Sport

Nash valinn MVP

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá ESPN í Bandaríkjunum, verður Steve Nash kosinn verðmætasti leikmaður ársins 2005 í NBA deildinni, eða Most Valuable Player, nú á sunnudaginn. Nash hefur verið maðurinn á bak við ótrúlegan viðsnúning í liði Phoenix Suns í vetur og mun hann samkvæmt heimildum frá ESPN hafa haft betur gegn Shaquille O´Neal í kjörinu, en sá stóri er sagður muni lenda í öðru sæti. Nánar verður greint frá valinu á verðmætasta leikmanninum hér á vísi þegar staðfest úrslit liggja fyrir í kjörinu.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×