Handbolti

Fram í úrslitakeppnina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúnar Kárason verður í eldlínunni í dag.
Rúnar Kárason verður í eldlínunni í dag. Mynd/Stefán

Fram tryggði sér í dag sæti í úrslitakeppni N1-deildar karla með fjögurra marka sigri á FH, 30-26.

Þar með er ljóst hvaða fjögur lið komast í úrslitakeppnina en FH þurfti að vinna leikinn í dag til að eiga möguleika á því.

Leiknum var lýst beint hér á Vísi og má lesa lýsinguna hér að neðan. Tölfræðin birtist einnig hér neðst í greininni.

Leik lokið: Fram - FH 30-26

FH-ingar ósáttir við dómarana. Hefðu getað minnkað muninn í eitt. Bjarni fór inn úr horninu úr þröngri stöðu en skoraði ekki. FH-ingar vildu meina að brotið hafi verið á honum. Rúnar skoraði sitt þriðja mark í röð í kjölfarið og Fram fékk svo síðustu sóknina og skoraði úr henni.

59. mínúta: Fram - FH 28-26

Fram missir boltann og FH skorar úr hraðaupphlaupi. Munurinn eitt mark og Rúnar skorar aftur. FH missir svo boltann í næstu sókn og Fram getur aukið muninn í þrjú mörk þegar ein og hálf mínúta er eftir. Mikilvægt.



57. mínúta: Fram - FH 27-25


Bjarni Fritzson skorar og minnkar muninn í tvö mörk. Rúnar Kárason svarar fyrir Fram en hann var settur í skammarkrókinn af Viggó þjálfara í seinni hálfleik. Fékk þó að koma inn aftur eftir að sóknarleikur Fram hrundi. Ásbjörn Friðriksson skorar fyrir FH og munurinn aftur tvö mörk.

55. mínúta: Fram - FH 26-23

FH-ingar hefðu getað minnkað muninn í tvö mörk en nýttu ekki sókn sína. Framarar fara þó illa að ráði sínu í næstu sókn og gestirnir fá aftur boltann.



51. mínúta: Fram - FH 25-22


Framarar eru í miklum vandræðum eð sinn sóknarleik og FH er að skora mörg auðveld mörk þessa stundina. Þeim gengur hins vegar illa að stilla upp í sókn gegn vörn Framara. Munurinn þó aðeins þrjú mörk og nóg eftir.

49. mínúta: Fram - FH 24-20

Nú hafa FH-ingar skorað þrjú mörk í röð og það er hlaupin smá spenna í leikinn.



44. mínúta: Fram - FH 24-17


Framarar svara með þremur mörkum í röð eftir að FH missir mann af velli.

41. mínúta: Fram - FH 21-17

Nú er allt í einu allt stopp hjá Frömurum og FH-ingar ganga á lagið. Það er allt annað að sjá til varnarleiks gestanna og þá hafa auðveldu mörkin fylgt í kjölfarið.

39. mínúta: Fram - FH 20-15

FH skorar fjögur mörk í röð eftir hreint skelfilegan leikkafla í sókn Framara. Daníel í FH-markinu er líka byrjaður að verja.

36. mínúta: Fram - FH 19-11

Vörnin er sem fyrr öflug hjá Fram og þeir eru að sigla langt fram úr enn á ný.

32. mínúta: Fram - FH 17-10

Síðari hálfleikur hafinn og Fram heldur uppteknum hætti. Magnús þegar búinn að verja tvö í síðari hálfleik.

Hálfleikur: Fram - FH 16-10

Kominn hálfleikur hér í Safamýrinni og ekkert mark skorað eftir leikhléið. Framarar sýndu smá veikleikapunkta síðustu mínúturnar í hálfleiknum en ef því verður kippt í lag í hálfleik ættu heimamenn engar áhyggjur að hafa.

Mörk Fram:

Jóhann Gunnar Einarsson 7/2

Stefán B. Stefánsson 4

Magnús Stefánsson 2

Rúnar Kárason 2

Guðmundur Hermannsson 1



Varin skot:


Magnús Erlendsson 11/1

Mörk FH:

Örn Ingi Bjarkason 4

Jónatan Jóhannsson 2

Ólafur Gústafsson 1

Hermann Björnsson 1

Ásbjörn Friðriksson 1

Bjarni Fritzson 1

Varin skot:

Magnús Sigmundsson 2

Daníel Andrésson 2/1

29. mínúta: Fram - FH 16-10



Besti leikkafli FH til þessa og gestirnir ná að saxa á forskot Framara. Viggó þjálfari tekur leikhlé þegar ráðaleysi grípur um sig í sókn Fram nánast í fyrsta sinn í leiknum.

