Íslenski boltinn

Töpuðu fyrir Englandi

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lúkas Kostic, þjálfari U17 landsliðsins.
Lúkas Kostic, þjálfari U17 landsliðsins.

Önnur umferð Opna Norðurlandamóts U17 landsliða karla fór fram í dag, þriðjudag. Ísland mætti Englandi og gerðu þeir ensku eina mark leiksins.

Í hinum leik riðilsins unnu Norðmenn öruggan 4-1 sigur á Finnum og eru því efstir í B-riðli ásamt Englendingum. Finnar og Íslendingar eru án stiga, en þessi lið mætast einmitt í lokaumferð riðlakeppninnar á fimmtudag.

Í A-riðli komust Danir í toppsætið með því að leggja Færeyinga með tveimur mörkum gegn engu, en þess má geta að íslenskir dómarar voru í þeim leik, þeir Þóroddur Hjaltalín aðaldómari og Gylfi Már Sigurðsson annar aðstoðardómarinn. Gestgjafarnir, Svíar, unnu 5-1 stórsigur á Skotum.

Af vefsíðu KSÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×