Bjarni Guðjónsson: Samningur við KR til 2012 28. júlí 2008 00:01 Bjarni Guðjónsson
Skagamaðurinn Bjarni Guðjónsson skrifaði í kvöld undir fjögurra og hálfs árs samning við KR. Forráðamenn KR staðfestu þetta við Vísi og jafnframt að náðst hefði samkomulag við ÍA um kaupverð. Bjarni sagði við Vísi í kvöld að KR hefði alltaf verið fyrsti kostur. „KR var alltaf fyrsti kostur hjá mér eftir að ljóst var að ég myndi fara frá Skaganum. Ég bý í vesturbænum og þekkti vel til liðsins," segir Bjarni í samtali við Vísi. Bjarni fékk einnig tilboð frá Val en hafnaði því. Aðspurður hvort um hann hefði fengið meiri pening ef hann hefði tekið tilboði Vals svarar hann því játandi. Aðspurður um ástæður þess að hann yfirgefur Skagann segir Bjarni að ákveðin aburðarás hafi farið af stað án hans vilja og eftir það hafi ekki verið aftur snúið. Gengi liðsins komi þar hvergi nærri. „Ég ætla ekki að fara nánar út í það en ástæðan er ekki sú að faðir minn [Guðjón Þórðarson] var rekinn frá ÍA eða að tvíburarnir [Arnar og Bjarni Gunnlaugssynir] tóku við. Ég óska þeim alls hins besta," segir Bjarni. Baldur Stefánsson hjá KR Sporti var himinlifandi með samninginn við Bjarna þegar Vísir ræddi við hann í kvöld. „Við erum auðvitað himinlifandi með að fá Bjarna til liðs við okkur. Hann er frábær leikmaður sem á eftir að nýtast félaginu vel," segir Baldur. Aðspurður um kostnaðinn við komu Bjarna segir Baldur að hann sé ekki dýr leikmaður fyrir KR. „Við fundum góða menn sem sjá um að fjármagna þetta. Það var eini möguleikinn til að láta þetta ganga upp." Bjarni verður ef allt gengur upp löglegur með KR gegn Fjölni á þriðjudagskvöld.
Mest lesið Kane reyndi að róa menn meðan sjúkraþjálfari ýtti leikmanni Körfubolti Mourinho meiddist á æfingu þegar leikmaður Fenerbahçe felldi hann Fótbolti Baldur: Yrði hissa ef minn sjúkraþjálfari myndi fara í svona baráttu Sport Viðar um vandræði Hattar: „Hugarfarslegt og andlegt, þetta er á báðum endum vallarins“ Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 104-98 | Stjörnumenn taplausir á toppi deildarinnar Körfubolti „Sóknarlega vorum við að taka alveg kexaðar ákvarðanir oft á tíðum“ Körfubolti Hefur ekki efni á sjálfum sér: „Þeir sögðu nei“ Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - ÍR 93-87 | Hræðilegur fjórði leikhluti varð ÍR-ingum að falli Körfubolti „Vorum ógeðslega góðir sóknarlega í tvo leikhluta“ Körfubolti ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn Handbolti Fleiri fréttir Haraldur hættir hjá Víkingi Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Alexander endurnýjar kynnin við Óskar Ákvörðunin hefði verið sú sama ef HK hefði haldið sæti sínu í Bestu deildinni Ákvörðun Ómars kom á óvart: „Þökkum honum fyrir ómetanlegt starf“ Víkingar krefjast refsingar vegna tjónsins en þurfa líklega að treysta á lögreglu Matthías og Kristján taka við Valsliðinu Ómar Ingi þakkar fyrir sig eftir þrjátíu ár Fótboltamamma Íslands í vanda: „Verð að halda með þeim báðum og hvernig fer ég að því?“ Eiður Aron riftir við Vestra Búinn að ná öllu út úr ferlinum: „Finn ég er orðinn sáttur“ Gylfi besti leikmaðurinn í Bestu deildinni samkvæmt tölfræðinni Valur staðfestir í annað sinn að Fanney Inga sé á leið til Svíþjóðar „Hefði verið ógeðslega tilfinning ef allt væri búið og maður væri kominn í frí“ Kristinn Jónsson kinnbeinsbrotinn og fékk heilahristing Túfa stýrir Val á næsta tímabili Fyrsta félagið í áratug sem vinnur hjá báðum kynjum Pétur hafi ekki verið rekinn: „Sameiginleg ákvörðun“ Myndasyrpa: Blikar fögnuðu titlinum með aðdáendum Býst við að hætta áður en VAR nær til Íslands Útiliðin hafa fagnað í öllum úrslitaleikjunum síðustu 26 ár „Ég hefði getað skorað átta eða níu mörk í þessum leik“ Einkunnir úr úrslitaleiknum: Magnaður Ísak Snær en Víkingar langt frá sínu besta Höskuldur besti leikmaður mótsins og Anton hlaut gullhanskann „Maður var eiginlega að óska þess að Víkingur myndi ekki tapa“ „Þetta kjaftæði, það stoppar ekki Kópavoginn“ „Höfum fengið að blómstra fyrir það sem við nákvæmlega erum“ „Langbesta liðið í þessari deild“ Uppgjörið: Víkingur R. - Breiðablik 0-3 | Titillinn í Kópavog eftir meistaraframmistöðu Blikar þurftu að gera breytingu eftir slæman árekstur Sjá meira