Körfubolti

Fyrsti leikur Keflavíkur og Hauka í dag

Fyrsta viðureign Keflavíkur og Hauka í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna verður í Keflavík í dag klukkan 17. Ljóst er að hart verður barist enda eru Haukar Íslandsmeistarar og lið Keflavíkur tryggði sér deildarmeistaratitilinn á dögunum.

Leikurinn hefst klukkan 17 í Toyota-höllinni í Keflavík og gefst heppnum áhorfendum tækifæri til að taka þátt í Borgarskotinu fræga í hálfleik, en það er skotleikur Iceland Express þar sem fólk getur unnið sér inn ferð með Iceland Express.

Í gær vann KR góðan sigur á Grindavík í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×