Fótbolti

Shevchenko er kjölturakki konu sinnar

Berlusconi er búinn að missa allt álit á Shevchenko
Berlusconi er búinn að missa allt álit á Shevchenko NordicPhotos/GettyImages

Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, virðist vera búinn að missa allt álit á félaga sínum og fyrrum leikmanni Andriy Shevchenko hjá Chelsea. Berlusconi segir framherjann vera eins og kjölturakka í höndum konu sinnar.

"Sannur Milan-maður er alvöru karlmaður og slíkur maður hefði aldrei látið konu sína ráða ferðinni á heimilinu," sagði Berlusconi í samtali við Gazzetto dello Sport á Ítalíu, en talið er að kona Shevchenko hafi fengið að ráða miklu um það að framherjinn ákvað að fara feigðarför sína til Englands.

"Ég er húsbóndinn á mínu heimili, en þegar konan hans Shevchenko hækkar róminn, hleypur hann undir rúmið eins og hræddur kjölturakki. Konan hans skipaði honum að fara til London með börn þeirra og ég er viss um að lungun á þeim hafa mjög gott af því að vera þar í þokunni," sagði Berlusconi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×