Fáir nota netvarpið 29. nóvember 2006 09:00 Netvarp hefur notið vaxandi vinsælda en fáir nýta sér tæknina með reglubundnum hætti.
Niðurstöður nýlegrar könnunar sem bandaríska stofnunin Pew Internet and American Life Project gerði í Bandaríkjunum fyrir nokkru, benda til að þeim fjölgi sem hafa nýtt sér netvarp (e. podcast), en það er hljóð-, mynd- eða myndbandsefni sem hægt er að hala niður af netinu og hlusta og horfa á í spilurum á borð við iPod, sem geta ráðið við stafrænt efni á samþjöppuðu formi. Netvarp sem þetta hefur notið vaxandi vinsælda víða um heim á síðastliðnum tveimur árum eða svo og hafa nokkrir fréttamiðlar farið að bjóða upp á efni sitt með þessum hætti. Niðurstöðurnar sýna hins vegar að fáir nýta sér tæknina með reglulegum hætti. Í könnuninni kemur meðal annars fram að 12 prósent Bandaríkjamanna hafa prófað að hala niður efni af netinu og hlusta á en það er 5 prósentustigum fleiri en gerðu slíkt hið sama í sambærilegri könnun stofnunarinnar í febrúar. Einungis eitt prósent þátttakenda sagðist hlaða niður efni vegna útsendingar á ákveðnu efni en það er óbreytt niðurstaða frá því fyrr á árinu. Þá benda niðurstöður sambærilegrar könnunar, sem greiningafyrirtækið Nielsen/NetRatings gerði að netverjar í Bandaríkjunum séu rétt rúmlega 207 milljónir talsins.
Viðskipti Mest lesið Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent Munu fljúga til Nashville næsta sumar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira