Morten Lund viðurkennir svik við stjórnendur Nyhedsavisen 9. janúar 2009 10:47
Morten Lund fyrrum eigandi Nyhedsavisen viðurkennir nú að hann hafi svikið stjórnendur Nyhedsavisen um launagreiðslur. Biður hann þá Svenn Dam og Morten Nissen Nielsen afsökunnar á athæfi sínu. Í frétt af málinu í Jyllands-Posten í dag segir að eftir að Nyhedsavisen varð gjaldþrota þann 1. september gerðu Dam og Nielsen kröfu um að Lund borgaði þeim samtals 10 milljónir danskra kr. eða um 220 milljónir kr.. Þeir voru með samning í höndunum þar sem kveðið er á um að ef blaðið færi í þrot myndi Lund borga þeim ein árslaun hvorum auk starfslokagreiðslu. Morten Lund hefur hingað til ekki viðurkennt þennan samning en á heimasíðu sinni hefur hann nú skipt um skoðun og segir svikin við Dam og Nielsen vera verstu mistök lífs síns. Það kann að hafa áhrif á afsökun Lund að þeir Dam og Nielsen hafa gert kröfu um að Lund verði gerður gjaldþrota og á að taka það mál fyrir við Sjó- og kaupréttinn í Kaupmannahöfn á þriðjudag í næstu viku.
Mest lesið Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Viðskipti erlent Domino's hækkar verð á þriðjudagstilboðinu Viðskipti innlent Vilja selja öll bílastæðahús borgarinnar Innlent Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum Viðskipti innlent Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað Viðskipti innlent 75 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Danska ríkið kaupir Kastrup Viðskipti erlent Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Viðskipti erlent Gunnars loksins selt Viðskipti innlent Ekki brenna út á aðventunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira