Feeney hreinsaður af ásökunum um aðild að morði 13. júní 2009 13:24 Donald Feeney í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 1993. MYND/BRYNJAR GAUTI SVEINSSON
Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, hefur verið hreinsaður af ásökunum um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. Feeney og sonur hans voru handteknir ásamt þremur öðrum bandaríkjamönnum en Vísir sagði frá málinu í morgun. Nú herma fréttir frá Bandaríkjunum að fimmmenningarnir hafi verið hreinsaðir af ásökunum, tveir þeirra gætu þó átt yfir höfði sér ákæru vegna fíkniefnamisferlis. Þeir eru enn í haldi þar sem rannsókn á því máli er ekki lokið. Donald Feeney var mikið í fréttum snemma á tíunda áratugnum eftir að hann tók að sér að ræna tveimur stúlkum frá Íslandi í flóknu forræðismáli. Feeney var dæmdur í eins árs fangelsi en æsilegur flótti hans úr fangelsinu sem endaði í Vestmannaeyjum vakti mikla athygli á sínum tíma. Feeney hefur um langt skeið rekið öryggisfyrirtækið Corparate Training Unlimted sem starfar meðal annars í Írak. Snemma í júní voru Feeney, sonur hans og þrír bandaríkjamenn til viðbótar handteknir í Bagdad grunaðir um aðild að morðinu á James Kitterman sem fannst látinn í bíl í miðborg Bagdad 22. maí sl. Hann hafði verið stunginn til bana og var bundinn á höndum og fótum. Kitterman var sextugur Texasbúi og eigandi verktakafyrirtækis sem starfar í Írak.
Tengdar fréttir Feeney grunaður um morð í Írak Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, er grunaður um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. 13. júní 2009 12:02 Mest lesið Hraun streymir að langmestu frá Svartsengi Innlent Sauð upp úr í morgunumferðinni Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Innlent FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Innlent Spákaupmenn ásælist vatn meðan fæðuöryggi sé stefnt í voða Innlent Það sem oftast ógildir kjörseðilinn Innlent Vonast til að útkljá deilumál í fyrramálið Innlent Ekið á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Innlent Fleiri fréttir Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Sjá meira
Feeney grunaður um morð í Írak Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, er grunaður um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. 13. júní 2009 12:02