Fótbolti

Maldini tryggði Milan sigur

Paolo Maldini var ákaft fagnað af félögunum eftir sigurmarkið í kvöld
Paolo Maldini var ákaft fagnað af félögunum eftir sigurmarkið í kvöld AFP
Gamla brýnið Paolo Maldini var hetja AC Milan í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri á Messina í ítölsku A-deildinni. Milan hafði ekki unnið sigur í fjórum síðustu leikjum sínum í deildinni og því má segja að mark fyrirliðans hafi verið gulls ígildi. Hann var raunar nálægt því að skora öðru sinni í leiknum en skalli hans hafnaði í slánni á marki Messina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×