Sport

Nunez má fara frá Anfield

 Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur tilkynnt Spánverjanum Antonio Nunez að hann megi fara frá félaginu. Nunez, sem lék tuttugu og sjö leiki fyrir Liverpool í fyrra og skoraði í þeim eitt mark, var ekki inn í framtíðarskipulagi Benitez og er vonast eftir því að hann verði seldur aftur til Spánar. "Ég hef rætt við Nunez, og útskýrt fyrir honum hvers vegna ég telji hann ekki henta leikstíl okkar, og hann tók því vel. Það eru ekki mörg félög sem hafa haft samband við okkur, en forsvarsmenn Celta Vigo hafa þó sagt okkur að þeir vilji fá hann til félagsins" sagði Benitez í samtali við fjölmiðla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×