Skrímslið frá Amstetten: „Ég er ekki skrímsli“ 7. maí 2008 11:45 Josef Fritzl.
Josef Fritzl sem lokaði Elisabeth dóttur sína í dýflissu í 24 ár og eignaðist með henni sjö börn segist ekki vera skrímsli. Fritzl hefur verið í gæsluvarðhaldi allt frá því Elisabeth dóttir hans fannst í kjallaranum ásamt þremur börnum sem aldrei höfðu litið dagsljósið. Austurríska götublaðið Österreich hefur eftir lögfræðingi Fritzl að hann segist ekki vera skrímsli. Lögfræðingurinn segir einnig að Fritzl haldi því fram að hann hafi bjargað lífi dóttur sinnar en að hann hefði getað myrt hana og öll börnin. „Ég hefði getað drepið þau öll. Það hefði hvorki fundist tangur né tetur af þeim," hafði lögfræðingurinn eftir Fritzl. Upp komst um athæfi mannsins þegar Kerstin, 19 ára dóttir hans veiktist alvarlega. Henni er nú haldið sofandi á sjúkrahúsi. „Ef það væri ekki fyrir mig væri Kerstin ekki á lífi í dag," sagði Fritzl. „Það var ég sem sá til þess að hún kæmist á spítala." Fritzl dvelur nú í fangaklefa þar sem hann hefur aðgang að sjónvarpi, útvarpi og dagblöðum, ólíkt öðrum föngum. Honum er haldið frá öðrum föngum af ótta við að þeir grípi til ofbeldis gagnvart honum. Elisabeth dvelur nú ásamt börnum sínum á spítala þar sem þau fá nauðsynlega ummönnun. Ljósmyndarar hvaðanæva að úr heiminum hafa safnast fyrir utan spítalann og freista þess að ná fyrstu myndunum af þessari frægustu fjölskyldu Austurríkis og þótt víðar væri leitað. Lögregla hefur nú þegar handtekið 13 ljósmyndara fyrir að ganga of hart fram í að ná myndunum dýrmætu.
Mál Josef Fritzl Austurríki Mest lesið Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Vefmyndavél Vísis á Reykjanesskaganum Innlent Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni Innlent Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Innlent „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Innlent Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira