Íslenski boltinn

Stjarnan vann ÍBV

Elvar Geir Magnússon skrifar
Bjarni Jóhannsson.
Bjarni Jóhannsson.

Tveir leikir voru í 1. deild karla í kvöld. Stjarnan gerði sér lítið fyrri og vann 1-0 sigur á toppliði ÍBV þar sem Björn Pálsson skoraði sigurmarkið á 86. mínútu.

Þá steig Selfoss enn eitt skrefið í átt að Landsbankadeildinni þegar liðið vann 2-1 sigur á KA.

Með þessum tveimur leikjum hófst 14. umferð deildarinnar. ÍBV hefur 34 stig í efsta sætinu, Selfoss er í öðru sæti með 31 stig og Stjarnan í þriðja sæti með 27 stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×