24. mínúta: Fram - FH 15-7

Það er lítil spenna í þessum leik eins og er. Framarar virðast ekkert ætla að slaka á klónni.

20. mínúta: Fram - FH 13-6

Framarar eru að bjóða upp á þrumusleggjur af löngu færi og sirkusmörk. Magnús heldur áfram að verja vel í marki Fram. Rúnar Kárason kom inn á eftir að hafa ekkert spilað fyrsta korterið og setti tvö mörk í röð.

15. mínúta: Fram - FH 9-4

FH-ingar sýna aðeins efnilegri takta í sókninni og skora tvö í röð. Framarar gefa þó lítið eftir og halda fimm marka forystu.

13. mínúta: Fram - FH 8-2

Þrjú mörk frá Fram í röð og FH-ingar taka leikhlé. Gestirnir þurfa að finna einhverjar lausnir og það hið fyrsta. Vörn Framara er búin að vera fín og Magnús í markinu búinn að taka fjóra bolta, þar af eitt víti.



10. mínúta: Fram - FH 5-2


FH-ingar komast loksins á blað og skora tvö mörk í röð. Bæði lið hafa þó klikkað á vítum en Fram kemst aftur þremur mörkum yfir þegar Jóhann Gunnar nýtir vítakast í fyrsta sinn í leiknum.

6. mínúta: Fram - FH 4-0

Framarar eiga í engum vandræðum með að labba í gegnum vörn FH sem að sama skapi á engin svör við varnarleik Framara. Algjört úrræðaleysi hjá Hafnfirðingum.

3. mínúta: Fram - FH 2-0

Fram byrjar vel og FH-ingar virðast eiga í erfiðleikum, bæði í vörn og sókn.



1. mínúta: Fram - FH 0-0


Leikurinn er hafinn hér í Safamýri. Fram byrjar með boltann. Ólafur Gústafsson FH-ingur strax kominn með brottvísun.

15.45 Aron og Ólafur ekki með

Hvorki Aron Pálmarsson né Ólafur Guðmundsson eru með liði FH í dag vegna meiðsla. Það er mikið áfall fyrir FH sem má alls ekki við því að tapa þessum leik.

15.40 Velkomin til leiks

Vísir heilsar hér frá íþróttahúsinu í Safamýri. Hér fer senn að hefjast leikur Fram og FH þar sem síðarnefnda liðið freistar þess að gera atlögu að fjórða sæti deildarinnar og þar með sæti í úrslitakeppninni á kostnað Fram.

Tölfræði leiksins:

Fram - FH 30 - 26

Mörk Fram (skot): Jóhann G. Einarsson 8/2 (10/3), Stefán B. Stefánsson 6 (7), Rúnar Kárason 5 (12), Guðmundur Hermannsson 4 (5/1), Brjánn Bjarnason 3 (4), Magnús Stefánsson 3 (6), Guðjón F. Drengsson 1 (3), Róbert Hostert (2), Haraldur Þorvarðarson (2).

Varin skot: Magnús Erlendsson 19/1 (45/3, 42%)

Hraðaupphlaup: 6 (Stefán B. 3, Magnús 2, Jóhann G. 1).

Fiskuð víti: 4 (Jóhann Karl 2, Magnús 1, Magnús 1).

Utan vallar: 6 mínútur.

Mörk FH (skot): Benedikt Kristinsson 6 (8), Örn Ingi Bjarkason 4 (7), Hermann Björnsson 4 (8), Ásbjörn Friðriksson 4/2 (10/2), Bjarni Fritzson 3 (11/1), Jónatan Jónsson 2 (2), Ólafur Gústafsson 2 (5), Sigurður Ágústsson 1 (1), Guðmundur Pedersen (1).

Varin skot: Daníel Andrésson 8/1 (29/1, 28%), Magnús Sigmundsson 2 (11/2, 18%).

Hraðaupphlaup: 10 (Benedikt 5, Örn Ingi 2, Sigurður 1, Bjarni 1, Hermann 1).

Fiskuð víti: 3 (Benedikt 1, Ólafur 1, Hermann 1).

Utan vallar: 8 mínútur.


Tengdar fréttir

Síðasta tækifæri FH-inga

Fram og FH eigast í dag við í N1-deild karla er næstsíðasta umferð deildarinnar fer fram en allir leikirnir hefjast klukkan 16.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×