Björns Inga
Sýslumaðurinn á Vesturlandi, Ríkisskattstjóri, Hvalfjarðarsveit og Vátryggingafélag Íslands hafa farið fram á að fjórar eignir fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar í Hvalfjarðarsveit verði seldar nauðungarsölu.

Ingvar frá SVÞ til Samorku
Ingvar Freyr Ingvarsson tekur við starfi hagfræðings hjá Samorku í september næstkomandi.

Innkalla Volvo XC90 vegna hættu á morknun
Bílaumboðið Brimborg þarf að innkalla á annað hundrað Volvo lúxusjeppa.

Kringlan tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna
Verslunarmiðstöðin Kringlan hefur verið tilnefnd til verðlauna frá Alþjóðlegum samtökum verslunarmiðstöðva, ISCS.

Forstjórinn segir hald sem Isavia hafði vegna skuldar WOW air flogið í burtu
Forstjóri Isavia segir að það hald sem félagið hafði vegna tveggja milljarða króna skuldar WOW air hafi flogið í burtu í morgun þegar flugvél ALC leigusalans yfirgaf Ísland. Mikilvægt sé að Landsréttur taki til meðferðar kæru Isavia vegna úrskurðar héraðsdóms í vikunni um að eigandinn fengi vélina sína afhenta á ný.

Viðræður standa yfir milli Icelandair og Boeing um bótaupphæð
Flugvélaframleiðandinn Boeing ætlar að greiða 4,9 milljarða Bandaríkjadala í bætur til flugfélaga sem orðið hafa fyrir fjárhagslegu tjóni vegna kyrrsetningar 737 Max-þotanna.

Trygging Isavia fyrir skuldum WOW air farin
Trygging sem Isavia hafði fyrir skuldum WOW air er farin af landi brott eftir að farþegaþota bandarísku flugvélaleigunnar ALC sem Isavia kyrrsetti fór frá Keflavíkurflugvelli í morgun. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að málinu sé ekki lokið, það verði áfram rekið fyrir dómstólum.

Tjón ALC vegna kyrrsetningar á annað hundrað milljónir króna
Flugvél ALC sem fór af landi brott í morgun er stefnt til Ljubljana í Slóveníu þar sem leigufélagið er með aðstöðu til að vera með þotur í viðhaldi.

Þota ALC farin af landi brott
Þotan sem Isavia kyrrsetti í mars og hefur verið miðpunktur dómsmála síðustu mánuði yfirgaf Keflavíkurflugvöll í morgun.

Félagi Samherja stefnt vegna deilna um skip í Namibíu
Lögmaður Samherja segir fréttir af málaferlunum í Namibíu fullar af rangfærslum. Fyrirtækinu sé ekki kunnugt um meinta spillingarrannsókn sem beinist að umsvifum Íslendinga í landinu.

Isavia afhendir ALC vélina og fjarlægir vinnuvélar
Isavia hefur samþykkt að láta Airbus farþegaþotu bandarísku flugvélaleigunnar ALC af hendi í samræmi við úrskurð héraðsdóms í gær. Lögmaður ALC segir stefnt að því að fljúga vélinni af landi brott strax á morgun.

Þrefalt meiri vöxtur í útgáfu íbúðalána
Á síðustu fimm árum hefur vöxtur í útlánum til einstaklinga verið að jafnaði þrefalt meiri hjá Landsbankanum en hinum tveimur bönkunum. Bankastjóri Landsbankans segir bankann hafa boðið góð kjör á réttum tíma.

Sumargestum Jarðbaðanna fækkar um sjö prósent
Aðsókn í Jarðböðin á Mývatni dróst saman um tæp 7 prósent í júní og það sem af er júlí miðað við sama tímabil í fyrra.

Isavia kærir úrskurð héraðsdóms um flutning ALC þotunnar
Isavia hefur kært úrskurð héraðsdóms frá því í morgun sem heimilar flugvélaleigufyrirtækinu ALC að flytja farþegaþotu frá landinu sem hefur verið kyrrsett frá gjaldþroti WOW air. Lögmaður ALC segir unnið að því að koma vélinni frá Íslandi. Líklega verði Isavia krafið um bætur sem nemi tæplega 200 milljónum króna.

Isavia kærir til Landsréttar
Isavia hefur kært niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í máli ALC gegn fyrirtækinu til Landsréttar.

Veitingastaðnum Essensia lokað
Veitingastaðnum Essensia á Hverfisgötu hefur verið lokað.

Héraðsdómur úrskurðar ALC í hag
Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í dag í máli bandaríska leigufélagsins ALC gegn Isavia. Niðurstaða Héraðsdóms var sú að Isavia hafi einungis verið heimilt að kyrrsetja þotuna TF-GPA, sem ALC hafði leigt til WOW air, vegna skulda sem hvíldu á þotunni, en ekki vegna heildarskulda WOW air við Isavia.

Væri þriðjungur af hlutfalli Arion
Eiginfjárhlutfall norrænna banka væri aðeins um þriðjungur af eiginfjárhlutfalli Arion banka ef erlendu bankarnir notuðust við sömu aðferð og íslenski bankinn.

Mjólk í vegan hrískökum
Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað vegan hrískökur.

Sala bankanna krefst skýrari sýnar
Framtíðarsýn stjórnvalda á umgjörð fjármálakerfisins skiptir meginmáli þegar kemur að sölu á eignarhlut ríkissjóðs í Íslandsbanka og Landsbankanum. Arðsemisgetan dregin niður af miklu regluverki og þungri skattbyrði.

Nýir eigendur að Opnum kerfum
Sjóðurinn MF1, sem er í eigu lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta, hefur eignast ríflega 77 prósenta hlut í Opnum kerfum í kjölfar 430 milljóna króna hlutafjáraukningar upplýsingatæknifyrirtækisins.

Helgi kaupir í Stoðum fyrir um tvö hundruð milljónir króna
Helgi Magnússon, fjárfestir og stjórnarformaður Bláa lónsins, keypti í fjárfestingarfélaginu Stoðum fyrir jafnvirði um 200 milljónir króna undir lok síðasta mánaðar.

Skaginn hagnast um 400 milljónir
Hátæknifyrirtækið Skaginn, sem þróar, framleiðir og selur tækjabúnað fyrir matvælaiðnaðinn, hagnaðist um 397 milljónir króna á síðasta ári en til samanburðar var hagnaður fyrirtækisins 340 milljónir á árinu 2017.

Fjeldco blæs til sóknar í London
Lögmannsstofan Fjeldsted & Blöndal slf. vinnur nú að undirbúningi þess að hefja starfsemi í Bretlandi og hefur nýlega gengið frá stofnun félagsins Fjeldco ltd. þar í landi.