Innlent

Flensulyf rokseljast

Flensan er talin vera í hámarki núna og fólk kaupir mikið af verkjastillandi, hóstamixtúrum, nefúða og hálstöflum. Mest notuðu tegundirnar af hóstamixtúru eru uppseldar. "Ég hafði eftir einum birgja um daginn að ákveðið verkjalyf hefði selst í þreföldu vikulegu magni," sagði Bára. Hún sagði þó að nóg væri til af verkjastillandi og hitalækkandi, svo og nefúða og hálstöflum. Þá væri til úrval gagnlegra mixtúra, þótt sú algengasta, pectolin, væri uppseld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×