Fótbolti

Boruc datt á djammið

Elvar Geir Magnússon skrifar
Artur Boruc.
Artur Boruc.

Artur Boruc, markvörður skoska liðsins Celtic, hefur verið tekinn úr landsliðshópi Póllands fyrir leiki í undankeppni HM í næsta mánuði. Ástæðan er sú að hann og tveir liðsfélagar hans brutu agareglur.

Eftir að Pólland tapaði 1-0 fyrir Úkraínu fór Boruc út á lífið ásamt Dariusz Dudka og Radoslav Majewski með pólskum blaðamönnum. Leo Beenhakker, þjálfari Póllands, hefur sett þá alla þrjá í agabann.

Pólland leikur gegn Slóveníu þann 6. september og svo gegn San Marínó fjórum dögum síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×