Fótbolti

Ólafur hefur valið 42 leikmenn í fjóra ,,alvöru" landsleiki

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari.
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari. Mynd/E. Stefán

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur á þeim fjórum alþjóðlegu leikdögum sem Ísland hefur spilað undir hans stjórn valið 42 leikmenn í þá fjóra leiki.

Ef Möltumótið sem fór fram í febrúar og vináttulandsleikurinn gegn Færeyjum í mars síðastliðnum eru teknir með hefur alls 51 leikmaður verið þeim sex landsliðshópum sem hann hefur valið.

Listi yfir þá 42 leikmenn sem hafa verið valdir í „alvöru" landsleikina má sjá hér að neðan en nú í hádeginu mun Ólafur tilkynna val sitt á landsliðshópnum sem mætir Noregi og Skotlandi í undankeppni HM 2010.

Af þessum 42 leikmönnum hafa aðeins fjórir leikmenn verið valdir í öll fjögur skiptin. Þeir eru Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Kristján Örn Sigurðsson, Emil Hallfreðsson og Theodór Elmar Bjarnason.

Af þeim hefur aðeins einn verið í byrjunarliðinu í öllum fjórum leikjunum. Það var Kristján Örn Sigurðsson sem þurfti þó að fara snemma af velli í leik Íslands og Danmerkur í undankeppni EM 2008.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson á flestar mínútur í þessum leikjum, 289 talsins. Kristján Örn kemur næstur með 277 mínútur og svo Stefán Gíslason með 270 mínútur.

Stefán hefur verið í byrjunarliðinu í þremur leikjum og alltaf þegar hann hefur verið valinn. Í þeim þremur leikjum spilaði hann allan tímann.

Auk Stefáns hefur Gunnar Heiðar, Emil og Grétar Rafn Steinsson verið í byrjunarliðinu í þrjú skipti. Aðrir hafa verið tvisvar eða sjaldnar.

Mikið hefur verið rætt um hlutskipti Veigars Páls Gunnarssonar í landsliðinu en hann hefur verið valinn í tvo þessara leikja. Hann var í byrjunarliðinu gegn Dönum í fyrsta leiks Ólafs síðastliðið haus t og lék þá í 84 mínútur.

Hann var svo aftur valinn í leikinn gegn Slóvökum í mars síðastliðnum og kom þá inn á sem varamaður þegar tvær mínútur voru til leiksloka.

Hann var ekki valinn í landsleikinn gegn Wales né heldur gegn Aserum í síðustu viku.

Það skal þó tekið fram að leikurinn gegn Wales var ekki á alþjóðlegum leikdegi en þó stóðu flestir knattspyrnumenn Ólafi til boða. Eiður Smári Guðjohnsen fékk þó ekki leyfi hjá Barcelona til að spila með íslenska landsliðinu í þeim leik.

Leikmennirnir 42:

Arnar Þór Viðarsson

Arnór Smárason

Aron Einar Gunnarsson

Atli Sveinn Þórarinsson

Ármann Smári Björnsson

Árni Gautur Arason

Ásgeir Gunnar Ásgeirsson

Birkir Már Sævarsson

Bjarni Ólafur Eiríksson

Bjarni Þór Viðarsson

Brynjar Björn Gunnarsson

Daði Lárusson

Davíð Þór Viðarsson

Eggert Gunnþór Jónsson

Eiður Smári Guðjohnsen

Emil Hallfreðsson

Eyjólfur Héðinsson

Fjalar Þorgeirsson

Grétar Rafn Steinsson

Gunnar Heiðar Þorvaldsson

Hannes Þ Sigurðsson

Heimir Einarsson

Helgi Valur Daníelsson

Hermann Hreiðarsson

Hjálmar Jónsson

Hólmar Örn Rúnarsson

Indriði Sigurðsson

Jóhann Berg Guðmundsson

Jónas Guðni Sævarsson

Kjartan Sturluson

Kristján Örn Sigurðsson

Marel Baldvinsson

Ólafur Ingi Skúlason

Pálmi Rafn Pálmason

Ragnar Sigurðsson

Stefán Gíslason

Stefán Logi Magnússon

Stefán Þór Þórðarson

Sverrir Garðarsson

Theodór Elmar Bjarnason

Tryggvi Guðmundsson

Veigar Páll Gunnarsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×