Körfubolti

Stórleikir hjá stelpunum í kvöld

Tveir sannkallaðir stórleikir eru á dagskrá í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld þar sem fjögur efstu lið deildarinnar berjast innbyrðis.

Í Keflavík verður slagur um toppsætið þar sem Keflavík tekur á móti spútnikliði KR og þá geta Grindavíkurstúlkur einnig haldið sér á toppnum með sigri á Haukum á heimavelli sínum í Röstinni.

Keflavík, KR og Grindavík eru eft og jöfn í deildinni með 24 stig eftir 16 leiki og Íslandsmeistarar Hauka eru í fjórða sætinu aðeins tveimur stigum á eftir.

Langt er síðan spennan hefur verið svona mikil á toppnum og ljóst að eitthvað verður að gefa eftir í kvöld. Leikirnir hefjast báðir klukkan 19:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×