Íslenski boltinn

Umfjöllun: Blikar aftur á toppinn

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Blikar eru komnir á toppinn.
Blikar eru komnir á toppinn.
Breiðablik tryggði sér toppsætið þegar liðið lagði Keflvavík, 0-2, í sól og blíðu á Sparisjóðsvellinum í kvöld. Kristinn Steindórsson og Alfreð Finnbogason skoruðu mörk gestanna.

Blikar byrjuðu leikinn fjörlega og strax í upphafi leiks var Guðmundur Pétursson við það að sleppa í gegn en var dæmdur brotlegur og mátti heyra vel í stuðningsmönnum Breiðabliks sem voru allt annað en sáttir við Þórodd Hjaltalín Jr, dómara leiksins.

Hörður Sveinsson fékk tvö góð tækifæri til að koma heimamönnum yfir í fyrri hálfleik en í fyrra skiptið slapp hann í gegnum vörn Blika en átti lélegt skot sem rann framhjá markinu. Í seinni skiptið fékk hann sendingu inn fyrir en skaut boltanum hátt yfir markið þar sem hann stóð einn og óvaldaður.

Liðin nýttu ekki færin sín fyrir hlé og staðan því markalaus í hálfleik.

Gestinir úr Kópavogi voru nálægt því að skora fyrsta markið í upphafi síðari hálfleiks en þá slapp Guðmundur Pétursson í gegn eftir flott spil Blika en skaut boltanum langt framhjá á óskiljanlegan hátt.

Fyrsta markið kom loks á 72. mínútu leiksins en þá skoraði Kristinn Steindórsson úr stuttu færi eftir sendingu frá varamanninum Andra Rafni Yeoman og fjörugur endasprettur framundan.

Heimamenn gátu jafnað stuttu síðar en þá komst Magnús Sverrir Þorsteinsson einn inn fyrir á móti Ingvari Kale í marki Blika en Ingvar sá við honum og varði meistaralega.

Alfreð Finnbogason kláraði dæmið fyrir Breiðablik og innsiglaði dýrmætan sigur þeirra með marki eftir að hafa sloppið einn í gegn eftir góðan undirbúning frá Finni Orra Margeirssyni.

Mikilvægur sigur Blika sem færir þeim toppsætið en Keflvíkingar eru hinsvegar að dragast aftur úr lestinni og þurfa að skoða sín mál fyrir seinni hluta sumars ef þeir ætla að vera með í toppbaráttunni.

Keflavík-Breiðablik 0-2 (0-0)

0-1 Kristinn Steindórsson (72.)

0-2 Alfreð Finnbogason (86.)

Sparisjóðsvöllurinn. Áhorfendur:  1411

Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr (6)

Skot (á mark): 15-12 (8-3)

Varin skot: Ómar 3 - Ingvar 8

Horn: 3-8

Aukaspyrnur fengnar: 11-5

Rangstöður: 6-3

Keflavík (4-4-2)

Ómar Jóhannsson 5

Alen Sutej 6

(82. Sigurður Gunnar Sævarsson -)

Haraldur Freyr Guðmundsson 6

Bjarni Hólm Aðalsteinsson 6

Brynjar Guðmundsson 5

Paul McShane 5

Hólmar Örn Rúnarsson 6

Magnús Sverrir Þorsteinsson 5

Jóhann Birnir Guðmundsson 6

(75. Ómar Karl Sigurðsson -)

Guðmundur Steinarsson 6

Hörður Sveinsson 6

(75. Magnús Þórir Matthíasson -)

Breiðablik (4-2-3-1)

Ingvar Þór Kale 8 - Maður leiksins


Árni Kristinn Gunnarsson 6

Kári Ársælsson 6

Elfar Freyr Helgason 6

Jökull I. Elísabetarson 5

Finnur Orri Margeirsson 6

Kristinn Jónsson 6

Haukur Baldvinsson 5

(64. Arnór Sveinn Aðalsteinsson 6 )

Kristinn Steindórsson 7

(84. Olgeir Sigurgeirsson -)

Alfreð Finnbogason 7

Guðmundur Pétursson 6

(64. Andri Rafn Yeoman 6 )




Fleiri fréttir

Sjá meira


×