Innlent

Ruddist inn og lamdi fyrrverandi sambýliskonu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Maðurinn gekk í skrokk á fyrrverandi sambýliskonu sinni.
Maðurinn gekk í skrokk á fyrrverandi sambýliskonu sinni.
Tveir karlmenn, annar 27 ára gamall og hinn 28 ára, hafa verið ákærðir fyrir líkamsárás og húsbrot.

Samkvæmt ákæru réðust þeir í heimildarleysi inn í íbúð hjá fyrrverandi sambýliskonu þess síðarnefnda í apríl í fyrra. Sá síðarnefndi braut gler við útidyrahurð og náði þannig að opna hurðina innan frá. Síðan brutu þeir upp hurð inni á salerni þar sem konan hafði læst að sér og veittist sá síðarnefndi þar að henni með því að hrinda henni á borð, rífa í hár hennar og slá hana. Konan hlaut tvær stórar kúlur á höfði, tognaði á hálsi og hlaut aðra áverka víðs vegar um líkamann.

Samkvæmt ákæru hélt sá fyrrnefndi á GSM síma konunnar á meðan að á atlögunni stóð en hvatti þann síðarnefnda síðan til að láta þar við sitja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×