Fótbolti

Frey hættur með franska landsliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sebastian Frey á blaðamannfundi franska landsliðsins fyrir EM í sumar.
Sebastian Frey á blaðamannfundi franska landsliðsins fyrir EM í sumar. Nordic Photos / AFP
Sebastian Frey hefur ákveðið að hætta að gefa kost á sér í franska landsliðið eftir því sem fram kemur í ítölskum fjölmiðlum.

Frey er 28 ára markvörður sem leikur með Fiorentina á Ítalíu en hann var ekki valinn í landsliðið sem mætti Svíum í vináttulandsleik í gærkvöldi. Frakkar unnu leikinn, 3-2.

Frey á einungis tvo leiki að baki með franska landsliðinu en hann var í landsliðshópi Frakka sem lék á EM í Austurríki og Sviss í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×