Aukinn viðbúnaður vegna fellibyls á Haítí 5. nóvember 2010 14:01
Mikill viðbúnaður er nú hjá Rauða krossinum á Haítí en búist er við að fellibylurinn Tómas muni skella á eyna Hispaníólu á hverri stundu. Fellibylurinn hefur valdið miklum usla síðustu daga í Karabíska hafinu, og er óttast að afleiðingarnar kunni að verða skelfilegar þegar hann nær landi á Haítí þar sem milljónir manna hafast enn við í bráðabirgðahúsnæði eftir jarðskjálftann mikla í janúar. Miklar rigningar fylgja fellibylnum og eykur það enn á hættuna á að kólerufaraldur blossi upp í höfuðborginni. Þrír hjálparstarfsmenn Rauða kross Íslands eru nú að störfum á Haítí við tjaldsjúkrahús Rauða krossins í einu úthverfa Port-au-Prince. Allir sjúklingar á tjaldsjúkrahúsi Rauða krossins hafa verið fluttir á öruggan stað. Starfsmenn sjúkrahússins sem og aðrir hjálparstarfsmenn Rauða krossins á Haítí hafast enn við í tjaldbúðum og hefur verið unnið að því að flytja alla sendifulltrúa í öruggt skjól jafnframt því að bjarga skrifstofubúnaði, sjúkrahúsbúnaði, hjálpargögnum og eigum þeirra. Á sama tíma hafa hjálparstarfsmenn Rauða krossins eflt neyðarvarnir á svæðinu til að geta brugðist sem best við verði um miklar hamfarir að ræða af völdum fellibylsins. 14 manns fórust þegar fellibylurinn gekk yfir eyna Sankti Luciu fyrr í vikunni. Um 450 manns hafa látist úr kóleru á síðustu vikum, og um 5.000 sýkst. Um 76% tilfella hafa greinst í Artibonite héraði og um 22% í miðsýslu Haítí, en rekja hefur mátt öll tilfelli sem greinst hafa í höfuðborginni til þessara svæða.
Mest lesið Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Verkfallið hafi mikil áhrif á fáar fjölskyldur og lítil áhrif á samfélagið Innlent Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi Innlent „Já, maður! Að sjálfsögðu vinnur hann þetta!“ Erlent Málið komið á „endastöð“ og rannsókn lokið Innlent Selur íbúð sem hann gerði upp og flytur í ódýrari íbúð Innlent Leituðu áfram undir ís vegna misræmis milli lista og leiðsögumanna Innlent Sigurður Ingi sat þögull við ríkisstjórnarborðið Innlent Aukaþingmaður leikur enn lausum hala Innlent Fleiri fréttir Réttað yfir átta vegna afhöfðunar kennara í París Rauð veðurviðvörun og 80 flugferðum aflýst eða frestað „Já, maður! Að sjálfsögðu vinnur hann þetta!“ Evrópusamstarf verður að Evrópuvandamáli Forseti Moldóvu hélt velli þrátt fyrir ásakanir um rússnesk afskipti Á lokametrunum í kosningabaráttu Repúblikanar önugir yfir óvæntu atriði Harris í SNL Grýttu drullu í Spánarkonung Skyggnst inn í hugarheim stuðningsmanna Trump Óvænt forskot Harris í Iowa sætir tíðindum Hefja bólusetningar við lömunarveiki á ný Sendir tíu þúsund manna herlið til Valensía Ostaþjófnaður skekur heim matgæðinga: „Hver vill svona mikinn ost?“ „Margt að óttast“ en ameríski draumurinn lifir Badenoch nýr leiðtogi Íhaldsflokksins „Ég myndi frekar kasta mér fram af kletti en að kjósa Donald Trump“ Létust þegar skyggni hrundi ofan á þau í Serbíu Rúmlega tvö hundruð látnir eftir flóðin Kim hafi stutt Rússa frá upphafi „heilags stríðs“ þeirra Telja opinber úrslit kosninganna í Georgíu ekki standast Háttsettur Trump-liði segir RFK hafa sannfært hann um skaðsemi bóluefna Rússar taldir hylja slóð flutningaskipa til að verja olíuhafnir sínar Búa sig undir meiri rigningu og fleiri flóð á Spáni Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn á landamærunum Horfði á lík fljóta fram hjá Tala látinna á Spáni hækkar Rússar og Íranar auka samstarf í varnarmálum Stórsigur beggja innan skekkjumarka Ný flaug flaug lengra en áður Sjá meira