Sport

Nistelrooy ætlar að bæta sig í ár

Ruud van Nistelrooy, hollenski framherjinn hjá Man. Utd, kveðst ætla að gera allt sem í sínu valdi stendur til að lið sitt nái betri árangri en á síðustu leiktíð, og að hluti af því sé að bæta eigin leik. "Það er ekki spurning að síðasta tímabil var mikið vonbrigði. Ekki aðeins fyrir mig heldur liðið í heild," segir Nistelrooy. "Síðasta leiktíð var sú mest svekkjandi sem ég hef upplifað síðan ég kom til félagsins. Ég var ekki formi og það er ekki hægt að eiga góða leiktíð ef maður er alltaf meiddur. Það mikilvægasta fyrir mig núna er að ná mér alveg góðum og þá ætti ég að geta skorað jafn mörg mörk á á mínum fyrstu árum hjá Man.Utd," segir Nistelrooy.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×