Lettland er lent í íslenskri kreppu 8. janúar 2009 10:51
Lettland er lent í íslenskri kreppu eftir að Moody´s lækkaði lánshæfimatið á ríkissjóði Lettlands úr A3 niður í Baa1. Hið sama gerði Moody´s á ríkissjóði Íslands í lok síðasta árs. Lækkun sem þessi gerir viðkomandi landi mjög erfitt fyrir að sækja sér lánsfé á almennum bankamarkaði og verður viðkomandi land í flestum tilfellum háð aðstoð alþjóðlegra stofnanna eins og gerst hefur með Ísland. Í frétt um málið á vefsíðunni E24.no er haft eftir Kenneth Orchard hjá Mody´s að fjármálakreppan komi dýpra og verr við kaunin á Lettum en áður hafi verið talið. Landið er eitt þeirra sem neyðst hefur til að leita ásjár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Og þetta eru slæmar fréttir fyrir norska stórbankann DnB Nor sem átti í fyrra um 22 milljarða norskra króna, eða hátt í 400 milljarða kr., útistandandi í Lettlandi í fyrra.
Mest lesið Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Viðskipti erlent Domino's hækkar verð á þriðjudagstilboðinu Viðskipti innlent Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað Viðskipti innlent Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum Viðskipti innlent Vilja selja öll bílastæðahús borgarinnar Innlent 75 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Danska ríkið kaupir Kastrup Viðskipti erlent Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Viðskipti erlent Gunnars loksins selt Viðskipti innlent Hátt raunvaxtastig samhliða hægari vexti gæti skapað áskoranir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira