Fótbolti

Mourinho orðaður við Inter

NordcPhotos/GettyImages

Roberto Mancini lýsti því yfir í gærkvöld að hann ætlaði að hætta að þjálfa Inter á Ítalíu í sumar. Fjölmiðlar á Ítalíu voru ekki lengi að grípa þetta á lofti og höfðu reyndar þegar orðað Jose Mourinho við starfið.

Mourinho var sagður hafa átt fund með forseta Inter í síðustu viku en sagði Gazzetta dello Sport að það hefði ekki verið til að ræða starfstilboð.

Þeir Bernd Schuster hjá Real Madrid og Frank Rijkaard hafa einnig verið orðaðir við stöðu Mancini.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×