Viðskipti
129 130 131 132 133 134 135 136 137 … 334 ›
Þrír nýir stjórnendur hjá Coca-Cola á Íslandi Vilborg Anna Garðarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona framlegðar og tekjustýringar Coca-Cola á Íslandi. Vilborg kemur til Coca-Cola á Íslandi frá UN Women á Íslandi þar sem hún starfaði sem fjármálastjóri. Áður en hún starfaði hjá UN Women var hún framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sixt í tæp tíu ár. Viðskipti innlent 23.2.2023 10:03
Brutu lög með auglýsingu um „allt að 40% ódýrara“ áfengi Rekstraraðili Nýju vínbúðarinnar braut lög með auglýsingum á heimasíðu sinni með fullyrðingum um „allt að 40% ódýrara“ vín, án þess að taka fram um við hvað væri átt. Neytendur 23.2.2023 09:52
Bílarisar boða ríflegar launahækkanir Japönsku bílarisarnir Toyota og Honda hafa ákveðið að veita starfsfólki sínu í Japan mestu launahækkun í nokkra áratugi. Viðskipti erlent 23.2.2023 07:28
„Þú kemst ekkert upp með að gera ekki það sem þú átt að gera“ Skeljungur er eitt þeirra fyrirtækja sem notar EOS módelið. Markvissari fundur og meiri árangur segir forstjórinn. Atvinnulíf 23.2.2023 07:00
Hlutfall íbúða sem seljast yfir ásettu verði fer lækkandi Hlutfall íbúða sem sem selst yfir ásettu verði fer lækkandi. Á höfuðborgarsvæðinu seldust 12,7 prósent íbúða í janúar yfir ásettu verði samanborið við 16,9 prósent í desember. Hlutfallið er því nú á svipuðu róli og það hefur verið á síðustu árum þegar ró hefur verið á fasteignamarkaðinum. Viðskipti innlent 23.2.2023 06:52
Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti. Viðskipti innlent 22.2.2023 22:45
Fyrirætlanir ESB setji stöðu Íslands í hættu Fái Ísland ekki undanþágu frá fyrirhuguðum hertum aðgerðum Evrópusambandsins til að sporna við mengun vegna flugsamgangna gæti landið misst stöðu sína sem tengipunktur milli Evrópu og Ameríku, með slæmum afleiðingum fyrir hagkerfið. Þetta segir forstjóri Icelandair. Viðskipti innlent 22.2.2023 20:51
Kolefnisspor Landsvirkjunar minnkað um sextíu prósent Losun Landsvirkjunar á gróðurhúsalofttegundum hefur dregist saman um sextíu prósent frá 2008. Heildarlosun á orkueiningu minnkaði um tvö prósent á milli ára í fyrra en kolefnisspor fyrirtækisins stækkaði lítillega á milli ára. Viðskipti innlent 22.2.2023 14:57
Telur tjónið nú þegar nema hundruð milljónum króna Ferðamálastjóri telur að útvega þurfi nokkur hundruð ferðamönnum nýja gistingu því hótel hafi eða séu að loka vegna verkfalla Eflingarfélaga. Ferðaþjónustan hafi þegar orðið af hundruðum milljóna króna. Neyðarnúmer hefur verið virkjað. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins væntir þess að félagsmenn SA munu samþykkja boðað verkbann en atkvæðagreiðslu um það lýkur í dag. Viðskipti innlent 22.2.2023 11:51
Skila öllu vatni sem þarf í kolefnisförgun aftur í jörðina Vatni sem dælt verður upp úr ferskvatnsstraumi neðanjarðar við Straumsvík fyrir kolefnisförgunarstöð Carbfix verður öllu skilað aftur ofan í jörðina og hefur ekki áhrif á vatnsból. Opinberar stofnanir segja að rannsaka verði vel umhverfisáhrif gríðarlegrar vatnsnotkunar stöðvarinnar. Viðskipti innlent 22.2.2023 11:02
Þórunn Káradóttir í fjártæknigeirann Þórunn Káradóttir hefur verið ráðin til fjártæknifyrirtækisins YAY sem lögfræðingur. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:26
Enn lækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5 prósent milli desember og janúar. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem íbúðaverð lækkaði. Ekki hafa verið undirritaðir færri kaupsamningar á mánuði síðan í janúar árið 2011. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:18
Fá um 190 þúsund vegna altjóns á ferðatösku af dýrari gerðinni Icelandair hefur verið gert að greiða viðskiptavinum tæpar 190 þúsund krónur vegna tjóns sem varð á innritaðri ferðatösku af dýrari gerðinni á meðan hún var í vörslu flugfélagsins. Neytendur 22.2.2023 09:30
Mikilvægt að fleiri leggi stund á umhverfisfræði „Enn er margt óljóst um áhrif hlýnunar jarðar. Áhrifanna gætir hraðar en áður var talið á stöðum sem liggja hátt og við verðum að skilja betur hvernig þeir munu halda áfram að breytast og hvernig við þurfum að bregðast við og aðlagast breytingum. Það er því afar mikilvægt að fleiri leggi stund á umhverfisfræði,“ segir Alejandro Salazar Villegas brautarstjóri Umhverfisbreytingar á Norðurslóðum (EnCHiL), tveggja ára meistaranámsbrautar við Landbúnaðarháskóla Íslands. Samstarf 22.2.2023 08:50
