Sport

Haraldur í liði vikunnar

Nýliðinn í íslenska landsliðinu í knattspyrnu, Haraldur Freyr Guðmundsson er greinilega að taka stöðugum framförum sem leikmaður en hann var í dag útnefndur í úrvalslið 11. umferðar í norsku úrvalsdeildinni. Haraldur sem lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Möltu á dögunum leikur með Aalesund sem er í næst neðsta sæti deildarinnar.  Árni Gautur Arason markvörður hjá Välerenga hefur tvisvar verið valinn í lið vikunnar á þessu tímabili.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×