Fótbolti

Argentína vann gullið í fótboltanum

Argentínumenn tryggðu sér gullverðlaun í knattspyrnu á Ólympíuleikunum í Peking með því að leggja Nígeríumenn, 1-0, í úrslitaleik. Argentínumenn unnu einnig á Ólympíuleikunum í Aþenu fyrir fjórum árum.

Það var framherjinn Angel di Maria, sem leikur með Benfica, sem skoraði sigurmarkið á 58. mínútu eftir undirbúning frá Lionel Messi. Mikill hiti setti svip sinn á leikinn og þurfti tvívegis að gera hlé á leiknum til að leikmenn gætu svalað þorsta sínum í hitanum sem fór upp í 42°.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×