EOS módelið: Fundum breytt, forgangsröðun verkefna og allir mældir EOS er aðferðarfræði fyrir stærri og smærri fyrirtæki sem meðal annars tryggir að fundir séu markvissari, forgangsröðun verkefna sé alltaf í takt við markmið fyrirtækisins, gögn séu notuð og allir séu mældir. Atvinnulíf 22.2.2023 07:01
Slaufa auglýsingum á Stöð 2+ Frá og með 1. mars verður streymisveitan Stöð 2+ án auglýsinga. Engar auglýsingar verða spilaðar áður en efni fer í gang eins og verið hefur. Viðskipti innlent 22.2.2023 07:01
Methagnaður Landsvirkjunar fyrst og fremst sóttur til stóriðjunnar Landsvirkjun á núna Kárahnjúkavirkjun skuldlausa sem og allar virkjanir byggðar fyrir hennar tíma. Forstjórinn segir methagnað fyrirtækisins fyrst og fremst sóttan til stóriðjunnar en ekki til almennings. Viðskipti innlent 21.2.2023 22:30
Ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans Hjalti Óskarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. Viðskipti innlent 21.2.2023 14:14
Tvenn hjón: Vinna saman, ferðast saman og eru saman í frístundum Skjöldur Sigurjónsson rifjar upp skrautlega sögu verzlunarinnar Kormákur og Skjöldur en þeir reka líka saman Ölstofuna. Atvinnulíf 21.2.2023 13:02
Segir methagnað uppskeru af uppbyggingu virkjana Landsvirkjun skilaði fjörutíuogfimm milljarða króna hagnaði á síðastliðnu ári og leggur stjórn fyrirtækisins til að tuttugu milljarða króna arður verði greiddur í ríkissjóð, fimm milljörðum meira en fjárlög gera ráð fyrir. Forstjórinn segir þetta uppskeru virkjanauppbyggingar síðustu áratuga en endursamningar við stóriðju séu þó stærsti áhrifaþátturinn í góðri afkomu. Viðskipti innlent 21.2.2023 12:36
Í varnarham á opnum fundi Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var í varnarham í morgun á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um áhrif verðbólgu hér á landi, þar sem þingmenn spurðu hann spjörunum úr um aðgerðir Seðlabankans síðustu misseri. Viðskipti innlent 21.2.2023 11:39
Nýir stjórnendur hjá Nox Medical Íslenska tæknifyrirtækið Nox Medical hefur ráðið til sín fjóra nýja stjórnendur. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú níutíu talsins og hefur þeim fjölgað um fjörutíu prósent á síðustu tveimur árum. Viðskipti innlent 21.2.2023 10:41
Adriana tekur við af Ásdísi Eir hjá Mannauði Adriana Karólína Pétursdóttir var kjörin formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Ásdísi Eir Símonardóttur, mannauðsstjóra Lucinity, sem hefur verið formaður félagsins undanfarin þrjú ár. Viðskipti innlent 21.2.2023 10:26
Jónas Yngvi til Uniconta Jónas Yngvi Ásgrímsson hefur verið ráðinn til Uniconta Ísland. Jónas kemur til Uniconta frá DK hugbúnaði þar sem hann hefur starfað síðastliðin fjórtán ár. Hann kemur til með að leiða ráðgjöf, þjónustu og sölu til fagaðila og viðskiptavina félagsins. Viðskipti innlent 21.2.2023 08:26
Jón, Snorri Páll, Sylvía Kristín og Finnur hlutu stjórnunarverðlaun Fjórir einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2023 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Nauthól að viðstöddum forseta Íslands í gær. Viðskipti innlent 21.2.2023 07:38
Leggja til tuttugu milljarða arðgreiðslu Afkoma ársins var sú besta í sögu Landsvirkjunar. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði sem við lítum helst til þegar afkoma fyrirtækisins er skoðuð, var 44,9 milljarðar króna og hækkaði um ríflega 72% á milli ára í bandaríkjadal talið. Þetta kemur fram í ársreikningi Landsvirkjunar. Viðskipti innlent 20.2.2023 15:51
Bein útsending: Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2022 Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru veitt árlega stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Verðlaunin verða afhent í beinni útsendingu klukkan 16 í dag. Viðskipti innlent 20.2.2023 15:31
Karítas frá Mogganum og til Landsbankans Karítas Ríkharðsdóttir hefur gengið til liðs við Landsbankann sem sérfræðingur í samskiptum. Viðskipti innlent 20.2.2023 13:47
Hjalti Þór og Benedikt til eignastýringar LV Hjalti Þór Skaftason og Benedikt Guðmundsson hafa verið ráðnir í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Viðskipti innlent 20.2.2023 12:59
Rætur nýs markaðsstjóra Icewear liggja til Víkur í Mýrdal Elma Bjartmarsdóttir hefur verið ráðin nýr markaðsstjóri Icewear. Elma er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í markaðsfræðum frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademias. Viðskipti innlent 20.2.2023 12:01